Kenía, Tansanía og Sansibar
Þessi einstaka ferð leiðir okkur inn í óbyggðir Afríku þar sem víðáttumiklar sléttur, stórbrotin náttúra og eitt ríkasta dýralíf jarðar skapa upplifun sem erfitt er að lýsa með orðum.
Við upplifum helstu náttúruperlur Kenía og Tansaníu, förum í safariferðir um heimsfræga þjóðgarða á borð við Masai Mara, Serengeti og Tarangire, og sjáum villt dýr í sínu náttúrulega umhverfi.
Ferðinni lýkur síðan með rólegum dögum á eyjunni Sansibar, þar sem hvítar strendur, heitt haf og afslappað andrúmsloft gefa fullkomna lokapunkta eftir ævintýri safarins.
Það er draumur marga að sjá hin "stóru fimm" í sínu náttúrulega umhverfi. Saman getum við látið þennan draum verða að veruleika.
Kenía, Tansanía og Sansibar
Hápunktar ferðarinnar
Þessi einstaka ferð leiðir okkur inn í óbyggðir Afríku þar sem víðáttumiklar sléttur, stórbrotin náttúra og eitt ríkasta dýralíf jarðar skapa upplifun sem erfitt er að lýsa með orðum.
Við upplifum helstu náttúruperlur Kenía og Tansaníu, förum í safariferðir um heimsfræga þjóðgarða á borð við Masai Mara, Serengeti og Tarangire, og sjáum villt dýr í sínu náttúrulega umhverfi.
Ferðinni lýkur síðan með rólegum dögum á eyjunni Sansibar, þar sem hvítar strendur, heitt haf og afslappað andrúmsloft gefa fullkomna lokapunkta eftir ævintýri safarins.
Fíla- og gíraffaathvörf í Nairobi
Návígi við fíla og gíraffa á verndarsvæðum
Lake Nakuru
Þjóðgarður, fjölbreytt fuglalíf og nashyrningar
Lake Naivasha
Gönguferð meðal gíraffa og sebrahesta
Safari í Masai Mara
Eitt frægasta safarissvæði heims og víðáttumiklum gresjur
Serengeti – hið eina sanna Afríkusafarí
Endalausar sléttur – heimili milljóna villtra dýra.
Ngorongoro gígurinn
Stórbrotinn eldgígur með einstöku vistkerfi og fjölbreyttu dýralífi
Tarangire þjóðgarðurinn
Þekktur fyrir baobab-tré og stórar fílahjarðir
Sansibar
Hvítar sandstrendur og slökun við Indlandshaf
Hápunktar ferðarinnar
Fíla- og gíraffaathvörf í Nairobi
Návígi við fíla og gíraffa á verndarsvæðum
Lake Nakuru
Þjóðgarður, fjölbreytt fuglalíf og nashyrningar
Lake Naivasha
Gönguferð meðal gíraffa og sebrahesta
Safari í Masai Mara
Eitt frægasta safarissvæði heims og víðáttumiklum gresjur
Serengeti – hið eina sanna Afríkusafarí
Endalausar sléttur – heimili milljóna villtra dýra.
Ngorongoro gígurinn
Stórbrotinn eldgígur með einstöku vistkerfi og fjölbreyttu dýralífi
Tarangire þjóðgarðurinn
Þekktur fyrir baobab-tré og stórar fílahjarðir
Sansibar
Hvítar sandstrendur og slökun við Indlandshaf
Stóru fimm
Stóru fimm (The Big Five) eru fimm þekktustu villtu dýr Afríku sem margir ferðalangar vonast til að sjá í safariferð. Þessi dýr eru ljón, hlébarði, fíll, nashyrningur og buffaló. Nafnið kemur upphaflega frá veiðimönnum, þar sem þessi dýr þóttu erfiðust og hættulegust að veiða fótgangandi. Í dag eru þau hins vegar fyrst og fremst tákn afrískrar náttúru og safaríupplifunar.
Skoða ferðalýsingu
Dagur 1
mið. 10. feb. 2027
Dagur 1
mið. 10. feb. 2027
Ferðalag hefst
Á leið til Þýskalands | Gist í Frankfurt
Flug frá Keflavíkurflugvelli með millilendingu í Frankfurt, Þýskalandi
Frjáls eftirmiðdagur í Frankfurt. Við getum notið tímann til að slaka á og undirbúa okkur fyrir ferðalagið framundan.
Hádegisverður og kvöldverður á eigin vegum.
Gisting – 1 nótt
Gisting á 4 stjörnu hóteli, Hilton Frankfurt Airport eða sambærilegt.
Hilton Frankfurt Airport er nútímalegt og þægilegt fjögurra stjörnu hótel staðsett beint við Terminal 1 á Frankfurt-flugvelli. Það er í byggingunni The Squaire, rétt ofan við lestarstöðina, með beinni göngubrú inn í flugstöðina.
Hótelið býður upp á rúmgóð og hljóðeinangruð herbergi með nútímalegri hönnun, veitingastað með alþjóðlegri matargerð, bar, líkamsræktaraðstöðu og góða fundaraðstöðu.
Staðsetningin, aðeins um 15 mínútur frá miðborg Frankfurt
Dagur 2
fim. 11. feb. 2027
Dagur 2
fim. 11. feb. 2027
Til Afríku
Flug og koma | Naíróbí
Flug frá Frankfurt beint til Naíróbí
Við komu á Jomo Kenyatta alþjóðaflugvöllinn fáum við hraðafgreiðslu í gegnum vegabréfaeftirlit og toll. Enskumælandi staðarleiðsögumaður segir frá tilhögun næstu daga.
Máltíðir innifaldar:
Gisting – 2 nætur
Gisting á 4 stjörnu hóteli, Mövenpick Hotel & Residences Nairobi eða sambærilegt.
Mövenpick Hotel & Residences Nairobi er staðsett í Westlands-hverfinu í Nairobi, nálægt Þjóðminjasafni Kenýa. Hótelið býður upp á þægilega innréttuð gestaherbergi sem eru búin nútímalegum þægindum, þar á meðal Wi-Fi nettengingu, aðstöðu til að laga kaffi og te, minibar, setusvæði, skrifborð og fullbúið eldhúskrók.
Gestir geta notið alþjóðlegrar, indverskrar og afrískrar matargerðar á veitingastað hótelsins. Meðal annarra aðstöðu og þjónustu eru bar, útisundlaug, líkamsræktarstöð, heilsulind og vellíðunarmiðstöð, auk bílastæða.
Dagur 3
fös. 12. feb. 2027
Dagur 3
fös. 12. feb. 2027
Naíróbí
Dýralíf og náttúruvernd | Þjóðgarður í borg
Dagurinn hefst á morgunverði á hótelinu áður en lagt er af stað til að kynnast Nairobi, höfuðborg Keníu þar sem borgarlíf og villt dýralíf mætast. Við höldum til Nairobi þjóðgarðins, sem er sá eini í heiminum sem staðsettur er innan höfuðborgar. Þar gefst kostur á að sjá meðal annars ljón, nashyrninga og gíraffa með sjóndeildarhring Nairobi í bakgrunni.
Næst er haldið til Nairobi Elephant Nursery hjá Sheldrick Wildlife Trust, þar sem fylgst er með munaðarlausum fílsungum á fóðrunartíma þeirra og fræðst um björgun þeirra og verndun fíla í Keníu.
Ferðin heldur áfram í Giraffe Centre, þar sem við kynnumst Rothschild-gíraffanum sem er í útrýmingarhættu. Þar gefst tækifæri til að fræðast um verndunarstarf, gefa gíröffunum að borða.
Hádegisverður er snæddur á Carnivore Restaurant, þekktum veitingastað í Nairobi sem býður upp á fjölbreytta kolagrillaða kjötveislu með meðlæti í afslöppuðu umhverfi.
Að loknum viðburðaríkum degi fullum af einstökum upplifunum er snúið aftur til hótelsins. Kvöldið er frjálst til hvíldar og undirbúnings fyrir ævintýrin framundan.
Máltíðir innifaldar:
Dagur 4
lau. 13. feb. 2027
Dagur 4
lau. 13. feb. 2027
Við höldum til Naivasha-vatns
Göngusafarí og vatnalandslag | Naivasha-vatn
Eftir morgunverð verður haldið af stað frá Naíróbí til Naivasha-vatns, eins fallegasta ferskvatnsvatnsins í sigdalnum mikla í Kenýa. Aksturinn tekur um 2–3 klst. og leiðin býður upp á fallegt útsýni yfir hálendi, sveitir og sigdalinn.
Við innritum okkur um hádegi á hótelið og snæðum hádegisverð þar.
Síðdegis verður farið í heimsókn til Crescent Island Game Sanctuary, þar sem farið er í rólega göngusafaríferð um friðsælt svæði án rándýra. Þar má meðal annars sjá gíraffa, sebrahesta, gnúa, antilópur og fjölbreytt fuglalíf.
Að lokinni skoðunarferð verður haldið aftur á gististaðinn þar sem kvöldverður og gisting bíða.
Máltíðir innifaldar:
Gisting – 1 nótt
Gisting á 4
sveitasetri, Lake Naivasha Simba Lodge eða sambærilegt.
Lake Naivasha Simba Lodge er rólegt og fallegt sveitasetur þar sem náttúra og þægindi fara saman. Gististaðurinn stendur við strönd Naivasha-vatnsins og er umkringdur görðum og trjám. Gestir geta oft séð villt dýr eins og sebrahesta, vatnabokka og stundum flóðhesta nálægt hótelinu.
Dagur 5
sun 14. feb. 2027
Dagur 5
sun. 14. feb. 2027
Þjóðgarðurinn við Nakuru-vatn
Flamingóar og nashyrningar | Nakuru
Eftir morgunverð verður ekið til Lake Nakuru National Park, sem er frægur fyrir fuglalíf sitt, flamingóa og nashyrninga.
Aksturinn tekur um 2 klst.
Við komu þangað verður farið í safaríferð. Við skráum okkur inn á gististað um hádegi, borðum hádegisverð og slökum aðeins á áður en við höldum í síðdegissafarí.
Við eigum von á að gera séð svarta og hvíta nashyrninga, hlébarða, buffalóa, gíraffa, flóðhesta og fjölbreytt fuglalíf.
Máltíðir innifaldar:
Dagur 6
mán. 15. feb. 2027
Dagur 6
mán. 15. feb. 2027
Masai Mara þjóðgarðurinn
Inn í villta náttúru Afríku | Masai Mara
Eftir ríkulegan morgunverð hefst ferðin til goðsagnakennda þjóðgarðsins Masai Mara. Þjóðgarðurinn Masai Mara er eitt frægasta safarísvæði Afríku og þekkt fyrir fjölbreytt og mikið dýralíf. Aksturinn tekur um það bil 5 klst. og á leiðinni gefst tækifæri til að njóta víðfeðms og stórbrotins landslags Kenía.
Síðdegis er farið í safaríferðina (game drive), þar sem góðar líkur eru á að sjá hinar frægu stóru kattartegundir Mara-svæðisins auk fjölbreytts og heillandi dýralífs.
Um kvöldið er snúið aftur að gististaðnum þar sem boðið er upp á gómsætan kvöldverð.
Gisting – 3 nætur
Gisting á 4 stjörnu sveitasetri, Mara Serena Safari Lodge eða sambærilegt.
Mara Serena Safari Lodge býður gesti velkomna í einstakt umhverfi í hjarta Masai Mara friðlandsins. Gististaðurinn er staðsettur á hæð í hinum þekkta Mara Triangle og býður upp á stórbrotið útsýni yfir víðáttumikla savönnuna og Mara-ána. Byggingarnar eru hannaðar í stíl hefðbundinnar Maasai Manyatta og sameina þannig afríska hefð og nútímaleg þægindi. Herbergin eru þægileg og vel staðsett þannig að gestir njóta fallegs útsýnis og rólegs andrúmslofts. Á staðnum er góður veitingastaður, bar og sundlaug, auk heilsulindar þar sem hægt er að slaka á eftir ævintýraríkan dag í safaríferðum um Masai Mara, eitt frægasta dýralífsverndarsvæði Afríku.
Dagur 7 og 8
þri. 16. og mi 17. feb. 2027
Dagur 7 og 8
þri. 16. og mið. 17. feb. 2027
Töfrar Masai Mara þjóðgarðsins
Stórir kettir og víðáttumiklar sléttur | Masai Mara
Dagurinn byrjar og endar með safaríferðum um víðáttumiklar sléttur Masai Mara í fylgd reynds leiðsögumanns. Þetta svæði er eitt það besta í Afríku til að sjá stórketti í sínu náttúrulega umhverfi – ljón, hlébarða og blettatígra – auk stórra hjarða fíla, buffala og fjölmargra annarra dýra.
Eftir ævintýraríkan dag í náttúrunni snúum við aftur í safaríbúðirnar þar sem bíður kvöldverður og notaleg gisting í hjarta savannunnar.
Fyrir þá sem vilja gera upplifunina enn eftirminnilegri bjóðum við upp á nokkrar valkvæðar afþreyingar (gegn aukagjaldi).
Valfrjálsir atburðir í Masai Mara
Skemmtilegar upplifanir
Loftbelgjasafarí yfir Masai Mara
Einstök upplifun sem margir telja hápunkt safaríferðarinnar. Við leggjum af stað fyrir dögun að upphafsstað loftbelgjanna og rísum síðan hljóðlega yfir víðáttumiklar sléttur Masai Mara.
Flugið tekur um það bil eina klukkustund og býður upp á stórbrotna sýn yfir dýralíf og landslag í morgunsólinni. Að lendingu lokinni bíður ljúffengur morgunverður úti í náttúrunni. Þar skála gestir gjarnan með freyðivíni áður en haldið er í safaríferð til baka í búðirnar.
Morgunverður úti í náttúrunni
Eftir safaríferð snemma morguns er hægt að njóta ljúffengs morgunverðar á fallegum stað í savannunni. Eftir það gefst tími til að slaka á og njóta aðstöðunnar í safaríbúðunum.
Heimsókn í Maasai-þorp
Hér gefst einstakt tækifæri til að kynnast daglegu lífi Maasai-fólksins. Gestir fá innsýn í hefðir, menningu og lifnaðarhætti þessa stolta þjóðflokks sem hefur búið á þessum slóðum um aldir.
Einnig er hægt að skoða og kaupa handverk sem heimamenn hafa búið til. Tekjur af sölunni renna beint til samfélagsins.
Gönguferð með Maasai-leiðsögumanni
Leiðsögð gönguferð með Maasai-leiðsögumanni gefur dýpri skilning á náttúru og lífríki svæðisins. Þar lærir þú um plöntur og dýr, hefðbundna notkun jurta og hvernig Maasai-fólkið lifir í samspili við náttúruna.
Kvöldverður undir stjörnuhimni
Ógleymanleg matarupplifun í náttúrunni. Kvöldverður er framreiddur úti í savannunni þar sem gestir njóta vel undirbúinnar máltíðar undir stjörnubjörtum himni, umkringdir hljóðum náttúrunnar.
Valfrjálsir atburðir í Masai Mara
Skemmtilegar upplifanir
Loftbelgjasafarí yfir Masai Mara
Einstök upplifun sem margir telja hápunkt safaríferðarinnar. Við leggjum af stað fyrir dögun að upphafsstað loftbelgjanna og rísum síðan hljóðlega yfir víðáttumiklar sléttur Masai Mara.
Flugið tekur um það bil eina klukkustund og býður upp á stórbrotna sýn yfir dýralíf og landslag í morgunsólinni. Að lendingu lokinni bíður ljúffengur morgunverður úti í náttúrunni. Þar skála gestir gjarnan með freyðivíni áður en haldið er í safaríferð til baka í búðirnar.
Morgunverður úti í náttúrunni
Eftir safaríferð snemma morguns er hægt að njóta ljúffengs morgunverðar á fallegum stað í savannunni. Eftir það gefst tími til að slaka á og njóta aðstöðunnar í safaríbúðunum.
Heimsókn í Maasai-þorp
Hér gefst einstakt tækifæri til að kynnast daglegu lífi Maasai-fólksins. Gestir fá innsýn í hefðir, menningu og lifnaðarhætti þessa stolta þjóðflokks sem hefur búið á þessum slóðum um aldir.
Einnig er hægt að skoða og kaupa handverk sem heimamenn hafa búið til. Tekjur af sölunni renna beint til samfélagsins.
Gönguferð með Maasai-leiðsögumanni
Leiðsögð gönguferð með Maasai-leiðsögumanni gefur dýpri skilning á náttúru og lífríki svæðisins. Þar lærir þú um plöntur og dýr, hefðbundna notkun jurta og hvernig Maasai-fólkið lifir í samspili við náttúruna.
Kvöldverður undir stjörnuhimni
Ógleymanleg matarupplifun í náttúrunni. Kvöldverður er framreiddur úti í savannunni þar sem gestir njóta vel undirbúinnar máltíðar undir stjörnubjörtum himni, umkringdir hljóðum náttúrunnar.
Dagur 9
fim. 18. feb. 2027
Dagur 9
fim. 18. feb. 2027
Norður-Serengeti í Tansaníu
Yfir landamæri og víðerni | Norður-Serengeti
Eftir morgunverð verður ekið að landamærum Kenía og Tansaníu. Aksturinn tekur um 3. klst. Við höldum þaðan áfram til Norður-Serengeti, sem tekur um 4. klst. til viðbótar.
Norður-Serengeti liggur milli Mið-Serengeti og Masai Mara friðlandsins í Kenýa til norðurs.
Víðáttumiklar öldóttar sléttur Norður-Serengeti eru þekktar sem miðja hins mikla dýraflutnings. Landslagið einkennist af endalausum sléttum með akasíutrjám og skóglendi við árfaravegi.
Algengustu dýr á þessum slóðum eru buffalóar, sebrahestar, gasellur, impalar, gíraffar, auk ljóna og hlébarða.
Gisting – 1 nótt
Gisting á sveitasetri, Serengeti River Camp eða sambærilegt.
Það er fátt sem jafnast á við dyninn í þúsundum gnúa þegar þeir hlaupa yfir slétturnar í Serengeti aðeins nokkrum metrum frá búðunum. River Camp er staðsett um 300 metra frá Mara-ánni og býður upp á einstakt tækifæri til að fylgjast með einni mögnuðustu náttúruupplifun heims – gnúaflutningunum miklu sem eiga sér stað frá júní til október þegar gnúar reyna að komast yfir krókódílafulla ána til að ná áfangastað sínum.
Þessi dramatíska sjón dregur einnig að sér ljón sem bíða í leyni eftir réttu tækifæri til að veiða.
Í búðunum eru 24 lúxussvítur sem henta bæði litlum og stórum hópum. Gestir njóta einstakrar safaríupplifunar með kvöldverðum undir stjörnubjörtum himni Afríku. Frá einkasvölum svítanna er stórkostlegt útsýni yfir náttúruna. River Camp býður þannig upp á fullkomna blöndu af þægindum og villtri náttúru Serengeti.
Fæði: Fullt fæði – morgunverður, hádegisverður og kvöldverður
Dagur 10
fös. 19. feb. 2027
Dagur 10
fös. 19. feb. 2027
Akstur til Mið-Serengeti
Endalausar sléttur og dýralíf | Mið-Serengeti
Eftir morgunverð höldum við áfram safaríævintýrinu með akstri til Mið-Serengetis, svæðis sem er þekkt fyrir mikið dýralíf og stórbrotið landslag.
Dagurinn verður helgaður safaríferðum og við fáum tækifæri til að sjá stórar hjarðir gnúa og sebrahesta, tignarlega gíraffa og möguleika á að sjá rándýr eins og ljón og blettatígra í sínu náttúrulega umhverfi.
Mið-Serengeti er frægt fyrir endalausar sléttur og einkennandi klettabelti sem skapa fullkominn bakgrunn fyrir ljósmyndun og dýraskoðun.
Að kvöldi ökum við til gististaðar okkar þar sem við getum slakað á, notið ljúffengs kvöldverðar og deilt sögum af ógleymanlegum upplifunum dagsins undir afrískum stjörnuhimni.
Máltíðir innifaldar:
Gisting – 2 nætur
Gisting á 4 stjörnu sveitasetri, Serengeti Sametu Camp eða sambærilegt.
Serengeti Sametu Camp er staðsett við Ngarenanyuki-á í austurhluta Mið-Serengeti og býður upp á lúxusgistingu í miðri víðáttumikilli náttúru Tansaníu.
Gestir hefja daginn með spennandi safaríferðum og enda kvöldið í glæsilegum svítum. Búðirnar bjóða upp á 18 lúxussafarísvítur, þar af tvær tengdar fjölskyldusvítur.
Aðstaðan inniheldur meðal annars sundlaug, einkasvalir og arin í herbergjum. Veitingarnar sameina staðbundna og alþjóðlega matargerð og skapa eftirminnilegar máltíðir.
Staðsetningin nálægt Seronera-ánni tryggir oft frábær tækifæri til að sjá fjölbreytt dýralíf.
Fæði: Fullt fæði – morgunverður, hádegisverður og kvöldverður
Dagur 11
lau. 20. feb. 2027
Dagur 11
lau. 20. feb. 2027
Mið-Serengeti
Endalausar sléttur og dýralíf | Mið-Serengeti
Í dag einbeitum við okkur að Mið-Serengeti, og höldum safaríferðum okkar áfram.
Búast má við að sjá ljón, fíla, gíraffa og fjölmörg önnur dýr í hinu einkennandi landslagi garðsins.
Máltíðir innifaldar:
Dagur 12
sun. 21. feb. 2027
Dagur 12
sun. 21. feb. 2027
Ngorongoro hálendið
Einstakt vistkerfi í gígnum | Ngorongoro
Eftir morgunverð er ekið til Ngorongoro-gígsins, eins merkilegasta náttúrufyrirbæris Afríku.
Dagurinn fer í safarí inni í gígnum þar sem frjósamur jarðvegur og brattir gígbarmar skapa einstakt vistkerfi. Þar má sjá fíla, ljón, buffala, nashyrninga og ýmsar antílópur.
Eftir dag fullan af dýralífsupplifun er gist á notalegum stað í friðsælu umhverfi.
Máltíðir innifaldar:
Gisting – 1 nótt
Gisting á sveitasetri, Martina’s Retreat eða sambærilegt.
Martina’s Retreat er staðsett í fallegum bænum Karatu, aðeins um 1 kílómetra frá aðalveginum. Gististaðurinn býður upp á rúmgóð herbergi með nútímalegum þægindum, þar á meðal notalegum arni, skrifborði, lestrarstólum og góðu plássi fyrir farangur.
Eftir afslappandi nótt geta gestir notið ljúffengs morgunverðar sem er borinn fram á staðnum á hverjum morgni.
Meðal aðstöðu og þjónustu fyrir gesti eru þráðlaust internet (Wi-Fi), útiborðsvæði til máltíða, stór sameiginleg verönd, sundlaug, garður, bar, bílastæði á staðnum og öryggisgæsla allan sólarhringinn.
Dagur 13
mán. 22. feb. 2027
Dagur 13
mán. 22. feb. 2027
Tarangire þjóðgarðurinn
Fílahjarðir og baobab-tré | Tarangire
Eftir morgunverð verður ekið til Tarangire þjóðgarðsins, sem er þekktur fyrir stórar fílahjarðir, baobab-tré og fjölbreytt dýralíf.
Safarí í Tarangire
Dagurinn fer í safarí um garðinn með tækifærum til að sjá fíla, ljón, gíraffa, sebrahest, ýmsar antilóputegundir og fjölbreytt fuglalíf
Máltíðir innifaldar:
Gisting – 1 nótt
Gisting á sveitasetri, Sangaiwe Tented Lodge eða sambærilegt.
Sangaiwe Tented Lodge er staðsett nálægtSangaiwe-hliðinu í Tarangire þjóðgarðinum og býður upp á stórkostlegt útsýni yfir Lake Burunge.
Gistingin samanstendur af rúmgóðum lúxustjöldum sem standa á upphækkuðum trépöllum með veröndum þar sem gestir geta notið fallegra sólsetra og fersks andvara.
Öll tjöldin eru vel búin með baðkari, salerni, klæðaaðstöðu og setsvæði bæði inni og úti.
Gestir geta notið ljúffengra máltíða sem matreiðslumaður staðarins útbýr.
Aðgangur er að sameiginlegum svæðum á borð við bar, matsal, setustofu, stórt útsýnissvæði utandyra og sundlaug.
Dagur 14
þri. 23. feb. 2027
Dagur 14
þri. 23. feb. 2027
Sansibar
Frá safaríi til strandparadísar | Sansibar
Á síðasta degi safaríferðarinnar verður ekið frá Tarangire þjóðgarði til Arusha þar sem hægt er að njóta fjölbreytts landslags á leiðinni. Við komuna til Arusha verður ekið á flugvöllinn í tæka tíð fyrir síðdegisflugið til Sansibar. Þar með lýkur safaríævintýrinu og nýr kafli hefst með slökun og uppgötvun á þessari fallegu eyju.
Við komuna á Sansibar alþjóðaflugvölllinn tekur starfsfólk á móti okkur og sér um akstur á hótelið. Eftir innritun er restin af deginum frjáls til að slaka á eða kanna umhverfið á eigin hraða.
Máltíðir innifaldar:
Gisting – 3 nætur
Gisting á sveitasetri, Breezes Beach Club and Spa eða sambærilegt.
Í aldaraðir hefur eyjan Sansibar vakið upp myndir af dularfullum og töfrandi draumi. Þar sem Breezes er staðsett á suðausturströnd eyjarinnar – einu rólegasta og ósnortnasta svæði hennar – er staðurinn fullkominn fyrir þá sem vilja komast í burtu frá amstri dagsins og njóta kyrrðar og náttúrufegurðar.
Þessi fallega hótel- og orlofsmiðstöð stendur við hreina og ósnortna sandströnd sem teygir sig eins langt og augað eygir. Hér er lögð mikil áhersla á smáatriði, persónulega þjónustu, einstakan sjarma og hlýlegt viðmót.
Breezes Beach Club & Spa er staðsett í fallegum suðrænum görðum við friðsæla strönd á austurströnd eyjarinnar, um það bil klukkustundar akstur frá Stone Town. Hótelið er þekkt fyrir mikla natni í þjónustu, rómantíska og einkarekna matarupplifun og einstaka Sansibar-hönnun með fallegum útskurði, glitrandi kopar og ríkulegum efnum sem skapa glæsilegt og sérstakt andrúmsloft.
Árið 2005 hlaut Breezes Beach Club & Spa viðurkenninguna „Best Resort in Tanzania“ á World Travel Awards.
Dagur 15
mið. 24. feb. 2027
Dagur 15
mið. 24. feb. 2027
Slökun og strandlíf
Hvítar strendur og slökun | Sansibar
Dagurinn er til frjálsrar ráðstöfunar á Sansibar. Eyjan býður upp á fallegar strendur, afslappað andrúmsloft og fjölbreytta afþreyingu.
Máltíðir innifaldar:
Dagur 16
fim. 25. feb. 2027
Dagur 16
fim. 25. feb. 2027
Enn meiri rólegheit
Frjáls dagur í paradís | Sansibar
Annar rólegur dagur á Sansibar til að hvíla sig og njóta umhverfisins.
Valfrjáls afþreying á Sansibar
- kryddferð
- Stone Town skoðunarferð
- Prison Island
- snorkl eða köfun
- höfrungaskoðun
- Jozani-skógurinn
- sólseturssigling á dhow-bát
- sund með skjaldbökum
- kajak eða stand-up paddleboarding
- djúpsjávarveiðar
Dagur 17
fös. 26. feb. 2027
Dagur 17
fös. 26. feb. 2027
Flug til Frankfurt
Heimferð hefst | Frankfurt
• Zanzibar (ZNZ) – Frankfurt (FRA)
• Brottför kl. 09:50 – koma kl. 19:45
• Flug: LH4359
Máltíðir innifaldar:
Gisting – 1 nótt
Gisting á 4 stjörnu hóteli, Hilton Frankfurt Airport eða sambærilegt.
Hilton Frankfurt Airport er nútímalegt og þægilegt fjögurra stjörnu hótel staðsett beint við Terminal 1 á Frankfurt-flugvelli. Það er í byggingunni The Squaire, rétt ofan við lestarstöðina, með beinni göngubrú inn í flugstöðina.
Hótelið býður upp á rúmgóð og hljóðeinangruð herbergi með nútímalegri hönnun, veitingastað með alþjóðlegri matargerð, bar, líkamsræktaraðstöðu og góða fundaraðstöðu.
Staðsetningin, aðeins um 15 mínútur frá miðborg Frankfurt.
Dagur 18
lau. 27. feb. 2027
Dagur 18
lau. 27. feb. 2027
Heimflug
Heimkoma | Ísland
Flug frá Frankfurt heim til Íslands.
Verð og greiðsluskilmálar
Verð á mann er 1.480.000 kr. miðað við gistingu í tveggja manna herbergi.
Einstaklingsherbergi er í boði gegn 215.000 kr. gjaldi.
Staðfestingargjald að upphæð 296.000 kr. (20% af grunnverði) skal greiðast innan þriggja vikna frá skráningu.
Lokagreiðsla, að upphæð 1.184.000 kr., skal greiðast í síðasta lagi 10. nóv. 2026.
Farþegum gefst kostur á að velja aðra ferðaleið til og frá Afríku. Verð án flugs og tveggja gistinátta í Frankfurt 1.070.000 kr. Sjá nánar í skilmálum varðandi flugfargjöld.
Verð ferðarinnar er birt í íslenskum krónum (ISK). Greiðsla fer fram í evrum (EUR) samkvæmt opinberu gengi á greiðsludegi.
Lágmarksfjöldi: 6 manns.
Hámarksfjöldi: 12 manns.
Smærri hópar, stærri upplifanir!
Innifalið
Valfrjálsar upplifanir
Loftbelgjasafarí yfir Masai Mara
Morgunverður úti í náttúrunni
Heimsókn í Maasai-þorp
Gönguferð með Maasai-leiðsögumanni
Kvöldverður undir stjörnuhimni
Ekki innifalið
Máltíðir sem ekki eru taldar upp í innifalið
Drykkjarföng og persónuleg útgjöld
Þjórfé fyrir erlendan fararstjóra og rútubílstjóra
Farangursþjónusta á hótelum
Forfalla- og ferðatryggingar
Flugfargjöld – skilmálar
Heildarverð ferðarinnar miðast við flugfargjöld þann 22.04.25, eða um 370.000 kr. á mann.
Þetta er ekki ódýrasta flugleiðin!
Það er velkomið að velja aðrar ferðaleiðir til Kenía og fra Tansaníu þ.e. að bóka sitt eigið flug. Þá kemur ofangreint verð til fradráttar uppgefnu heildarverði ferðarinnar.
Verð án flugs og gistingar í Frankfurt báðar leiðir er 1.070.000 kr.
Í þeim tilfellum ber þátttakandi sjálfur ábyrgð á að mæta á upphafsstað ferðarinnar á réttum tíma.
Innifalið í farmiðagjöldum
Standard Economy: Sæti gegn gjaldi, innifalinn handfarangur að þyngd 7 kg., ferðataska 23 kg. Ekki er boðin endurgreiðsla á flugmiða ef breyta þarf áætlun.
Ef flugverð hækkar áður en lokabókun fer fram, áskilur VIA Travel sér rétt til að leiðrétta heildarverð ferðarinnar um þá upphæð sem hækkun flugverðsins nemur.
Ef heildarverð ferðarinnar hækkar meira en sem nemur 8% vegna þessara eða annara þátta geta þátttakendur hætt við án skuldbindinga og staðfestingargjaldið fæst endurgreitt.
Upplifun farþega okkar
Japan og S-Kórea.
Gamall draumur minn að fara til Japans rættist loksins. Ég var svo heppin að velja réttu ferðaskrifstofuna sem varð til þess að japansferðin mín fór langt fram úr væntingum. Það stóðst allt fullkomlega og meira en það. Í kaupbæti fékk ég 4 nætur í s-Koreu sem ég hefði alls ekki vilja missa af. Get mælt heilshugar með VIA travel. Mun fylgjast vel með hvaða spennandi ferðir verða í boði í náinni framtíð.
María Elíasdóttir
Ferð til S-Kóreu og Japans vorið 2026
Ferðin til S-Kóreu og Japans vorið 2026 var í alla staði mjög svo vel heppnuð. Stóð fullkomlega undir væntingum. Bæði íslensku fararstjórarnir, þeir Pétur og Bjarni og innlendu leiðsögumennirnir (sá kóreanski og þeir japönsku) góðir og fróðir.
Ferðamátar allir þægilegir (flug, hraðlestir og rútur)
Gisting til fyrirmyndar og matur sem fylgdi ferðapakkanum góður og fjölbreyttur.
Frábær ferð í alla staði sem hægt er að mæla með
Haukur Vald. og Hrefna Sig..
Hrefna Sigurðardóttir
Ferð okkar með Via Travel til S-Kóreu og Japan var afar vel skipulögð og tókst að sama skapi vel í framkvæmd. Hittum t.d. á blómatíma Kirsuberjatrjánna. Tíminn var vel nýttur án þess að vera of hratt keyrt. Leiðsögn var í góðu lagi og hópurinn hæfilega stór. Höfum víða farið en þetta er með betri ferðum sem við höfum farið. Áslaug og Sveinn.
Sveinn Hannesson
Við hjónin fórum með VIA Travel til Suður Kóreu og Japans. 17 daga ferð sem var mjög vel skipulögð öll dagskrá stóðst upp á 10. Íslenskur fararstjóri, Pétur Eggerz, var frábær og eins innlendir fararstjórar góðir. Við mælum hiklaust með VIA travel.
Böðvar Örn og Gestný
Böðvar Örn Sigurjónsson
Stórkostleg ferð til Seúl og Japan
Fórum í stórkostlega ferð með viaworld.travel til Seúl og Japan. Meiri háttar upplifun í vel skipulagðri ferð með góðri fararstjórn. Ferðin og fyrirtækið til fyrirmyndar.
Birgir Finnbogason
Við fórum til Suður Kóreu og Japan…
Við fórum til Suður Kóreu og Japan 17mars -2.apríl. 2026
Mjög ánægð með skipulaginguna og kom sérstaklega kom vel út að byrja í Suður -Kóreu.
Mikil upplifun að koma til Japan.
Alveg ógleymanleg ferð, takk fyrir okkur.
Magga og Andri.
Margrét Guðmundsóttir
Egyptaland - Tyrkland.
Fórum í ferð með via world til Egyptalands og Tyrklands, í stuttu máli þá stóðst ferðin allar okkar væntingar, skoðað allt það merkilegasta, meðal annars Píramídana, markaði, hof, dal konunganna, sigldum niður Nil, syntum í Nil og fl, fararstjórin var frábær, ekki síður innlendir leiðsögumenn, frábær hótel og fl.
Mæli eindregið með þessari ferðaskrifstofu og takk fyrir yndislega og fræðandi ferð, með góðu og skemmtilegu fólki. Einar Þór Einarsson
Einar Þór Einarsson
Þetta var toppferð
Þetta var toppferð. Stóðst allt sem um var talað skoðunarferðir, hótel og leiðsögumenn. Skilur eftir góðar minningar
Högni Gunnarsson
Istanbúl og Egyptaland í september. Var að koma úr stórkostlegu ferðalagi…
Var að koma úr stórkostlegu ferðalagi með góðum hópi á vegum Via World Travel til Istanbul og Egyptalands, þar sem fornir og ævafornir menningarheimar voru teknir beint í æð. Heimsókn í menningarminjarnar í Egyptalandi eru einstök upplifun og Istanbul er töfrandi borg. Allt utanumhald mjög skilvirkt og gott og öll leiðsögn um hin fornu mannvirki mjög vönduð og fræðandi. Öll ferðin var ævintýri líkast.
Guðrún Guðmundsdóttir
En super oplevelse
En super oplevelse, som blev gjort mulig ved vores guide Bjarni's store viden og indsigt i Islands historie, geografi og sprog, som blev givet og præsenteret med at varmt og humoristisk glimt i øjet. Kan varmt anbefales!
Jesper
Trip to Island
Our trip to Iceland with 'Via Wold' was a fantastic experience.
Iceland offers very rugged and beautiful nature and at the same time a very friendly people.
Thanks for an experience of a lifetime.
Niels Toftensberg
Perfect stay at Iceland⭐️⭐️⭐️⭐️⭐️
We had as a group the best and most flexible and competent guide in Bjarni.
We went to see the most beautyfull sights and things, and places on Iceland.
Our stay on Reykavik Natura Berjay hotel was a wonderfull place to stay 10-15 min. From Reykavik centrum. But perfectly placed becauce we went on bustrips every day.
Pia Løvholt
Alles sehr gut organisiert
Alles sehr gut organisiert und ich fühlte mich durch Brjani immer gut informiert und unterhalten.
Elisabeth Gerdes
Rundreise durch Island im Oktober 2025
Unsere Rundreise durch Island war einfach traumhaft - ein Erlebnis, das wir nie vergessen werden. Die Natur hat uns mit ihrer wilden Schönheit tief beeindruckt: tosende Wasserfälle, endlose Lavafelder, Gletscher und heiße Quellen - jedes Ziel war ein neues Staunen.
Was die Reise aber wirklich besonders gemacht hat, war unser wunderbarer Guide. Mit viel Wissen über und Begeisterung für das Land, einem tollen Gespür für die Gruppe und einem ansteckenden Humor hat er uns nicht nur sicher durchs Land geführt, sondern auch viele besondere Momente geschenkt.
Diese Reise war ein echtes Herzensabenteuer - beeindruckend und voller schöner Erinnerungen..
Dorit Eckhoff
Wunderschöne Reise in Island
Mit unserer Reisegruppe erlebten wir eine wundervolle Zeit auf Island. Unser Guide Bjarni brachte uns seine Heimat mit seinem Wissen über Land und Leute, in seiner einzigartigen Art und Weise näher. Wir durften Wale beobachten, Nordlichter sehen und die wunderschönen Wasserfälle sehen. Vielen Dank dafür.
Anja Marischen
Islandrundreise
Wir konnten mit unserem Reiseleiter Bjarni Meyer Einarsson eine wunderschöne 10-tägige Rundreise auf Island erleben. Die Reise führte uns zu den vielen atemberaubenden Naturschönheiten des Landes. Dazu gehörten die faszinierenden Wasserfälle, die riesigen Gletscher, die Lagunen, Vulkane und Geysire sowie als besonderes Highlight die Beobachtung der Wale. Der Reiseplan war optimal vorbereitet und doch blieb Platz für individuelle Wünsche unserer Reisegruppe.
Bjarni hat uns sein Land mit so viel Humor, Wissen und Herz nähergebracht - das werden wir nicht vergessen.
Klaus und Andrea Muhle aus Visbek
Andrea und Klaus Muhle
Island Oktober 2025
In 10 Tagen eine wunderbare Reise rund um Island gemacht. Mit allem was dieses Land ausmacht: Wasserfälle, Gletscher, Geysire und Nordlichter. Sogar Wale durften wir sehen. Danke an Bjarne, dass er so viel möglich gemacht hat und dazu so viele Informationen und Geschichten geliefert hat.
Maria Trumme
Island-Rundreise…
Unsere Islandreise mit einer Reisegruppe aus Deutschland war ganz fantastisch. Unser Guide Bjarni hat alles perfekt vorbereitet und uns an die schönsten Stellen Islands gebracht. Seine Erläuterungen zu Land und Leuten, geschichtlichen Hintergründen und lustigen Geschichten hat uns gezeigt, dass hier ein echter "Kenner" Islands am Werk ist. Ein durch und durch sympathischer Reiseführer. Alles hat wunderbar geklappt und auch die Unterkünfte waren guter Standard. Vielen lieben Dank !
Ludger Tönjes
Skøn natur oplevelse på Island
Turen var vel tilrettelagt og godt arrangeret. Vi fik set de vigtigste naturoplevelser på kort tid. Guiden har en stor viden om øen.
Margot Madsen-Ovesen
Travel to Island med via World
Recently I was 3,5 day in Island with via World travel agency joining a small group of 7 persons.
Everything was so well organized by the owner Bjarni Meyer Einarsson. Thingvellir National Park with the first parliament dating back to the vikings Geysir, Gullfoss waterfall, lagoons, vulcano and earthquake impact, whale observing... the list is even longer! Combined with a profound knowledge of the nature as well as a lot of historical data I can highly recommend via World travel for a very proff organizing and spiced with the personal touch and involvement of the owner. The other members of the tour having same great experience.
Hans Siegfredsen
Sjá allar umsagnir um VIA Travel
Fararstjóri
Pétur Eggerz verður fararstjóri í þessari ferð. Pétur er fæddur og uppalinn í Reykjavík, lengst af í Breiðholtinu. Eftir nám í bókmenntafræði við Háskóla Íslands nam hann leiklist í Lundúnum og útskrifaðis t þaðan 1984. Hann hefur tekið þátt í leiksýningum hjá Leikfélagi Akureyrar, Þjóðleikhúsinu, Alþýðuleikhúsinu, Leikfélagi Reykjavíkur og víðar. Honum hefur einnig brugðið reglulega fyrir í kvikmyndum og sjónvarpi. Þá vann hann um hríð við dagskrárgerð á Rás 1.
Pétur var einn stofnenda Möguleik
hússins árið 1990 og starfaði þar í nær þrjá áratugi sem leikari, leikstjóri og höfundur. Meðal verka sem hann vann fyrir Möguleikhúsið má t.d. nefna Eldklerkinn, einleik sem fjallar um séra Jón Steingrímsson. Þá hefur hann einnig séð um heimsóknir íslensku jólasveinana í Þjóðminjasafnið allt frá árinu 1995.
Pétur er einnig menntaður leiðsögumaður og útskrifaðist sem slíkur frá Leiðsöguskóla Íslands 2006. Frá þeim tíma hefur hann þvælst vítt og breitt með ferðamenn um landið.
Á ferð okkar til Egyptalands mun Pétur halda utan um hópinn, samhæfa daglegt skipulag og styðja við þátttakendur af sinni röggsemi og nærgætni.
Staðarleiðsögumenn
Ferðir um allan heim
Við skipuleggjum sérsniðnar ferðir fyrir einstaklinga, hópa, félög og fyrirtæki
– láttu drauminn verða að veruleika.
Áttu þér draumaferð?
Segið okkur hvert ykkur langar að fara!
Við gerum tilboð í ferðir til fjarlægra landa.
Lágmark 10 manna hópar, en minnst 4 í safaríferð.
Við svörum innan 24 tíma!
Vegabréfsáritun
Íslendingar þurfa vegabréfsáritun til að heimsækja Kenía og Tansaníu. Áritunin er auðveld í framkvæmd og er afgreidd við komu á flugvellinum, þar sem við veitum aðstoð. Vegabréfsáritun er innifalin í verðinu.
Bólusetningar
Smitsjúkdómar eru mismunandi eftir löndum og heimsálfum. Bólusetningar fara eftir hvað þú ert að fara að gera og hvert þú ert að fara. Einnig eru smitsjúkdómar mismunandi eftir árum og tímabilum og í raun síbreytanlegir.
Hafðu í huga að fara í bólusetningar nokkrum vikum áður en ferðalagið hefst. Hafið samband við ferðavernd eða heilsugæslu með góðum fyrirvara, ekki seinna en 3 mánuðum fyrir brottför. Þar mun fagfólk aðstoða þig og veita þér ráðgjöf er varðar hvaða bólusetning mun henta þér hverju sinni. Þetta er sérstaklega mikilvægt vegna þess að sumar sprautur þarf að endurtaka. Hins vegar eru sumar sprautur sem endast í tugi ára.
Algengir sjúkdómar sem mælt er með að bólusetja sig fyrir eru til dæmis stífkrampi, heilahimnubólga og lifrarbólga A og B. Einnig er þekkt að taka malaríulyf á svæðum þar sem hún er virk.
Förum varlega í að gefa öðrum ferðalöngum ráð er varðar bólusetningar eða vörn gegn smitsjúkdómum (t.d malaríu). Ástæðan er sú að ekki gildir það sama um alla og þó þú hafir þurft eitthvað ákveðið gæti önnur manneskja þurft öðruvísi meðferð.
Læknir eða ferðavernd svara öllum spurningum varðandi bólusetningar og heilsuvernd.
Við leggjum í hann eftir
- 00daga
- 00klukkutíma
- 00mínútur
