17 dagar | 9. - 25. október 2027

Rýniferð til Kína 2027

Peking • Xi'an • Chengdu • Shanghai

Upplifðu Kína í allri sinni vídd – þar sem stórbrotin saga, einstök mannvirki, lifandi menning og framtíðartækni mætast.

Golden Circle • Südküste • Jökulsárlón • Snæfellsnes • Landmannalaugar

Verð frá 688.000 kr.

m.v. gistingu í tveggja manna herbergi

SÉRFERÐ | VERKFRÆÐINGAFÉLAG íSLANDS

桜 Sakura - Kirsuberjablómatíminn

Rýnisferð til Kína 2027

Rýnisferð til Kína 2027

Kína er land þar sem aldagömul saga mætir hraðri þróun og framtíðarsýn. Í þessari fjölbreyttu rýnisferð heimsækjum við Peking, Chengdu og Shanghai og kynnumst arkitektúr, verkfræði, borgarskipulagi, nýsköpun og menningu.

Meðal hápunkta eru Kínamúrinn, Forboðna borgin, Dujiangyan-áveitukerfið, leirherinn i Xi'an, pöndurnar í Chengdu, nútímaarkitektúr Shanghai og heimsóknir tengdar tækni, vélmennum og snjallframleiðslu.

Ferðin er ekki síður upplifun fyrir maka og aðra ferðafélaga, með áherslu á menningu, mat, tehús, söguleg hverfi og líf stórborganna.

Hápunktar ferðarinnar


Peking – keisaraborgin

Kínamúrinn

Xi'an - leirherinn

Chengdu – pöndurnar

Dujiangyan – verkfræði í 2000 ár

Shanghai – framtíðarborgin

Vélmenni og hátækni

Háhraðalestin

Nokkrar myndir frá síðustu ferð

Síðasta ferð okkar til Seúl og Japans í mars 2026 var mjög vel heppnuð eins og sjá má af þeim umsögnum sem VIA Travel hefur fengið á Trustpilot.  Við leyfum nokkrum myndum úr ferðinni að fylgja hér að neðan.  Þær gefa skemmtilega innsýn í fjölbreytt ferðalag um áhugaverðar slóðir Kóreuskagans og Japan.

Skoða ferðalýsingu

Tag 1

Do. 2. September 2027

 

Dagur 1

lau. 9. okt. 2027

Brottför og ævintýrið hefst

Brottför frá Keflavíkurflugvelli Air China.

Við fljúgum til Peking með stuttu millistoppi í Kaupmannahöfn, og þaðan áfram með næturflugi. Framundan eru dagar fullir af ævintýrum og spennandi upplifunum.

Flug: Air China 808
Brottför frá Keflavík: kl. 13:45

Stutt millilending í Kaupmannahöfn. 

Lending í Peking: kl. 12:30 næsta dag.

Tímamismunur: +8 klst.(Peking er 8 klst. á undan Íslandi)

Máltíðir í flugvélinni

Tag 2

Fr. 3. September 2027

 

Dagur 2

sun. 10. okt. 2027

Lending i Peking

Lending í Peking kl. 12:20. (Kl. 03:20 á ísl. tíma)

Við komuna til Peking taka staðarleiðsögumenn á móti hópnum og okkur verður ekið á hótelið.

Eftir innritun gefst tími til að hvílast fram að sameiginlegum kvöldverði á hótelinu.

Máltíðir innifaldar:
● Morgunverður í flugvélinni
● Kvöldverður „welcome dinner“ á hóteli okkar

Gisting  –  4 nætur

Gisting á 4-5 ⭐️ hóteli, Xiyuan Hotel eða sambærilegt.

 

    • Tveggja manna herbergi
    • Morgunverðarhlaðborð
    • Ókeypis WiFi
    • Veitingastaðir og bar
    • Móttaka opin allan sólarhringinn
    • Góð tenging við miðborgina með neðanjarðarlest

Tag 3

Sa. 4. Sept. 2027

 

Dagur 3

mán. 11. okt. 2027

Kínamúrinn, Ólympíusvæðið og keisaragarðarnir 

Í dag höldum við að hinum stórbrotna Kínamúr við Juyongguan, þar sem um tveir tímar gefast til að skoða þetta einstaka verk fornrar kínverskrar verkfræði.

Að því loknu heimsækjum við jadeverkstæði áður en snæddur er hádegisverður.

Síðan er haldið aftur til Peking þar sem við skoðum Ólympíusvæðið og sjáum hið fræga Fuglahreiður að utan.

Máltíðir: Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður
Hótel: Xiyuan Hotel 5★ – Peking

OIP
Billede1

Tag 4

So. 5. Sept. 2027

 

Dagur 4

þri. 12. okt. 2027

Keisaraborgin og Hutong-hverfi

Morguninn er helgaður hjarta hins keisaralega Peking.

Við skoðum hina stórfenglegu Forboðnu borg, keisarahöllina þar sem 24 keisarar Ming- og Qing-ættveldanna réðu Kína í meira en 500 ár.

Þaðan höldum við á Torg hins himneska friðar – Tian’anmen-torg, eitt stærsta borgartorg heims.

Eftir hádegisverð förum við í rickshaw-ferð um gömlu Hutong-hverfin, þar sem gefst innsýn í hefðbundin íbúðahverfi Peking og daglegt líf borgarbúa fyrr á tímum.

Máltíðir: Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður
Hótel: Xiyuan Hotel 5★ – Peking

Tag 5

Mo. 6. Sept. 2027

 

Dagur 5

mið.  13. okt. 2027

Borgarskipulag og Hof himinsins

Frá framtíðarsýn nútímaborgar til klassískrar  byggingarlistar

Um morguninn heimsækjum við Beijing Urban Planning Exhibition Hall, þar sem sérstök kynning verður á arkitektúr Peking, borgarskipulagi og þeirri miklu umbreytingu sem borgin hefur gengið í gegnum.

Síðdegis heimsækjum við Hof himinsins, eitt þekktasta kennileiti Peking og einstakt dæmi um hefðbundna kínverska byggingarlist og skipulag.

Máltíðir: Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður
Hótel: Xiyuan Hotel 5★ – Peking 

 

Dagur 6

Di. 7. Sept. 2027

 

Dagur 6

fim. 14. okt. 2027

Peking til Chengdu

Ný borg, ný upplifun

Eftir komu og hádegisverð höldum við að hinu merka Dujiangyan-áveitukerfi, sem er á heimsminjaskrá UNESCO og eitt af stórvirkjum fornrar kínverskrar verkfræði.

Þar kynnumst við sjálfbærri vatnsstjórnun og verkfræðikerfi sem hefur þjónað svæðinu í meira en tvö þúsund ár.

Um kvöldið verður boðið upp á sérstakan Sichuan Hotpot-velkomukvöldverð.

Máltíðir: Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður
Hótel: Dorsett Chengdu 4★

 
 

Gisting  –  4 nætur

Gisting á 4 ⭐️ hóteli, Dorsett Cengdu, eða sambærilegt.

  • Rúmgóð tveggja manna herbergi
  • Ókeypis WiFi
  • Veitingastaðir á hótelinu
  • Líkamsrækt opin allan sólarhringinn
  • Þvottaaðstaða
  • Neðanjarðarlestir við hótelið
  • Miðsvæðis og stutt í verslanir og veitingastaði

Dagur 7

Mi. 8. Sept. 2027

 

Dagur 7

fös. 15. okt. 2027

Tvær samhliða dagskár

Boðið verður upp á tvær ólíkar dagskrár sem fara fram samhliða.  Hægt er að velja þá dagskrá sem best hentar ykkar áhugasviði.

 

Máltíðir: Morgunverður; hádegisverður eftir valinni dagskrá
Hótel: Dorsett Chengdu 4★

Valkostur A: Nýsköpun og framtíð

Arkitektúr, borgarþróun og snjallframleiðsla

Fagdagskráin leggur áherslu á nútímaarkitektúr, nýsköpun, sjálfbæra borgarþróun og framtíð framleiðslu.

Meðal heimsókna eru:

  • West Village, hannað af kínverska arkitektinum Liu Jiakun – athyglisvert dæmi um samtímaarkitektúr þar sem samfélag, borgarrými og endurnýting fléttast saman.

  • Chengdu Science Fiction Museum, hannað af Zaha Hadid Architects – stórbrotið mannvirki þar sem framtíðararkitektúr, stafræn hönnun og ný tækni mætast.

  • Lynk & Co Chengdu Smart Factory – heimsókn í hátækniverksmiðju þar sem kynnt verða sjálfvirkni, Industry 4.0, snjallframleiðsla og framtíð lausna í samgöngum.

Valkostur B: Saga og menning 

Heimsminjar og hefðbundið borgarlíf

Samhliða verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá með áherslu á sögu, menningu, arkitektúr og einstök mannvirki Sichuan-héraðs.

Meðal heimsókna eru:

  • Leshan Giant Buddha, stærsta Búdda-stytta heims sem höggvin er í klett. Hér gefst tækifæri til að kynnast þessu einstaka stórvirki, fornri steinvinnslu og varðveislu merkrar heimsminja.

  • Huanglongxi Ancient Town, sögulegur bær við vatn þar sem hefðbundinn kínverskur arkitektúr, gamlar vatnaleiðir, þröngar götur og lifandi staðbundin menning skapa sérstaka stemningu.

Dagur 8

Do. 9. Sept. 2027

 

Dagur 8

lau. 16. okt. 2027

Pöndur og borgarlíf

Tehús, gömul hverfi og Sichuan-ópera

Um morguninn heimsækjum við hina frægu Chengdu Research Base of Giant Panda Breeding, þar sem fræðst verður um náttúruvernd, skipulag svæðisins og samspil fólks, dýralífs og umhverfis.

Síðar heimsækjum við People’s Park og Kuanzhai Alley, þar á meðal hina sögufrægu Heming Teahouse, þar sem við njótum hefðbundinnar teupplifunar.

Dagskráin veitir góða innsýn í almenningsrými Chengdu, söguleg hverfi og afslappaðan lífsstíl borgarbúa.

Máltíðir: Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður
Hótel: Dorsett Chengdu 4★

Kvölddagskrá

Kínverskt listakvöld

Um kvöldið sjáum við sýningu hjá Shufengyayun Sichuan Opera, með hinni frægu andlitaskiptingu, eldspúandi atriðum og öðrum hefðbundnum Sichuan-listformum.

Dagur 9

Fr. 10. Sept. 2027

 

Dagur 9

sun. 17. okt. 2027

Frjáls dagur

Dagurinn er frjáls til eigin nota og gefst góður tími til að njóta Chengdu á eigin vegum, skoða borgina, versla eða slaka á.

Fyrir þá sem vilja taka þátt í skipulagðri dagskrá verður boðið upp á tvo ólíka valkosti sem fara fram samhliða. Hægt er að velja þann kost sem best hentar áhugasviði hvers og eins.

Máltíðir: Morgunverður; hádegisverður samkvæmt valinni dagskrá
Hótel: Dorsett Chengdu 4★

Valkostur C: Borgarlíf og menning

Frá gömlum hefðum til nútímaborgar

Um morguninn heimsækjum við Wuhou-hofið og Jinli Ancient Street.

Síðdegis verður farið í East Suburb Memory Park, sérstakt menningarhverfi sem hefur verið byggt upp í gömlum iðnaðarbyggingum.

Einnig verður gefinn frjáls tími á svæðinu í kringum Taikoo Li og IFS, þar sem nútíma arkitektúr, verslanir og borgarlíf Chengdu njóta sín.

Verð: 9.700 kr. 

Valkostur D: Golfhringur á Luxehills

Golf og hefðbundin Chengdu-menning

Í stað hefðbundinnar dagskrár er hægt að velja um að spila golf fram að hádegi á 18 holu golfvelli, Luxehills International Country Club.

Síðdegis verður Wuhou-hofið og Jinli Ancient Street heimsótt, þar sem kynnumst sögu Þriggja konungsríkja, hefðbundinni menningu og andrúmslofti gamla Chengdu.

Verð: 49.900 kr.

Dagur 10

mán. 18. okt. 2027

 

Dagur 10

mán. 18. okt. 2027

Flug til Shanghai

Chengdu → Shanghai – Menningararfur og borgarumbreyting

Morgunflug til Shanghai.

Eftir komu heimsækjum við hinn fræga Bund, þar sem sögulegar byggingar við árbakkann segja sögu Shanghai sem alþjóðlegrar verslunarborgar.

Því næst kynnumst við kínversku silkihandverki áður en gengið verður um Xintiandi og Tianzifang, sem eru áhugaverð dæmi um varðveislu eldri byggðar, endurnýtingu bygginga og nútímalegt borgarlíf.

Síðar göngum við um Nanjing Road, eina þekktustu verslunargötu Kína.

Um kvöldið verður velkomukvöldverður á hótelinu.

Máltíðir: Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður
Hótel: Jianguo Hotel Shanghai 4★

Gisting  –  5 nætur

Gisting á 4 ⭐️ hóteli, Jianguo Hotel Shanghai, eða sambærilegt.

  • Tveggja manna herbergi
  • Morgunverðarhlaðborð
  • Ókeypis WiFi
  • Veitingastaðir á hótelinu
  • Innilaug og líkamsrækt
  • Stutt í verslanir og veitingastaði
  • Neðanjarðarlest í næsta nágrenni
  • Góð staðsetning til að skoða Shanghai

Dagur 11

þri. 19. okt. 2027

 

Dagur 11

þri. 19. okt. 2027

Tvær samhliða dagskár

Boðið verður upp á tvær ólíkar dagskrár sem fara fram samhliða.  Hægt er að velja þá dagskrá sem best hentar ykkar áhugasviði.

 

Máltíðir: Morgunverður; hádegisverður eftir valinni dagskrá
Hótel: Jianguo Hotel Shanghai 4★

Valkostur E: Tækni og framtíð

Arkitektúr, menntun og snjallvélmenni

Heimsókn í Tongji University, þar sem boðið verður upp á fyrirlestur tengdan arkitektúr, borgarskipulagi og nútíma hönnun í Kína.

Síðdegis heimsækjum við IRIC Intelligent Robotics Center, þar sem áhersla er lögð á vélmenni, sjálfvirkni, snjallkerfi og þróun háþróaðrar tækni.

Innifalið í verði.

Valkostur F: Saga og arfleifð

Suzhou, klassískir garðar og vatnaborg

Heilsdagsferð til hinnar sögufrægu borgar Suzhou.

Meðal staða sem heimsóttir verða eru:

  • Humble Administrator’s Garden
  • Pingjiang Road Historic District
  • Panmen Scenic Area

Dagskráin veitir innsýn í klassíska kínverska garðhönnun, hefðbundinn arkitektúr vatnaborga og varðveislu sögulegs borgarumhverfis Suzhou.

Innifalið í verði.

Dagur 12

mið. 20. okt. 2027

 

Dagur 12

mið. 20. okt. 2027

Nýja og gamla Shanghai

Við skoðum hinn sérstæða Shikumen-arkitektúr Shanghai og kynnumst varðveislu og endurnýjun hefðbundinna íbúðarhverfa borgarinnar.

Síðdegis heimsækjum við hina stórkostlegu Shanghai Tower, þar sem áhersla verður á byggingu ofurháa skýjakljúfa, burðarvirki og þróun nútíma sjóndeildarhrings Shanghai.

Því næst förum við í Yu Garden og gamla bæ Shanghai, sem skapa áhugaverða andstæðu við hina nútímalegu stórborg.

Máltíðir: Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður
Hótel: Jianguo Hotel Shanghai 4★

Dagur 13

sun. 11. apríl 2027

 

Dagur 13

þri. 3. nóv. 2026

 

Dagur 13

fim. 21. okt. 2027

 

Dagur 13

fim. 21. okt. 2027

Borgarendurnýjun og menningararfur

Um morguninn heimsækjum við fyrrum heimsýningarsvæðið í Shanghai / Shanghai Expo Culture Park.

Þar verður sjónum beint að borgarendurnýjun eftir heimsýninguna, endurnýtingu bygginga, þróun strandsvæða og sjálfbærri hönnun almenningsrýma.

Síðdegis höldum við til Zhujiajiao Ancient Water Town, sem er þekktur fyrir hefðbundinn Jiangnan-arkitektúr, síki, gamlar steinbrýr og vel varðveitta sögulega byggð.

Máltíðir: Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður
Hótel: Jianguo Hotel Shanghai 4★

Dagur 14

fös. 22. okt. 2027

 

Dagur 14

mán. 12. apr. 2027

Frjáls dagur

Dagurinn er frjáls til eigin nota og gefst góður tími til að njóta Shangahai á eigin vegum, skoða borgina, versla eða slaka á.

Fyrir þá sem vilja taka þátt í skipulagðri dagskrá verður boðið upp á tvo ólíka valkosti sem fara fram samhliða. Hægt er að velja þann kost sem best hentar áhugasviði hvers og eins.

Máltíðir: Morgunverður; hádegisverður samkvæmt valinni dagskrá
Hótel: Jianguo Hotel Shanghai 4★

Valkostur G: Hefð og undraheimar

Temenning og sædýrasafn Shanghai

Dagurinn hefst á hefðbundinni teupplifun og te-smökkun.

Síðdegis verður farið í Shanghai Ocean Aquarium, með tíma til að njóta borgarinnar í rólegri takti.

Viðbótarverð :  11.700 kr.

Valkostur H: Golfhringur í Shanghai

Golf og kínversk temenning

Golf að morgni á Shanghai Xiehe Golf Club – 18 holur.

Síðdegis verður boðið upp á hefðbundna teathöfn og te-smökkun.

Viðbótarverð :  47.700 kr.

Ferðin er háð þátttöku að lágmarki 10 manns.

Dagur 15

lau. 23. okt. 2027

 

Dagur 15

lau. 23. okt. 2027

Háhraðalest til Peking

Frjáls morgunn í Shanghai.

Síðar verður ekið á lestarstöðina og farið með einni af hinum frægu háhraðalestum Kína til Peking.

Boðið verður upp á vestrænan nestispakka í lestinni.

Komið verður til Peking síðdegis og ekið á hótelið. Það sem eftir lifir dags er frjálst til hvíldar eða eigin skoðunarferða.

Máltíðir: Morgunverður og hádegisverður
Hótel: Xiyuan Hotel 5★ – Peking

Gisting  –  1 nótt

Gisting á 4-5 ⭐️ hóteli, Xiyuan Hotel eða sambærilegt.

  • Tveggja manna herbergi (reyklaust)
  • Morgunverðarhlaðborð
  • Ókeypis þráðlaust net (WiFi)
  • Loftkæling
  • Dagleg þrif
  • Sundlaug og líkamsrækt
  • Móttaka opin allan sólarhringinn

Athugið að við höldum hótelherberginu fram að brottför um miðnætti aðfaranótt mánudags.

 

Dagur 16

sun. 24. okt. 2027

 

Dagur 16

sun. 24. okt. 2027

Frjáls dagur

Dagurinn er frjáls til eigin nota og gefst góður tími til að njóta Peking á eigin vegum, skoða borgina, versla eða slaka á.

Fyrir þá sem vilja taka þátt í skipulagðri dagskrá verður boðið upp á tvo ólíka valkosti sem fara fram samhliða. Hægt er að velja þann kost sem best hentar áhugasviði hvers og eins.

Máltíðir: Morgunverður; hádegisverður samkvæmt valinni dagskrá
Hótel: Jianguo Hotel Shanghai 4★

Valkostur I: Hefð og undraheimar

Verslunardagur í Peking

Heill dagur til verslunar með heimsóknum á:

  • Silk Street / Xiushui Market
  • Hongqiao Market

Viðbótarverð :  11.700 kr.

Valkostur J: Golf í Peking

Golf, heilsa og hefðbundnar kínverskar lækningar

Golf að morgni á Beijing Orient Tianxing Country Club – 18 holur.

Eftir hádegisverð heimsækjum við Tong Ren Tang, eina þekktustu stofnun Kína á sviði hefðbundinna kínverskra lækninga.

Þar fá þátttakendur innsýn í kínverskar heilsu- og vellíðunarhefðir og hefðbundnar greiningaraðferðir.

Viðbótarverð: 37.700 kr 

Ferðin er háð þátttöku að lágmarki 10 manns.

Lokakvöldverður

Um kvöldið kemur allur hópurinn saman í sérstakan Pekingönd-kveðjukvöldverð á Quanjude Restaurant.

Þar fögnum við lokum ferðarinnar og rifjum upp viðburðaríka daga í Kína.

Eftir kvöldverð verður farið aftur á hótelið áður en ekið er síðar um nóttina út á flugvöll fyrir heimflug.

Dagur 17

mán. 25. okt. 2027

 

Dagur 17

mán. 25. okt. 2027

Brottför frá Kína

Ekið verður á alþjóðaflugvöllinn í Peking og haldið heim á leið til Íslands.

Brottför frá Alþjóðaflugvellinum í Peking með Air China.

Við fljúgum tilbaka til Íslands með stuttri viðkomu í Kaupmannahöfn. 

Flug: Air China 808
Brottför frá Peking: kl. 03:00

Stutt millilending í Kaupmannahöfn. 

Lending í Peking: kl. 11:15 sama dag.

Tímamismunur: -8 klst.(Peking er 8 klst. á eftir Íslandi)

Þar lýkur 17 daga ferð þar sem við höfum kynnst verkfræði, arkitektúr, tækni, sögu, menningu og stórbrotinni borgarþróun Kína

Hótel, fagheimsóknir, innanlandsflug, lestartímar og einstök atriði dagskrár eru háð endanlegri staðfestingu og framboði.

Hagnýtar upplýsingar 

Rýnisferð til Kína 2027 – Arkitektúr, verkfræði og nýsköpun

Hér höfum við tekið saman ýmsar hagnýtar upplýsingar fyrir ferðina til Kína. Nánari upplýsingar um dagskrá, flug, hótel og aðra framkvæmd verða sendar þegar nær dregur brottför.

 
1. Veður og klæðnaður

Október er almennt einn besti tími ársins til ferðalaga í Kína. Veðrið er þó nokkuð mismunandi eftir borgum.

BorgDæmigert hitastig í októberAðstæður
Pekingum 8–19°CSvalt og þurrt haustveður. Morgnar og kvöld geta verið köld.
Chengduum 13–22°CMilt, oft skýjað og möguleiki á lítilsháttar rigningu.
Shanghaium 15–24°CMilt og þægilegt, en rakastig getur verið nokkuð hærra.

Peking er yfirleitt svalasta borgin í ferðinni en Chengdu og Shanghai eru mildari.

Við mælum með að taka með:

  • fatnað sem auðvelt er að klæða sig í lögum, t.d. skyrtur, léttar peysur og miðlungsþykkan jakka

  • léttan regnjakka eða lítið regnhlíf, sérstaklega fyrir Chengdu og Shanghai

  • góða, þægilega og stöðuga gönguskó

  • snyrtilegan en óformlegan fatnað fyrir fyrirtækja- og stofnanaheimsóknir, fyrirlestra og sérstaka kvöldverði

  • lokaða skó fyrir verksmiðju- og iðnaðarheimsóknir þar sem þess kann að vera krafist+

 

2. Göngur og ferðahraði

Dagskráin er fjölbreytt og virk en jafnframt lögð áhersla á að ferðin sé þægileg. Suma daga þarf þó að gera ráð fyrir nokkurri göngu, meðal annars í Forboðnu borginni, við Kínamúrinn, í Sumarhöllinni, við Dujiangyan-áveitukerfið og í eldri hverfum Shanghai.

Við Kínamúrinn eru víða brattar og ójafnar tröppur. Hver og einn gengur eins langt og honum hentar og engin krafa er um að allur hópurinn fari sömu leið eða haldi sama hraða.

Við sumar fag- og fyrirtækjaheimsóknir verður hópnum hugsanlega skipt í minni hópa til að gera heimsóknirnar þægilegri og skilvirkari.

Ef þátttakendur hafa skerta hreyfigetu eða aðrar þarfir sem geta haft áhrif á þátttöku í dagskránni biðjum við um að VIA fái upplýsingar um það með góðum fyrirvara, svo hægt sé að kanna mögulegar lausnir.

 

3. Fagleg dagskrá og heimsóknir

Eitt af meginmarkmiðum ferðarinnar er að kynnast bæði sögulegu og nútímalegu Kína, með sérstakri áherslu á arkitektúr, verkfræði, innviði, borgarþróun, sjálfbærni og hátækniframleiðslu.

Meðal þess sem gert er ráð fyrir í faglegri dagskrá er:

  • Borgarskipulagssýning Peking – þróun borgarinnar, arkitektúr, skipulag og umbreyting Peking.

  • Dujiangyan-áveitukerfið – meira en 2.000 ára gamalt meistaraverk kínverskrar vatnsverkfræði og sjálfbærrar vatnsstjórnunar.

  • West Village í Chengdu – nútímaarkitektúr eftir Liu Jiakun og áhugavert samspil almenningsrýma og samfélags.

  • Chengdu Science Fiction Museum – framúrstefnuleg bygging hönnuð af Zaha Hadid Architects.

  • Heimsókn tengd snjallframleiðslu – vélmenni, sjálfvirkni, Industry 4.0 og framtíðarlausnir í samgöngum.

  • Tongji-háskóli – fagleg kynning og samskipti á sviði arkitektúrs og borgarskipulags.

  • Intelligent Robotics Centre í Shanghai – vélmenni, sjálfvirkni og snjallkerfi.

  • Shanghai Tower – ein hæsta bygging heims, burðarvirki hennar, verkfræði og nútímalegt borgarlandslag Shanghai.

  • Shikumen, Xintiandi og Tianzifang – varðveisla eldri byggðar, endurnýting mannvirkja og endurnýjun borgarhverfa.

  • Háhraðalestir Kína – tækifæri til að upplifa umfang og skilvirkni hins gríðarlega háhraðalestarkerfis landsins.

 

Umgengni í fagheimsóknum

Háskólar, verksmiðjur og tæknifyrirtæki geta haft sérstakar reglur fyrir gesti. Þátttakendur eru því beðnir um að:

  • hafa vegabréf eða önnur skilríki meðferðis þegar þess er óskað

  • fylgja fyrirmælum gestgjafa og fararstjóra

  • spyrja áður en teknar eru ljósmyndir eða myndbönd inni á vinnusvæðum

  • virða bann við myndatöku á lokuðum framleiðslusvæðum, búnaði eða tæknilegum gögnum

  • mæta í viðeigandi skóm og fatnaði í iðnaðarheimsóknir

  • mæta stundvíslega þar sem margar fagheimsóknir eru bundnar við ákveðna tímaramma

Endanlegar fagheimsóknir eru háðar samþykki viðkomandi fyrirtækja og stofnana og geta því tekið breytingum.

 

4. Menning, siðir og staðbundin upplifun

Kínverjar taka almennt vel á móti erlendum gestum og með einfaldri tillitssemi verður upplifunin enn ánægjulegri.

Á söfnum og menningarstöðum:
Virðið merkingar, lokuð svæði og reglur um ljósmyndun, sérstaklega í hofum, söfnum og sögulegum byggingum.

Við pöndustöðina:
Fylgið fyrirmælum starfsfólks og ekki má trufla eða gefa dýrunum að borða.

Temenning:
Í Heming-tehúsinu í Chengdu gefst tækifæri til að kynnast hinni afslöppuðu og félagslegu temenningu borgarinnar.

Máltíðir:
Kínverskur matur er gjarnan borinn fram þannig að margir réttir eru settir á borðið og gestir deila þeim. Maturinn í Chengdu getur verið sterkur en matargerð Peking og Shanghai hefur hvor sinn sérstaka karakter.

Vinsamlegast látið VIA vita með góðum fyrirvara um fæðuofnæmi, grænmetisfæði eða aðrar sérstakar matarþarfir.

Í ferðinni verða einnig sérstakar matarupplifanir, meðal annars Pekingönd og máltíðir á völdum veitingastöðum.

 

5. Peningar og greiðslur

Gjaldmiðill Kína er kínverskt júan / renminbi (CNY/RMB).

Snjallsímagreiðslur eru mjög útbreiddar í Kína. Erlendir ferðamenn geta tengt ýmis alþjóðleg greiðslukort, meðal annars Visa og Mastercard, við greiðsluþjónustur á borð við Alipay og WeChat Pay.

Við mælum með að:

  • hlaða niður Alipay og/eða WeChat fyrir brottför

  • setja greiðslumáta upp og prófa hann áður en farið er

  • hafa alþjóðlegt kredit- eða debetkort meðferðis

  • hafa einnig lítilsháttar reiðufé í RMB til vara

Nánari leiðbeiningar um greiðslur í Kína verða sendar þegar nær dregur ferð.

 

6. Símar, rafmagn og tækni

Í Kína er 220 volta rafmagn. Innstungur eru aðrar en á Íslandi og í Danmörku og því mælum við með að taka með alhliða ferðamillistykki.

Einnig er gott að hafa með:

  • farsíma með reiki eða hentugt SIM/eSIM fyrir Kína

  • vararafhlöðu (power bank)

  • ferðaskjöl vistuð í símanum þannig að hægt sé að nálgast þau án nettengingar

  • þýðingarforrit ef óskað er

  • símanúmer fararstjóra og staðbundinna leiðsögumanna vistað í símanum

Við mælum með að þátttakendur kanni hjá símafyrirtæki sínu hvernig reiki og gagnanotkun virkar í meginlandi Kína áður en lagt er af stað.

 

7. Heilsa, lyf og ferðatryggingar

Takið með nægilegt magn af reglulegum lyfjum fyrir alla ferðina. Best er að lyfin séu í upprunalegum umbúðum og að hafa meðferðis lyfseðil eða önnur læknisfræðileg gögn ef þess er þörf.

Við mælum eindregið með góðri ferðatryggingu sem nær meðal annars til lækniskostnaðar, forfalla, farangurs og persónulegra muna.

Drykkjarvatn á flöskum verður aðgengilegt í ferðinni. Mikilvægt er að drekka reglulega, sérstaklega þá daga sem dagskráin felur í sér meiri göngu.

 

8. Vegabréf og reglur um komu til Kína

Þátttakendur þurfa að tryggja að vegabréf þeirra uppfylli þær reglur sem gilda þegar ferðin fer fram.

Mikilvægt: Reglur Kína um vegabréfsáritanir og komu erlendra ferðamanna geta breyst fyrir október 2027.

Núverandi undanþága frá vegabréfsáritun fyrir handhafa almennra íslenskra og danskra vegabréfa hefur aðeins verið staðfest til 31. desember 2026. Reglur sem gilda um ferðina okkar í október 2027 verða því staðfestar síðar.

VIA mun fylgjast með þróuninni og senda þátttakendum skýrar upplýsingar um vegabréf og mögulega vegabréfsáritun þegar nær dregur ferð.

 

9. Neyðarnúmer

Neyðarnúmer í Kína

  • Lögregla: 110

  • Slökkvilið: 119

  • Sjúkrabíll / neyðaraðstoð: 120

Númerin gilda um allt Kína.

Danska sendiráðið í Peking
Sími: +86 10 8532 9900

Íslenska sendiráðið í Peking
Sími: +86 10 8531 6900

Símanúmer staðbundinna leiðsögumanna og neyðartengiliða CTG/CITS verða send þátttakendum þegar nær dregur brottför.

 

10. Tillaga að pökkunarlista

  • Vegabréf og ferðaskjöl

  • Upplýsingar um ferðatryggingu

  • Regluleg lyf

  • Góðir og þægilegir gönguskór

  • Létt peysa og fatnaður sem hægt er að klæða sig í lögum

  • Miðlungsþykkur jakki fyrir Peking

  • Léttur regnjakki eða lítið regnhlíf

  • Snyrtilegur fatnaður fyrir fagheimsóknir og sérstaka kvöldverði

  • Alhliða rafmagnsmillistykki

  • Farsími og hleðslutæki

  • Vararafhlaða

  • Kredit-/debetkort og lítilsháttar reiðufé í RMB

  • Persónulegar snyrtivörur

  • Lítill dagpoki fyrir dagsferðir

Við hlökkum til að ferðast með ykkur til Kína og upplifa saman einstaka blöndu sögu, menningar, arkitektúrs, verkfræði og nýsköpunar.

Fararstjórar

 

Staðarleiðsögumenn

Reyndir staðarleiðsögumenn frá traustum samstarfsaðilum okkar munu taka á móti hópnum, veita faglega og fróðlega leiðsögn á áfangastöðunum og tryggja að við upplifum bæði menningu og sögu á dýpri hátt. Þeir starfa í nánu samstarfi við fararstjóra okkar til að tryggja ánægjulega ferð.

Verð og greiðsluskilmálar

Verð á mann er 6xx.000 kr., miðað við gistinu í tveggja manna herbergi.

Staðfestingargjald 20% (af grunnverði), að upphæð 1xx.000 kr. skal greiðast innan þriggja vikna frá skráningu.

Milligreiðsla 50%, að upphæð 3xx.000 kr., skal greiðast í síðasta lagi 1. júlí 2027.

Lokagreiðsla 30%, að upphæð 1xx.000 kr., skal greiðast í síðasta lagi 1. sept. 2027.

Einstaklingsherbergi er í boði gegn 1xx.000 kr. aukagjaldi.

Verð ferðarinnar er birt í íslenskum krónum (ISK). Greiðsla fer fram í evrum (EUR) samkvæmt opinberu gengi á greiðsludegi.

VIA um veröld víða

 
Innifalið

✅ Flug með Air China. Stutt millilending í Kaupmannahöfn
✅ Innanlandsflug skv. dagskrá
✅ Rútuferðir og lestarferðir skv. dagskrá

✅ Gisting á vel völdum 4-5 stjörnu hótelum

✅ Morgunverður alla daga 
✅ Hádegisverðir, þar sem það er tekið fram 
✅ Kvöldverðir, þar sem það er tekið fram 

✅ Fararstjórar með í för frá Íslandi og enskumælandi staðarleiðsögumenn í öllum rútum
✅ Aðgangur að söfnum, hofum, listigörðum og öðrum stöðum skv. dagskrá
✅ Dagsferðir skv. skipulagi  
✅ Skattar og þjónustugjöld

 

Athugið að staðarleiðsögn fer fram á ensku. Íslenskir fararstjórar eru til staðar fyrir aðstoð og útskýringar eftir þörfum, en ekki er um beina eða samfellda túlkun að ræða.

Valfrjálsar upplifanir

Valkostur A í Peking 

Arkitektúr, borgarþróun og snjallframleiðsla

Innifalið í verði

Valkostur B í Peking 
Heimsminjar, verkfræði og menning
Innifalið í verði
Valkostur C í Chengdu
Borgarlíf og menning
Verð 11.700 kr. 
Valkostur D í Chengdu

Golfhringur á Luxehills

Verð kr 49.900

Valkostur E í Shanghai
Tækni og framtíð
Innifalið í verði
Valkostur F í Shanghai

Saga og arfleið

Verð kr 49.900

Valkostur G í Shanghai
Hefð og undraheimar
Verð 11.700 kr. 
Valkostur H í Shanghai

Golfhringur í Shanghai

Verð kr 47.700

Valkostur I í Peking
Golf í Peking
Verð 37.700 kr
 
Ekki innifalið

Valfrjálsar upplifanir merktar C, D, F, G, H, og I

Einkakostnaður, s.s. drykkir, minjagripir mm.

Forfallatryggingar (mælt með)

Máltíðir sem ekki eru taldar upp í innifalið

Drykkjarföng og persónuleg útgjöld

Farangurskostnaður yfir leyfileg mörk

Farangursþjónusta á hótelum

 

Upplifun farþega okkar

Japan og S-Kórea.
Gamall draumur minn að fara til Japans rættist loksins. Ég var svo heppin að velja réttu ferðaskrifstofuna sem varð til þess að japansferðin mín fór langt fram úr væntingum. Það stóðst allt fullkomlega og meira en það. Í kaupbæti fékk ég 4 nætur í s-Koreu sem ég hefði alls ekki vilja missa af. Get mælt heilshugar með VIA travel. Mun fylgjast vel með hvaða spennandi ferðir verða í boði í náinni framtíð.

María Elíasdóttir

Ferð til S-Kóreu og Japans vorið 2026
Ferðin til S-Kóreu og Japans vorið 2026 var í alla staði mjög svo vel heppnuð. Stóð fullkomlega undir væntingum. Bæði íslensku fararstjórarnir, þeir Pétur og Bjarni og innlendu leiðsögumennirnir (sá kóreanski og þeir japönsku) góðir og fróðir.
Ferðamátar allir þægilegir (flug, hraðlestir og rútur)
Gisting til fyrirmyndar og matur sem fylgdi ferðapakkanum góður og fjölbreyttur.
Frábær ferð í alla staði sem hægt er að mæla með
Haukur Vald. og Hrefna Sig..

Hrefna Sigurðardóttir

Ferð okkar með Via Travel til S-Kóreu og Japan var afar vel skipulögð og tókst að sama skapi vel í framkvæmd. Hittum t.d. á blómatíma Kirsuberjatrjánna. Tíminn var vel nýttur án þess að vera of hratt keyrt. Leiðsögn var í góðu lagi og hópurinn hæfilega stór. Höfum víða farið en þetta er með betri ferðum sem við höfum farið. Áslaug og Sveinn.

Sveinn Hannesson

Við hjónin fórum með VIA Travel til Suður Kóreu og Japans. 17 daga ferð sem var mjög vel skipulögð öll dagskrá stóðst upp á 10. Íslenskur fararstjóri, Pétur Eggerz, var frábær og eins innlendir fararstjórar góðir. Við mælum hiklaust með VIA travel.
Böðvar Örn og Gestný

Böðvar Örn Sigurjónsson

Stórkostleg ferð til Seúl og Japan
Fórum í stórkostlega ferð með viaworld.travel til Seúl og Japan. Meiri háttar upplifun í vel skipulagðri ferð með góðri fararstjórn. Ferðin og fyrirtækið til fyrirmyndar.

Birgir Finnbogason

Við fórum til Suður Kóreu og Japan…
Við fórum til Suður Kóreu og Japan 17mars -2.apríl. 2026
Mjög ánægð með skipulaginguna og kom sérstaklega kom vel út að byrja í Suður -Kóreu.
Mikil upplifun að koma til Japan.
Alveg ógleymanleg ferð, takk fyrir okkur.
Magga og Andri.

Margrét Guðmundsóttir

Egyptaland - Tyrkland.
Fórum í ferð með via world til Egyptalands og Tyrklands, í stuttu máli þá stóðst ferðin allar okkar væntingar, skoðað allt það merkilegasta, meðal annars Píramídana, markaði, hof, dal konunganna, sigldum niður Nil, syntum í Nil og fl, fararstjórin var frábær, ekki síður innlendir leiðsögumenn, frábær hótel og fl.
Mæli eindregið með þessari ferðaskrifstofu og takk fyrir yndislega og fræðandi ferð, með góðu og skemmtilegu fólki. Einar Þór Einarsson

Einar Þór Einarsson

Þetta var toppferð
Þetta var toppferð. Stóðst allt sem um var talað skoðunarferðir, hótel og leiðsögumenn. Skilur eftir góðar minningar

Högni Gunnarsson

Istanbúl og Egyptaland í september. Var að koma úr stórkostlegu ferðalagi…
Var að koma úr stórkostlegu ferðalagi með góðum hópi á vegum Via World Travel til Istanbul og Egyptalands, þar sem fornir og ævafornir menningarheimar voru teknir beint í æð. Heimsókn í menningarminjarnar í Egyptalandi eru einstök upplifun og Istanbul er töfrandi borg. Allt utanumhald mjög skilvirkt og gott og öll leiðsögn um hin fornu mannvirki mjög vönduð og fræðandi. Öll ferðin var ævintýri líkast.

Guðrún Guðmundsdóttir

En super oplevelse
En super oplevelse, som blev gjort mulig ved vores guide Bjarni's store viden og indsigt i Islands historie, geografi og sprog, som blev givet og præsenteret med at varmt og humoristisk glimt i øjet. Kan varmt anbefales!

Jesper

Trip to Island
Our trip to Iceland with 'Via Wold' was a fantastic experience.

Iceland offers very rugged and beautiful nature and at the same time a very friendly people.

Thanks for an experience of a lifetime.

Niels Toftensberg

Perfect stay at Iceland⭐️⭐️⭐️⭐️⭐️
We had as a group the best and most flexible and competent guide in Bjarni.
We went to see the most beautyfull sights and things, and places on Iceland.
Our stay on Reykavik Natura Berjay hotel was a wonderfull place to stay 10-15 min. From Reykavik centrum. But perfectly placed becauce we went on bustrips every day.

Pia Løvholt

Alles sehr gut organisiert
Alles sehr gut organisiert und ich fühlte mich durch Brjani immer gut informiert und unterhalten.

Elisabeth Gerdes

Rundreise durch Island im Oktober 2025
Unsere Rundreise durch Island war einfach traumhaft - ein Erlebnis, das wir nie vergessen werden. Die Natur hat uns mit ihrer wilden Schönheit tief beeindruckt: tosende Wasserfälle, endlose Lavafelder, Gletscher und heiße Quellen - jedes Ziel war ein neues Staunen.
Was die Reise aber wirklich besonders gemacht hat, war unser wunderbarer Guide. Mit viel Wissen über und Begeisterung für das Land, einem tollen Gespür für die Gruppe und einem ansteckenden Humor hat er uns nicht nur sicher durchs Land geführt, sondern auch viele besondere Momente geschenkt.
Diese Reise war ein echtes Herzensabenteuer - beeindruckend und voller schöner Erinnerungen..

Dorit Eckhoff

Wunderschöne Reise in Island
Mit unserer Reisegruppe erlebten wir eine wundervolle Zeit auf Island. Unser Guide Bjarni brachte uns seine Heimat mit seinem Wissen über Land und Leute, in seiner einzigartigen Art und Weise näher. Wir durften Wale beobachten, Nordlichter sehen und die wunderschönen Wasserfälle sehen. Vielen Dank dafür.

Anja Marischen

Islandrundreise
Wir konnten mit unserem Reiseleiter Bjarni Meyer Einarsson eine wunderschöne 10-tägige Rundreise auf Island erleben. Die Reise führte uns zu den vielen atemberaubenden Naturschönheiten des Landes. Dazu gehörten die faszinierenden Wasserfälle, die riesigen Gletscher, die Lagunen, Vulkane und Geysire sowie als besonderes Highlight die Beobachtung der Wale. Der Reiseplan war optimal vorbereitet und doch blieb Platz für individuelle Wünsche unserer Reisegruppe.
Bjarni hat uns sein Land mit so viel Humor, Wissen und Herz nähergebracht - das werden wir nicht vergessen.
Klaus und Andrea Muhle aus Visbek

Andrea und Klaus Muhle

Island Oktober 2025
In 10 Tagen eine wunderbare Reise rund um Island gemacht. Mit allem was dieses Land ausmacht: Wasserfälle, Gletscher, Geysire und Nordlichter. Sogar Wale durften wir sehen. Danke an Bjarne, dass er so viel möglich gemacht hat und dazu so viele Informationen und Geschichten geliefert hat.

Maria Trumme

Island-Rundreise…
Unsere Islandreise mit einer Reisegruppe aus Deutschland war ganz fantastisch. Unser Guide Bjarni hat alles perfekt vorbereitet und uns an die schönsten Stellen Islands gebracht. Seine Erläuterungen zu Land und Leuten, geschichtlichen Hintergründen und lustigen Geschichten hat uns gezeigt, dass hier ein echter "Kenner" Islands am Werk ist. Ein durch und durch sympathischer Reiseführer. Alles hat wunderbar geklappt und auch die Unterkünfte waren guter Standard. Vielen lieben Dank !

Ludger Tönjes

Super god service
Super god service. Alt fungerede perfekt.



Ole Henriksen

Skøn natur oplevelse på Island
Turen var vel tilrettelagt og godt arrangeret. Vi fik set de vigtigste naturoplevelser på kort tid. Guiden har en stor viden om øen.


Margot Madsen-Ovesen

Travel to Island med via World
Recently I was 3,5 day in Island with via World travel agency joining a small group of 7 persons.
Everything was so well organized by the owner Bjarni Meyer Einarsson. Thingvellir National Park with the first parliament dating back to the vikings Geysir, Gullfoss waterfall, lagoons, vulcano and earthquake impact, whale observing... the list is even longer! Combined with a profound knowledge of the nature as well as a lot of historical data I can highly recommend via World travel for a very proff organizing and spiced with the personal touch and involvement of the owner. The other members of the tour having same great experience.

Hans Siegfredsen

Sjá allar umsagnir um  VIA Travel 

Skráning: Rýnisferð til Kína 2027

Ath:
MIkilvægt er að vegabréfsupplýsingar séu skráðar hárrétt.
Breytingar geta leitt til aukakostnaðar.

Farþegaupplýsingar

Upplýsingar fleiri farþega

Fyllið aðeins út ef fleiri en einn farþegi.

Gisting

Séróskir

Athugasemdir

Staðfesting


Vegabréfsáritun

Það er ekki gerð krafa um vegabréfsáritun þegar ferðast er Kína. 

Bólusetningar

Smitsjúkdómar eru mismunandi eftir löndum og heimsálfum. Bólusetningar fara eftir hvað þú ert að fara að gera og hvert þú ert að fara. Einnig eru smitsjúkdómar mismunandi eftir árum og tímabilum og í raun síbreytanlegir.

Það er ekki gerð krafa um bólusetningar þegar ferðast er til Kína.

Við leggjum í hann eftir

  • 00daga
  • 00klukkutíma
  • 00mínútur

Ferðir um allan heim

Við skipuleggjum sérsniðnar ferðir fyrir einstaklinga, hópa, félög og fyrirtæki

– láttu drauminn verða að veruleika.

Áttu þér draumaferð?

Segið okkur hvert ykkur langar að fara!

Við gerum tilboð í ferðir til fjarlægra landa. 

Lágmark 10 manns, en minnst 4 manns í safaríferð.

Við svörum innan 24 tíma!

Nach oben scrollen