VOR Í LOFTI | SAKURA 2027

桜 Sakura – Japan

13 dagar | 2. - 14. apríl 2027

Uppgötvaðu Japan þegar vorið er í algleymingi. Menning, náttúra og einstakar upplifanir frá Hiroshima til Tokyo.

Osaka • Hiroshima • Miyajima • Kyoto • Hakone • Tokyo

Verð frá 997.000 kr.

m.v. gistingu í tveggja manna herbergi

桜 Sakura - Japan

Kirsuberjablómatíminn er einn fallegasti árstími Austur-Asíu. Þá skarta garðar, hof og götur bleikum og hvítum blómum sem skapa einstaka stemningu.

Í þessari ferð kynnumst við fjölbreyttri náttúru, ríkri menningu og einstökum borgum Japans á einum fallegasta árstíma ársins. Við heimsækjum friðsæl hof og fallega garða í Kyoto, iðandi stórborgarlíf í Osaka og Tókýó og fjölmarga aðra staði sem veita innsýn í sögu, hefðir og nútímalíf Japans.

Vandað er til dagskrár, gististaða og þjónustu. Íslenskur fararstjóri tekur á móti hópnum í Osaka og fylgir honum þaðan út ferðina. Þannig geta þátttakendur notið ferðarinnar af öryggi og kynnst Japan á þægilegan og eftirminnilegan hátt.

Hápunktar ferðarinnar


Osaka - matarmenning

Miyajima - helga eyjan

Hiroshima – friður og fegurð

Kyoto – hjarta Japans

Hakone – náttúra og slökun

Tokyo – ys og þys stórborgar

Nokkrar myndir frá síðustu ferð

Síðasta ferð okkar til Japans í mars 2026 var mjög vel heppnuð eins og sjá má af þeim umsögnum sem VIA Travel hefur fengið á Trustpilot.  Við leyfum nokkrum myndum úr ferðinni að fylgja hér að neðan.  Þær gefa skemmtilega innsýn í fjölbreytt ferðalag um áhugaverðar slóðir í Japan.

Skoða ferðalýsingu

Dagur 1

fös. 2. apríl. 2027

 

Dagur 1

fös. 2. apr. 2027

Brottför og ævintýrið hefst

Brottför frá Keflavíkurflugvelli með Finnair.

Við fljúgum til Helsinki og þaðan áfram til Osaka með næturflugi. Framundan eru dagar fullir af ævintýrum og spennandi upplifunum.

Flug: Finnair AY992 og AY067
Brottför frá Keflavík: kl. 10:00 

Millilending í Helsinki: kl. 15:00–17:35
Lending í Osaka: kl. 12:35 næsta dag. 

Tímamismunur: +9 klst.(Japan er 9 klst. á undan Íslandi)

Máltíðir innifaldar:
● Morgunverður í flugvélinni

Dagur 2

lau. 3. apríl 2027

 

Dagur 2

lau. 3. apr. 2027

Osaka – fyrstu kynni af Japan

Lending í Osaka kl. 12:35. (Kl. 03:35 á ísl. tíma)

Pétur Eggerz fararstjóri ásamt enskumælandi staðarleiðsögumanni tekur á móti okkur á flugvellinum.

Að loknum akstri á hótel gefst tími til að koma sér fyrir áður en við leggjum af stað í létta kynnisferð um miðborgina.

Við heimsækjum hið líflega Dotonbori-hverfi sem er þekkt fyrir litrík neonljós, skemmtilega stemningu og fjölbreytt úrval veitingastaða og verslana. Þar gefst kostur á að kynnast japanskri götumenningu og smakka á staðbundnum réttum.

Þaðan göngum við um Shinsaibashi, eina vinsælustu verslunargötu Osaka, þar sem hægt er að njóta mannlífsins eða versla.

Um kvöldið snæðum við sameiginlegan kvöldverð.

Máltíðir innifaldar:
● Morgunverður
 
 

Gisting  –  1 nótt

Gisting á 5 ⭐️ hóteli, Imperial Hotel Osaka, eða sambærilegt.

  • Superior tveggja manna herbergi (reyklaust)
  • Morgunverðarhlaðborð
  • Ókeypis þráðlaust net (WiFi)
  • Loftkæling
  • Dagleg þrif
  • Móttaka opin allan sólarhringinn

Dagur 3

sun. 4. apríl 2027

 

Dagur 3

sun. 4. apr. 2027

Miyajima-eyja, helgur staður og náttúra

Eftir morgunverð förum við með háhraðalest til Hiroshima. Við höldum áfram þaðan stuttan spöl með lest og tökum ferju yfir til hinnar helgu Miyajima-eyju, sem er talin ein af þremur fegurstu náttúruperlum Japans. Við komu blasir við okkur eitt af þekktustu kennileitum landsins – hið fljótandi torii-hlið sem stendur úti í sjó og markar innganginn að Itsukushima-hofinu. Þetta rauða hlið virðist svífa á yfirborði vatnsins við flóð og skapar ógleymanlegt sjónarspil.

Við göngum um eyjuna og skoðum Itsukushima-hofið, sem stendur á súlum í sjónum og er tileinkað gyðju hafsins. Umhverfið er kyrrlátt og andrúmsloftið fullt af helgri ró, þar sem náttúran og trúarleg menning renna saman í fullkomnu jafnvægi.

Við skoðum m.a. fimmhæða timburstrýtu (padgoda) og göngum að Daisho-hofinu.

Eftir hádegi gefst kostur á að ganga upp fallega skógi vaxna stíga, eða taka kláf upp á Misen-fjall, hæsta tind eyjunnar. Á leiðinni opnast stórbrotin útsýni yfir Seto-innhafið og nærliggjandi eyjar. 

Máltíðir innifaldar:
● Morgunverður
 
 

Gisting  –  1 nótt

Gisting á 4 ⭐️ hóteli, Hótel Intergate Hiroshima, eða sambærilegt.

  • Superior tveggja manna herbergi (reyklaust)
  • Morgunverðarhlaðborð
  • Ókeypis þráðlaust net (WiFi)
  • Loftkæling
  • Dagleg þrif
  • Móttaka opin allan sólarhringinn

Dagur 4

mán. 5. apríl 2027

 

Dagur 4

mán. 5. apr. 2027

Hiroshima og Kyoto

Við hefjum daginn á skoðunarferð um Hiroshima, borg sem markaði tímamót í heimsögunni með kjarnorkusprengjunni árið 1945, en saga borgarinnar nær aftur til 13. aldar. Í dag er borgin tákn um frið og endurreisn. 
 

Við heimsækjum sögufræga staði eins og Friðargarðinn og Friðarsafnið, þar sem við fáum dýpri innsýn í atburðina sem breyttu heimsmyndinni fyrir rúmum 80 árum.

Við yfirgefum Hiroshima um hádegi og höldum með háhraðalest til Kyoto þar sem við gistum næstu fjórar nætur. Ferðin tekur um það bil 2 klst.

Athugið: Ferðatöskurnar verða sendar áfram til næsta gististaðar, svo við berum aðeins með okkur handfarangur.

Kyoto, önnur höfuðborg Japans, upplifði blómatíma listar og menningar fram á 12. öld og er gjarnan kölluð vagga japanskrar menningar. Þó borgin hafi orðið fyrir áföllum í stríðum, slapp hún sem með kraftaverki við eyðileggingu í seinni heimsstyrjöldinni og varðveitir þannig dýrmætan menningararf.

Eftir komuna til Kyoto höldum við áfram með háhraðalestinni til Kyoto og förum beint í Gion-hverfið, hið forna samúræa- og geisha-hverfi og virðum það fyrir okkur.

Við njótum sameignilegs kvöldverðar í Gion hverfinu í góðum félagsskap. 

Máltíðir innifaldar:
● Morgunverður
● Kvöldverður
 
 

Gisting  –  4 nætur

Gisting á 4 ⭐️ hóteli, Richmond Premier Kyoto Ekimae, eða sambærilegt.

  • Standard Double Room – Inside, reyklaust
  • Morgunverðarhlaðborð
  • Ókeypis þráðlaust net (WiFi)
  • Hitastýring í herbergi (loftkæling)
  • Dagleg þrif
  • Þvotta- og fatahreinsunarþjónusta
  • Móttaka opin allan sólarhringinn

Dagur 5

þri. 6. apríl 2027

 

Dagur 5

þri. 6. apr. 2027

Hof og helgidómar í Kyoto

 

Að morgni dags heimsækjum við Fushimi Inari Taisha, shinto-hofið sem er helgað refaguðinum Inari, verndara hrísgrjónaræktar og kaupmanna.

Þúsundir appelsínugulra torii-hliða mynda langan og krókóttan göngustíg sem liðast upp fjallið – draumur ljósmyndara og skemmtileg ferðaupplifun. Gönguleiðin er aðgengileg í styttri útgáfu fyrir þás sem vilja fara rólega yfir. 

Að loknu hádegishléi förum við vestur yfir Kyoto til Arashiyama, þar sem við skoðum Tenryū-ji, Zen-búddistahof sem var stofnað á 14. öld og er skráð á heimsminjaskrá UNESCO. Þar er fallegur einnig garður með vatni og útsýni til fjalla. 

Sanjusangendo-hofið, þar sem má finna ótrúlegt safn af 1.001 gylltum Kannon-styttum í mannsstærð – allar frá 12. og 13. öld. Stytturnar eru mikið sjónarspil sem vekja djúpa lotningu og aðdáun.

Eftir heimsókn í Sanjusangendo-hofið förum við til Kiyomizu-dera, búddistahofs frá 8. öld sem stendur á háum viðarsúlum með útsýni yfir borgina. Þar er hægt að ganga inn í hofið og njóta glæsilegs útsýnis frá útsýnispalli sem er einn frægasti útsýnispallur Kyoto.

Að göngum um Higashiyama-hverfið, þar sem finna má gömul verslunarhús, smáverslanir með minjagripi, te-hús og lítil veitingahús.

Máltíðir innifaldar:
● Morgunverður
● Hádegisverður
 

Dagur 6

mið. 7. apríl 2027

 

Dagur 6

mið. 7. apr. 2027

Gull, kastalar og teathöfn

 

Við hefjum daginn með göngutúr um Arashiyama bambusskóginn, þar sem háttvaxnir stilkar allt að 20 metrar á hæð hreyfast mjúklega í vindi og mynda einstaka birtu- og hljóðupplifun. 

Við höldum þessu næst til Kinkaku-ji, Gyllta hofsins, sem er eitt þekktasta kennileiti Kyoto. Hofið var upphaflega reist sem dvalarstaður fyrir samúræjahöfðingja á 14. öld en var síðar gert að zen-búddistahofi. Það er klætt blaðagulli og speglast í lítilli tjörn með garði sem endurspeglar japanska hönnunarhefð.

Eftir hádegisverð skoðum við  miðborg Kyoto.

Vi göngum um Nishiki-markaðinn, sem hefur verið starfandi í yfir 400 ár og býður fjölbreytt úrval japanskra matvæla, hráefna og sérvöru.

Síðdegis er boðið upp á japanska teathöfn. Þar lærum við um hefðina á bak við teathafnir og fáum að smakka matcha-te í rólegu umhverfi.

Kvöldið er frjálst.

Máltíðir innifaldar:
● Morgunverður
● Hádegisverður

Dagur 7

fim. 8. apríl 2027

 

Dagur 7

fim 8. apr. 2027

Frjáls dagur

Dagurinn er frjáls og gefur tækifæri til að njóta Kyoto á eigin vegum. Borgin er þekkt fyrir fallega garða, hefðbundin hof, notaleg kaffihús, verslunargötur og einstaka matarmenningu. Þetta er kjörið tækifæri til að rölta um gömlu hverfin, heimsækja lítil handverksverkstæði eða einfaldlega njóta andrúmsloftsins.

Þeir sem vilja geta einnig tekið þátt í valfrjálsum upplifunum, svo sem:

  • Zen-hugleiðslu og garðheimsókn, þar sem kynnt er japönsk hugleiðsluhefð og fallegir Zen-garðar.
  • Japönsku matreiðslunámskeiði, þar sem þátttakendur læra að útbúa hefðbundna japanska rétti.
  • Valfrjálsri dagsferð til Osaka, einnar líflegustu borgar Japans, þar sem meðal annars er heimsótt Osaka-kastalinn og hið þekkta Dōtonbori-hverfi.

.

● Morgunverður

Dagur 8

fös. 9. apríl. 2027

 

Dagur 8

fös. 9. apr. 2027

Frá Kyoto til Hakone

Við kveðjum Kyoto – hina fornu höfuðborg keisaranna – og tökum Shinkansen háhraðalestina í átt til Mishima, svæðis þar sem náttúran tekur völdin og Fuji-fjall blasir við sjóndeildarhringinn ef skyggni leyfir.  Fuji-fjall er sjáanlegt um 80 daga á ári.

Við heimsækjum Pola listasafnið i Hakone. Safnið var opnað árið 2002 og er hluti af Fuji-Hakone-Izu þjóðgarðinum.

Það hýsir safn yfir 9.500 listaverka, sem fyrrverandi forstjóri Pola snyrtivörufyrirtækisins safnaði, þar á meðal mörg verk frá franska impressjónismanum og listamönnum tengdum École de Paris.

Bygging safnsins hefur vakið mikla athygli fyrir einstaka hönnun. Árið 2013 var bætt við „Pola listasafns náttúrustígnum“, 670 metra gönguleið innan safnsvæðisins, sem gefur gestum kost á að njóta náttúrunnar í Fuji-Hakone-Izu þjóðgarðinum á sérstakan hátt.

Eftir heimsókn á safnið höldum við til hótelsins. Við verðum komin tímanlega og náum vonandi að njóta þess að baða okkur í onsen, sem eru í raun heitu pottar þeirra Japana.

Máltíðir innifaldar:

● Morgunverður
● Kvöldverður
 

Gisting  –  1 nótt

Gisting á spennandi 4 ⭐️ Onsenhóteli, Hoshino Resorts KAI Anjin eða sambærilegt.

  • Herbergi 39 fermetrar að stærð,  reyklaust, með sjávarútsýni
  • Morgunverðu
  • Þráðlaust net (WiFi)
  • Loftkæling
  • Garður

Dagur 9

lau. 10. apríl 2027

 

Dagur 9

lau. 10. apr. 2027

Útilistasafn, samúrajar og búdda

Við höldum í átt til Hakone, sem er þekkt fyrir jarðhitasvæði og náttúrufegurð.

Við hefjum daginn á að heimsækja Hakone útilistasafnið, sem var fyrsta útilistasafn Japans þegar það opnaði árið 1969. Safnið sameinar náttúrulegt landslag við list – stór skúlptúrverk eftir bæði japanska og alþjóðlega listamenn eru staðsett í fallegum garði þar sem gróður og fjallasýn mynda umgjörð.

Í safninu er einnig sérstakur salur tileinkaður Pablo Picasso, þar sem sýnd eru keramikverk, skissur og myndir eftir listamanninn, auk tímabundinna sýninga. Þetta er óvenjuleg upplifun þar sem list og náttúra mætast á lifandi hátt, og gestir fá næði til að skoða verkin í eigin hraða.

Við ökum til Kamakura, fyrrum höfuðborgar samúræja. Þar sjáum við Hase-dera hofið, stóru styttuna af Búdda og verslunargötuna Komachi-dori.

Við ökum frá Tókýó til Kamakura, sem var höfuðborg Japans á Kamakura-tímabilinu (1185–1333), þegar samúræjastéttin fór með völd. Borgin er þekkt fyrir trúarlega minnisvarða og rólegra stemningu, í mikilli andstöðu við hraða stórborgarinnar. Kamakura gegndi lykilhlutverki í þróun Zen-búddisma í Japan og hefur varðveitt fjölmargar byggingar frá miðöldum.

Við heimsækjum Hase-dera hofið, sem stendur á hæð með útsýni yfir sjóinn. Þar má sjá styttu af Kannon með ellefu höfuðum, og í hofgarðinum eru göngustígar, litlar hallir og hellar með smástýttum. Hofið er einnig þekkt fyrir árstíðabundin blóm, sérstaklega hortensíur og kirsuberjablóm.

Næst höldum við að stóru Búddastyttunni í Kamakura (Daibutsu), sem er næststærsta bronstytta Búdda í Japan. Hún var steypt á 13. öld og stendur nú undir berum himni eftir að hofið sem umvafði hana eyðilagðist í flóði. Þrátt fyrir aldur og náttúruhamfarir stendur hún enn upprétt sem tákn um þolinmæði og einfaldleika hinnar Zen-innblásnu trúar.

Við áfram ferðinni til Tókýó. Ferðin tekur tæpa tvo tíma og við komum til borgarinnar síðdegis. Þar innritum við okkur á hótelið.

Hótelið okkar er staðsett í Asakusa-hverfinu. Eftir innritun hótelið skoðum við nærumhvefið og  heimsækjum Sensoji-hofið, sem er elsta búddahof Tókýó og á sér rætur aftur til 7. aldar. Hofið er helgað Kannon, vinsælli guðamynd í japanskri búddatrú, og er enn mikið notað af heimamönnum. Leiðin að hofinu liggur um Nakamise-verslunargötuna, þar sem sölubásar bjóða upp á hefðbundna japanska snarlrétti, handverk, minjagripi og kimono.

Á hofsvæðinu má sjá gesti tendra reykelsi og skrifa óskir á trélappir. Byggingarnar eru endurreistar eftir seinni heimsstyrjöld, en eru í samræmi við hefðbundinn stíl. Þetta svæði er jafnt trúarlegt athvarf og ferðamannastaður og gefur innsýn í hvernig japönsk hefð og nútíma verslun fara saman á sama stað.

Máltíðir innifaldar:

● Morgunverður
 

Gisting  –  4 nætur

Gisting á 3 ⭐️ hóteli, Richmond Hotel Asakusa  eða sambærilegt.

  • Tveggja manna „moderate“ herbergi, reyklaust
  • Morgunverðarhlaðborð
  • Þráðlaust net (WiFi)
  • Hitastýring í herbergi (loftkæling)
  • Dagleg þrif
  • Þvotta- og fatahreinsunarþjónusta
  • Móttaka opin allan sólarhringinn

Dagur 13

sun. 11. apríl 2027

 

Dagur 13

þri. 3. nóv. 2026

 

Dagur 10

sun. 11. apríl 2027

 

Dagur 10

sun. 11. apr. 2027

Dagsferð um Tókýó

Við hefjum daginn á að skoða Shinjuku Gyoen garðinn sem er einn fallegasti og fjölbreyttasti garðurinn í Tokyo, staðsettur rétt við iðandi Shinjuku-hverfið. Garðurinn sameinar þrjá ólíka stíla: japanskan hefðargarð, franskan formgarð og enskan landslagsgarð.

Skammt frá iðandi tískugötum Harajuku og skærum auglýsingaskjám finnum við Meiji Jingu hofið, sem hefur frá upphafi verið meira en bara trúarstaður. Hofið var reist árið 1920 í minningu Meiji-keisara, sem gegndi lykilhlutverki í umbreytingu Japans úr lokuðu samfélagi í nútímalega þjóð.

Hofið er umlukt skógi sem var plantað sérstaklega í kringum bygginguna. Þar eru yfir 100.000 tré frá öllum landshlutum, sem voru gefin þegar hofið var reist.

Hofið sjálft er dæmigert fyrir Shinto-byggingarstíl og samanstendur af viðarbyggingum úr japönskum sedrusviði. Á svæðinu má sjá gesti leggja fram bænaspjöld og fara með ákveðnar athafnir samkvæmt siðum Shinto-trúarinnar. Þetta er vinsæll áfangastaður í borginni og mikið sóttur bæði af ferðafólki og heimamönnum.

Við fáum frjálsan tíma í hádeginu.

Við endum daginn í Shibuya, einu mannmesta og þekktasta hverfi Tókýó. Þar upplifum við Shibuya Crossing – gangbrautina þar sem hundruð manna fara yfir götuna samtímis þegar ljósin breytast. Þeir sem vilja geta farið upp á útsýnispallinn Shibuya Sky eða skoðað verslanir og líf á götum hverfisins.

Þessu næstu akstur á hótel eða frjáls tími við Shibuya og ferð á eigin vegum tilbaka til hótelsins.

Máltíðir innifaldar:

● Morgunverður
 

Dagur 11

mán. 12. apríl 2027

 

Dagur 11

mán. 12. apr. 2027

Frjáls dagur

 

Daginn fyrir brottför stendur til boða að njóta Tókýó á eigin vegum. Það eru ótal möguleikar á að skrá sig í valfrjálsa viðburði eða stuttar dagsferðir. Borgin býður upp á fjölbreytta menningu, mat, listir og afþreyingu – frá rólegum göngum í görðum til einstaka reynslu með heimamönnum.

Hér eru örfáar tillögur að upplifunum:

  • Sushi- og japönsk matreiðslunámskeið
    Lærðu að útbúa sushi, miso-súpu og fleiri hefðbundna rétti með leiðsögn japanskra matreiðslumanna.
    GetYourGuide
  • Kimono-prófun og myndataka
    Fáðu að máta hefðbundinn kimono og ganga um söguleg hverfi Tókýó með ljósmyndara.
    GetYourGuide

Hægt að slaka á og njóta borgarinnar á eigin hraða – hvort sem það er að njóta Asakusa, versla í Shibuya, heimsækja söfn eða setjast í garð með kaffibolla. Tókýó býður upp á endalausa möguleika.

Máltíðir innifaldar:

● Morgunverður
 

Valfrjáls dagsferð til Fuji-fjalls

Við höfum í hyggju að bjóða heilsdagsferð að rótum hins tignarlega Fuji-fjalls, helsta kennileitis Japans. Við heimsækjum Kawaguchiko-vatn, sem býður upp á eitt fegursta útsýnið yfir Fuji, göngum um Oishi-garðinn og skoðum hina þekktu Chureito-pagóðu, þar sem hið sígilda útsýni yfir pagóðuna og Fuji-fjallið hefur orðið eitt þekktasta myndefni Japans.

Ef veður og aðstæður leyfa verður einnig ekið upp að 5. stöð Fuji-fjalls, í um 2.300 metra hæð, þar sem gefst tækifæri til að njóta stórbrotins útsýnis yfir fjallið og nærliggjandi landslag.

Verð: Kr. 44.000 

Ferðin er háð þátttöku að lágmarki 10 manns. Einnig er gerður fyrirvari um veður og aðstæður við Fuji-fjallið.

Dagur 12 og 13

þri. 13. - mið. 14. apríl 2027

 

Dagur 12 og 13

þri. 13. – mið. 14. apr. 2027

Akstur um Tókýó, ljósmyndastopp

Þetta er síðasti dagur ferðarinnar.  Við skráum okkur út af hótelinu kl. 11 og leggum í hann í hálfsdags skoðunarferð um Tókýó kl. 12.00.

Hér gefst tækifæri ti að stoppa víða og ná ljósmyndum af kennileytum borgarinnnar, ma. Tókýó Skytree, Keisarahöllinni og við munum einnig aka um Ginza hverfið. 

Stutt stopp í Hamarikyu garðinum áður en haldið verður til sameinginlegs kvöldverðar.

Okkur verður ekið á flugvöllinn að loknum kvöldverði og skoðunarferð.

Brottför frá Tókýó með Finnair.
Við fljúgum með næturflugi til Helsinki og þaðan áfram til Íslands.

Flug: Finnair AY074 og AY991
Brottför frá Tókýó: kl. 21:50
Millilending í Helsinki: kl. 04:40–07:10
Lending  á Keflavíkurflugvelli: kl. 07:50 þann 14. apríl.

Tímamismunur: -9 klst. (Japan er 9 klst. á undan Íslandi)

Máltíðir innifaldar:
● Morgunverður
● Kvöldverður

Fararstjóri

Pétur Eggerz verður fararstjóri í þessari ferð. Pétur er fæddur og uppalinn í Reykjavík, lengst af í Breiðholtinu. Eftir nám í bókmenntafræði við Háskóla Íslands nam hann leiklist í Lundúnum og útskrifaðis t þaðan 1984. Hann hefur tekið þátt í leiksýningum hjá Leikfélagi Akureyrar, Þjóðleikhúsinu, Alþýðuleikhúsinu, Leikfélagi Reykjavíkur og víðar. Honum hefur einnig brugðið reglulega fyrir í kvikmyndum og sjónvarpi. Þá vann hann um hríð við dagskrárgerð á Rás 1.

Pétur var einn stofnenda Möguleikhússins og starfaði þar í nær þrjá áratugi sem leikari, leikstjóri og höfundur. Meðal verka sem hann vann fyrir Möguleikhúsið má t.d. nefna Eldklerkinn, einleik sem fjallar um séra Jón Steingrímsson.  Þá hefur hann einnig séð um heimsóknir íslensku jólasveinana í Þjóðminjasafnið allt frá árinu 1995.

Pétur er einnig menntaður leiðsögumaður og útskrifaðist sem slíkur frá Leiðsöguskóla Íslands 2006. Frá þeim tíma hefur hann þvælst vítt og breitt með ferðamenn um landið.

Á ferð okkar til Japans mun Pétur halda utan um hópinn, samhæfa daglegt skipulag og styðja við þátttakendur af sinni röggsemi og nærgætni. 

Pétur var einnig fararstjóri í þessari ferð á síðasta ári. Þátttakendur lýstu mikilli ánægju með ferðina og fararstjórnina, sem endurspeglast í mjög jákvæðum umsögnum á Trustpilot.

Staðarleiðsögumenn

Reyndir staðarleiðsögumenn frá traustum samstarfsaðilum okkar í báðum löndum munu taka á móti hópnum, veita faglega og fróðlega leiðsögn á áfangastöðunum og tryggja að við upplifum bæði menningu og sögu á dýpri hátt. Þeir fylgja hópnum frá upphafi til enda og vinna í nánu samstarfi við fararstjóra til að tryggja hnökralausa ferð.

Verð og greiðsluskilmálar

Verð á mann er 977.000 kr., miðað við gistingu í tveggja manna herbergi.

Einstaklingsherbergi er í boði gegn 233.000 kr. aukagjaldi.

Staðfestingargjald að upphæð 195.400 kr. (20% af grunnverði) skal greiðast innan þriggja vikna frá skráningu.

Lokagreiðsla, að upphæð 781.600 kr., skal greiðast í síðasta lagi 10 vikum fyrir ferð, þann 22. janúar 2027.

Verð ferðarinnar er birt í íslenskum krónum (ISK). Greiðsla fer fram í evrum (EUR) samkvæmt opinberu gengi á greiðsludegi.

Lágmarksfjöldi: 16 manns.
Hámarksfjöldi: 26 manns

Smærri hópar, stærri upplifanir!

Innifalið

✅ Flug með Finnair til Osaka og heim frá Tókýó, Japan. Millilending í Helsinki
✅ Gisting á vel völdum 3–4 stjörnu hótelum

✅ Morgunverður alla daga 
✅ Þrír hádegisverðir, þar sem það er tekið fram 
✅ Þrír kvöldverðir, þar sem það er tekið fram 

✅ Samgöngur – rútur, hraðlestir og ferjur
✅ Hraðlestir (Shinkansen) – fyrsta farrými 
✅ Fararstjóri með í för frá Íslandi og enskumælandi staðarleiðsögumenn 
✅ Aðgangur að söfnum, hofum, listigörðum og öðrum stöðum skv. dagskrá
✅ Aðgangur að súmóglímukappasýningu
✅ Dagsferðir skv. skipulagi  
✅ Skattar og þjónustugjöld

 

Athugið að staðarleiðsögn fer fram á ensku. Íslenskur fararstjóri er til staðar fyrir aðstoð og útskýringar eftir þörfum, en ekki er um beina eða samfellda túlkun að ræða.

Valfrjálsar upplifanir
Dagsferð frá Tókýó til Fuji-fjalls
Matreiðslunámskeið o.fl.
 
Ekki innifalið

Valfrjálsar upplifanir í Kyoto og Tókýó

Einkakostnaður, s.s. drykkir, minjagripir mm.

Forfallatryggingar (mælt með)

Máltíðir sem ekki eru taldar upp í innifalið

Drykkjarföng og persónuleg útgjöld

Farangurskostnaður yfir leyfileg mörk

Þjórfé fyrir fararstjóra, staðarleiðsögumenn og bílstjóra

Farangursþjónusta á hótelum

 

Langar þig einnig að upplifa Suður-Kóreu?

Skoðaðu þá 16 daga ferð um Suður-Kóreu og Japan. Ferðin hefst í Seúl og sameinast þessari ferð í Osaka, þar sem sameiginleg dagskrá um Japan tekur við.

👉 桜 Sakura – Seúl と Japan

Upplifun farþega okkar

Japan og S-Kórea.
Gamall draumur minn að fara til Japans rættist loksins. Ég var svo heppin að velja réttu ferðaskrifstofuna sem varð til þess að japansferðin mín fór langt fram úr væntingum. Það stóðst allt fullkomlega og meira en það. Í kaupbæti fékk ég 4 nætur í s-Koreu sem ég hefði alls ekki vilja missa af. Get mælt heilshugar með VIA travel. Mun fylgjast vel með hvaða spennandi ferðir verða í boði í náinni framtíð.

María Elíasdóttir

Ferð til S-Kóreu og Japans vorið 2026
Ferðin til S-Kóreu og Japans vorið 2026 var í alla staði mjög svo vel heppnuð. Stóð fullkomlega undir væntingum. Bæði íslensku fararstjórarnir, þeir Pétur og Bjarni og innlendu leiðsögumennirnir (sá kóreanski og þeir japönsku) góðir og fróðir.
Ferðamátar allir þægilegir (flug, hraðlestir og rútur)
Gisting til fyrirmyndar og matur sem fylgdi ferðapakkanum góður og fjölbreyttur.
Frábær ferð í alla staði sem hægt er að mæla með
Haukur Vald. og Hrefna Sig..

Hrefna Sigurðardóttir

Ferð okkar með Via Travel til S-Kóreu og Japan var afar vel skipulögð og tókst að sama skapi vel í framkvæmd. Hittum t.d. á blómatíma Kirsuberjatrjánna. Tíminn var vel nýttur án þess að vera of hratt keyrt. Leiðsögn var í góðu lagi og hópurinn hæfilega stór. Höfum víða farið en þetta er með betri ferðum sem við höfum farið. Áslaug og Sveinn.

Sveinn Hannesson

Við hjónin fórum með VIA Travel til Suður Kóreu og Japans. 17 daga ferð sem var mjög vel skipulögð öll dagskrá stóðst upp á 10. Íslenskur fararstjóri, Pétur Eggerz, var frábær og eins innlendir fararstjórar góðir. Við mælum hiklaust með VIA travel.
Böðvar Örn og Gestný

Böðvar Örn Sigurjónsson

Stórkostleg ferð til Seúl og Japan
Fórum í stórkostlega ferð með viaworld.travel til Seúl og Japan. Meiri háttar upplifun í vel skipulagðri ferð með góðri fararstjórn. Ferðin og fyrirtækið til fyrirmyndar.

Birgir Finnbogason

Við fórum til Suður Kóreu og Japan…
Við fórum til Suður Kóreu og Japan 17mars -2.apríl. 2026
Mjög ánægð með skipulaginguna og kom sérstaklega kom vel út að byrja í Suður -Kóreu.
Mikil upplifun að koma til Japan.
Alveg ógleymanleg ferð, takk fyrir okkur.
Magga og Andri.

Margrét Guðmundsóttir

Egyptaland - Tyrkland.
Fórum í ferð með via world til Egyptalands og Tyrklands, í stuttu máli þá stóðst ferðin allar okkar væntingar, skoðað allt það merkilegasta, meðal annars Píramídana, markaði, hof, dal konunganna, sigldum niður Nil, syntum í Nil og fl, fararstjórin var frábær, ekki síður innlendir leiðsögumenn, frábær hótel og fl.
Mæli eindregið með þessari ferðaskrifstofu og takk fyrir yndislega og fræðandi ferð, með góðu og skemmtilegu fólki. Einar Þór Einarsson

Einar Þór Einarsson

Þetta var toppferð
Þetta var toppferð. Stóðst allt sem um var talað skoðunarferðir, hótel og leiðsögumenn. Skilur eftir góðar minningar

Högni Gunnarsson

Istanbúl og Egyptaland í september. Var að koma úr stórkostlegu ferðalagi…
Var að koma úr stórkostlegu ferðalagi með góðum hópi á vegum Via World Travel til Istanbul og Egyptalands, þar sem fornir og ævafornir menningarheimar voru teknir beint í æð. Heimsókn í menningarminjarnar í Egyptalandi eru einstök upplifun og Istanbul er töfrandi borg. Allt utanumhald mjög skilvirkt og gott og öll leiðsögn um hin fornu mannvirki mjög vönduð og fræðandi. Öll ferðin var ævintýri líkast.

Guðrún Guðmundsdóttir

En super oplevelse
En super oplevelse, som blev gjort mulig ved vores guide Bjarni's store viden og indsigt i Islands historie, geografi og sprog, som blev givet og præsenteret med at varmt og humoristisk glimt i øjet. Kan varmt anbefales!

Jesper

Trip to Island
Our trip to Iceland with 'Via Wold' was a fantastic experience.

Iceland offers very rugged and beautiful nature and at the same time a very friendly people.

Thanks for an experience of a lifetime.

Niels Toftensberg

Perfect stay at Iceland⭐️⭐️⭐️⭐️⭐️
We had as a group the best and most flexible and competent guide in Bjarni.
We went to see the most beautyfull sights and things, and places on Iceland.
Our stay on Reykavik Natura Berjay hotel was a wonderfull place to stay 10-15 min. From Reykavik centrum. But perfectly placed becauce we went on bustrips every day.

Pia Løvholt

Alles sehr gut organisiert
Alles sehr gut organisiert und ich fühlte mich durch Brjani immer gut informiert und unterhalten.

Elisabeth Gerdes

Rundreise durch Island im Oktober 2025
Unsere Rundreise durch Island war einfach traumhaft - ein Erlebnis, das wir nie vergessen werden. Die Natur hat uns mit ihrer wilden Schönheit tief beeindruckt: tosende Wasserfälle, endlose Lavafelder, Gletscher und heiße Quellen - jedes Ziel war ein neues Staunen.
Was die Reise aber wirklich besonders gemacht hat, war unser wunderbarer Guide. Mit viel Wissen über und Begeisterung für das Land, einem tollen Gespür für die Gruppe und einem ansteckenden Humor hat er uns nicht nur sicher durchs Land geführt, sondern auch viele besondere Momente geschenkt.
Diese Reise war ein echtes Herzensabenteuer - beeindruckend und voller schöner Erinnerungen..

Dorit Eckhoff

Wunderschöne Reise in Island
Mit unserer Reisegruppe erlebten wir eine wundervolle Zeit auf Island. Unser Guide Bjarni brachte uns seine Heimat mit seinem Wissen über Land und Leute, in seiner einzigartigen Art und Weise näher. Wir durften Wale beobachten, Nordlichter sehen und die wunderschönen Wasserfälle sehen. Vielen Dank dafür.

Anja Marischen

Islandrundreise
Wir konnten mit unserem Reiseleiter Bjarni Meyer Einarsson eine wunderschöne 10-tägige Rundreise auf Island erleben. Die Reise führte uns zu den vielen atemberaubenden Naturschönheiten des Landes. Dazu gehörten die faszinierenden Wasserfälle, die riesigen Gletscher, die Lagunen, Vulkane und Geysire sowie als besonderes Highlight die Beobachtung der Wale. Der Reiseplan war optimal vorbereitet und doch blieb Platz für individuelle Wünsche unserer Reisegruppe.
Bjarni hat uns sein Land mit so viel Humor, Wissen und Herz nähergebracht - das werden wir nicht vergessen.
Klaus und Andrea Muhle aus Visbek

Andrea und Klaus Muhle

Island Oktober 2025
In 10 Tagen eine wunderbare Reise rund um Island gemacht. Mit allem was dieses Land ausmacht: Wasserfälle, Gletscher, Geysire und Nordlichter. Sogar Wale durften wir sehen. Danke an Bjarne, dass er so viel möglich gemacht hat und dazu so viele Informationen und Geschichten geliefert hat.

Maria Trumme

Island-Rundreise…
Unsere Islandreise mit einer Reisegruppe aus Deutschland war ganz fantastisch. Unser Guide Bjarni hat alles perfekt vorbereitet und uns an die schönsten Stellen Islands gebracht. Seine Erläuterungen zu Land und Leuten, geschichtlichen Hintergründen und lustigen Geschichten hat uns gezeigt, dass hier ein echter "Kenner" Islands am Werk ist. Ein durch und durch sympathischer Reiseführer. Alles hat wunderbar geklappt und auch die Unterkünfte waren guter Standard. Vielen lieben Dank !

Ludger Tönjes

Super god service
Super god service. Alt fungerede perfekt.



Ole Henriksen

Skøn natur oplevelse på Island
Turen var vel tilrettelagt og godt arrangeret. Vi fik set de vigtigste naturoplevelser på kort tid. Guiden har en stor viden om øen.


Margot Madsen-Ovesen

Travel to Island med via World
Recently I was 3,5 day in Island with via World travel agency joining a small group of 7 persons.
Everything was so well organized by the owner Bjarni Meyer Einarsson. Thingvellir National Park with the first parliament dating back to the vikings Geysir, Gullfoss waterfall, lagoons, vulcano and earthquake impact, whale observing... the list is even longer! Combined with a profound knowledge of the nature as well as a lot of historical data I can highly recommend via World travel for a very proff organizing and spiced with the personal touch and involvement of the owner. The other members of the tour having same great experience.

Hans Siegfredsen

Sjá allar umsagnir um  VIA Travel 

Skráning: 桜 Sakura - Japan

Ath:
MIkilvægt er að vegabréfsupplýsingar séu skráðar hárrétt.
Breytingar geta leitt til aukakostnaðar.

Farþegaupplýsingar

Upplýsingar fleiri farþega

Fyllið aðeins út ef fleiri en einn farþegi.

Gisting

Séróskir

Athugasemdir

Staðfesting


Vegabréfsáritun

Það er hvorki gerð krafa um bólusetningar þegar ferðast er til Suður-Kóreu né Japans. 

Bólusetningar

Smitsjúkdómar eru mismunandi eftir löndum og heimsálfum. Bólusetningar fara eftir hvað þú ert að fara að gera og hvert þú ert að fara. Einnig eru smitsjúkdómar mismunandi eftir árum og tímabilum og í raun síbreytanlegir.

Það er ekki gerð krafa um bólusetningar þegar ferðast er til Japan.

Við leggjum í hann eftir

  • 00daga
  • 00klukkutíma
  • 00mínútur

Ferðir um allan heim

Við skipuleggjum sérsniðnar ferðir fyrir einstaklinga, hópa, félög og fyrirtæki

– láttu drauminn verða að veruleika.

Áttu þér draumaferð?

Segið okkur hvert ykkur langar að fara!

Við gerum tilboð í ferðir til fjarlægra landa. 

Lágmark 10 manns, en minnst 4 manns í safaríferð.

Við svörum innan 24 tíma!

Scroll to Top