紅葉 Koyo - Seúl と Japan
Við hefjum ferðina í Seúl, Suður-Kóreu og dveljum þar í þrjár nætur. Seúl er lífleg og nútímaleg stórborg. Við heimsækjum Gyeongbokgung höllina, göngum um Insadong listagötuna og förum í leiðangur að landamærum Norður-Kóreu.
Við kynnum okkur menningu, náttúru og sögu Japans, þar sem árþúsundagamlar venjur lifa enn í fullkomnu jafnvægi við nútímann.
紅葉 Koyo haustlitaferð
Táknið „koyo“ 紅葉 vísar til haustlita Japans – rauðra, gylltra og hlýlegra tóna sem umbreyta landslaginu. Það táknar fegurð breytinga og árstíðaskipti, þar sem náttúran sýnir sína dýpstu og rólegustu hlið.
紅葉 Koyo – Seúl と Japan
Við hefjum ferðina í Seúl, Suður-Kóreu og dveljum þar í þrjár nætur.
Seúl er lífleg og nútímaleg stórborg. Við heimsækjum Gyeongbokgung höllina, göngum um Insadong listagötuna og förum í leiðangur að landamærum Norður-Kóreu.
Við kynnum okkur menningu, náttúru og sögu Japans, þar sem árþúsundagamlar venjur lifa enn í fullkomnu jafnvægi við nútímann.
桜 Sakura – Kirsuberjablómatíminn
17 daga ferð: 31.03 – 14.04.27
Táknið „sakura“ 桜 stendur fyrir fegurð, vor og hverfulleika lífsins – táknrænt blóm sem hefur djúpa merkingu í japanskri menningu.
紅葉 Koyo haustlitaferð
17 daga ferð: 22.10 – 07.11.26 (þessi ferð)
Táknið „koyo“ 紅葉 vísar til haustlita Japans – rauðra, gylltra og hlýlegra tóna sem umbreyta landslaginu. Það táknar fegurð breytinga og árstíðaskipti, þar sem náttúran sýnir sína dýpstu og rólegustu hlið.
Hápunktar ferðarinnar
Seúl – kraftur og menning
Heillandi blanda af hefð og nútíma.
DMZ – saga og raunveruleiki
Einstök innsýn í skiptingu Kóreuskagans.
Hiroshima & Miyajima – friður og fegurð
Sterk saga og ein fallegasta eyja Japans.
Kyoto – hjarta Japans
Hof, hefðir og kyrrð.
Hakone – náttúra og slökun
Fjöll, onsen og útsýni til Fuji.
Tokyo – líf og orka
Stórborg þar sem allt mætist.
紅葉 Koyo – Seúl と Japan
Hápunktar ferðarinnar
Við hefjum ferðina í Seúl, Suður-Kóreu og dveljum þar í þrjár nætur.
Seúl er lífleg og nútímaleg stórborg. Við heimsækjum Gyeongbokgung höllina, göngum um Insadong listagötuna og förum í leiðangur að landamærum Norður-Kóreu.
Við kynnum okkur menningu, náttúru og sögu Japans, þar sem árþúsundagamlar venjur lifa enn í fullkomnu jafnvægi við nútímann.
桜 Sakura vorferð:
Táknið „sakura“ 桜 stendur fyrir fegurð, vor og hverfulleika lífsins – táknrænt blóm sem hefur djúpa merkingu í japanskri menningu.
紅葉 Koyo haustferð:
Táknið „koyo“ 紅葉 vísar til haustlita Japans – rauðra, gylltra og hlýlegra tóna sem umbreyta landslaginu. Það táknar fegurð breytinga og árstíðaskipti, þar sem náttúran sýnir sína dýpstu og rólegustu hlið.
Seúl – kraftur og menning
Heillandi blanda af hefð og nútíma.
DMZ – saga og raunveruleiki
Einstök innsýn í skiptingu Kóreuskagans.
Hiroshima & Miyajima – friður og fegurð
Sterk saga og ein fallegasta eyja Japans.
Kyoto – hjarta Japans
Hof, hefðir og kyrrð.
Hakone – náttúra og slökun
Fjöll, onsen og útsýni til Fuji.
Tokyo – líf og orka
Stórborg þar sem allt mætist.
Myndir frá síðustu ferð
Síðasta ferð okkar til Seúl og Japans í mars 2026 var mjög vel heppnuð eins og sjá má af þeim umsögnum sem VIA Travel hefur fengið á trustpilot. Við leyfum nokkrum myndum úr ferðinni að fylgja hér að neðan. Þær gefa skemmtilega innsýn í fjölbreytt ferðalag um áhugaverðar slóðir Kóreuskagans og Japan.
Skoða ferðalýsingu
Dagur 1
þri. 30. mars 2027
Dagur 1
fim. 22. okt. 2026
Brottför og ævintýrið hefst
Brottför frá Keflavíkurflugvelli með Finnair.
Við fljúgum til Helsinki og þaðan áfram til Seúl með
næturflugi. Framundan eru dagar fullir af ævintýrum og
spennandi upplifunum.
Flug: Finnair AY992 og AY041
Brottför frá Keflavík: kl. 10:00
Millilending í Helsinki: kl. 15:30–16:35
Lending í Seúl: kl. 12:20 næsta dag.
Tímamismunur: +8 klst.(Suður-Kórea er 9 klst. á undan Íslandi)
Dagur 2
mið. 31. mars 2027
Dagur 2
fös. 23. okt. 2026
Seúl – fyrstu kynni af borginni
Lending í Seúl kl. 1120. (Kl. 03:20 á ísl. tíma)
Staðarleiðsögumaður tekur á móti okkur á flugvellinum. Við höldum í átt til hótelsins sem er mjög vel staðsett í miðborg Seúl.
Boðið verður upp á stutta gönguferð í nágrenni hótelsins, þar sem við kynnum okkur borgarlífð og nærliggjandi svæði, t.d. Deoksugung höllina, Namadaemun markaðinn og Cheonggye Plaza.
Gisting – 3 nætur
Gisting á 3
hóteli, Stanford Hotel Myeongdong eða sambærilegt.
- Tveggja manna herbergi (reyklaust)
- Morgunverðarhlaðborð
- Ókeypis þráðlaust net (WiFi)
- Loftkæling
- Dagleg þrif
- Móttaka opin allan sólarhringinn
Dagur 3
fim. 1. apríl 2027
Dagur 3
lau. 24. okt. 2026
Saga og menning Seúl
Við byrjum daginn á heimsókn í hina glæsilegu Gyeongbokgung-höll. Höllin var endurreist árið 1395 og endurspeglar hefðir kóreskra hallabygginga sem gegndu lykilhlutverki í stjórnsýslu og hirðlífi. Eftir það heimsækmum við þjóðminjasafn Kóreu, sem gefur
dýrmæta innsýn í sögu og menningu þjóðarinnar.
Síðdegis göngum við um Bukchon Hanok Village, þar sem vel varðveitt hefðbundin kóresk hús (hanok) standa í andstæðu við nútímalega borgina.
Frjálst kvöld.
Dagur 4
fös. 2. apríl. 2027
Dagur 4
sun. 25. okt. 2026
DMZ – Landamæri Norður-Kóreu
Við förum í skemmtilega dagsferð til landamæra Norður-Kóreu. DMZ-svæðið (Demilitarized Zone), hefur löngum táknað átök og spennu – en í dag býður það upp á einstaka innsýn í sögu og stöðu mála á Kóreuskaganum.
Við skoðum meðal annars Panmunjom, þar sem leiðtogar beggja ríkja hafa hist í friðarviðræðum, og fáum tækifæri til að staldra við og íhuga þann veruleika sem fólkið á þessu svæði býr við. Á meðal annarra áhugaverðra staða eru Þriðju innrásargöngin – neðanjarðargöng sem grafin voru frá Norður-Kóreu – og Dora-útsýnisstöðin, þar sem mögulegt er að skyggnast yfir til norðurs.
Sameiginlegur hádegisverður.
Við förum einnig í Imjingak, stað helgaðan friði og minningu, og heimsækjum Dorasan-lestarstöðina – tákn um von um framtíðar tengingu ríkjanna.
Í lok dags njótum við tónlistarsýningar. Frjálst kvöld.
Dagur 5
lau. 3. apríl 2027
Dagur 5
mán. 26. okt. 2026
Flug til Japans – Hiroshima
Við yfirgefum Suður-Kóreu að morgni dags og höldum áleiðis til Japans.
Flug: Korean Air KE791
Brottför frá Seúl í Suður -Kóreu kl. 10:50
Lending í Fukuoka Í Japan kl. 12:35
Við komuna til Japans tekur enskumælandi staðarleiðsögumaður á móti okkur. Við höldum áfram ferð okkar með háhraðalest til Hiroshima.
Við gögnum um Shukkei-en garðinn, þriggja alda gamlan samúræjagarð sem státar af miðlægum tjörnum, fallegum brúarmannvirkjum og friðsælu landslagi. Góð afslöppun frá ys og þys borgarinnar.
Gisting – 2 nætur
Gisting á 4
hóteli, Hótel Intergate Hiroshima, eða sambærilegt.
- Superior tveggja manna herbergi (reyklaust)
- Morgunverðarhlaðborð
- Ókeypis þráðlaust net (WiFi)
- Loftkæling
- Dagleg þrif
- Móttaka opin allan sólarhringinn
Dagur 6
sun. 4. apríl 2027
Dagur 6
þri. 27. okt. 2026
Miyajima-eyja, helgur staður og náttúra
Dagurinn hefst með ferjuferð yfir til hinnar helgu Miyajima-eyju, sem er talin ein af þremur fegurstu náttúruperlum Japans. Við komu blasir við okkur eitt af þekktustu kennileitum landsins – hið fljótandi torii-hlið sem stendur úti í sjó og markar innganginn að Itsukushima-hofinu. Þetta rauða hlið virðist svífa á yfirborði vatnsins við flóð og skapar ógleymanlegt sjónarspil.
Við göngum um eyjuna og skoðum Itsukushima-hofið, sem stendur á súlum í sjónum og er tileinkað gyðju hafsins. Umhverfið er kyrrlátt og andrúmsloftið fullt af helgri ró, þar sem náttúran og trúarleg menning renna saman í fullkomnu jafnvægi.
Við skoðum m.a. fimmhæða timburstrýtu (padgoda) og göngum að Daisho-hofinu.
Eftir hádegi gefst kostur á að ganga upp fallega skógi vaxna stíga, eða taka kláf upp á Misen-fjall, hæsta tind eyjunnar. Á leiðinni opnast stórbrotin útsýni yfir Seto-innhafið og nærliggjandi eyjar.
Dagur 7
mán. 5. apríl 2027
Dagur 7
mið. 28. okt. 2026
Hiroshima og Kyoto
Við heimsækjum sögufræga staði eins og Friðargarðinn og Friðarsafnið, þar sem við fáum dýpri innsýn í atburðina sem breyttu heimsmyndinni fyrir rúmum 80 árum.
Við yfirgefum Hiroshima um hádegi og höldum með háhraðalest til Kyoto þar sem við gistum næstu fjórar nætur. Ferðin tekur um það bil 2 klst.
Athugið: Ferðatöskurnar verða sendar áfram til næsta gististaðar, svo við berum aðeins með okkur handfarangur.
Kyoto, önnur höfuðborg Japans, upplifði blómatíma listar og menningar fram á 12. öld og er gjarnan kölluð vagga japanskrar menningar. Þó borgin hafi orðið fyrir áföllum í stríðum, slapp hún sem með kraftaverki við eyðileggingu í seinni heimsstyrjöldinni og varðveitir þannig dýrmætan menningararf.
Eftir komuna til Kyoto höldum við áfram með háhraðalestinni til Kyoto og förum beint í Gion-hverfið, hið forna samúræa- og geisha-hverfi og virðum það fyrir okkur.
Við njótum sameignilegs kvöldverðar í Gion hverfinu í góðum félagsskap.
Gisting – 4 nætur
Gisting á 4
hóteli, Via Inn Prime Kyoto Station, eða sambærilegt.
- Superior Twin Room herbergi, reyklaust
- Morgunverðarhlaðborð
- Ókeypis þráðlaust net (WiFi)
- Hitastýring í herbergi (loftkæling)
- Dagleg þrif
- Þvotta- og fatahreinsunarþjónusta
- Móttaka opin allan sólarhringinn
Dagur 8
þri. 6. apríl 2027
Dagur 8
fim. 29. okt. 2026
Hof og helgidómar í Kyoto
Að morgni dags heimsækjum við Fushimi Inari Taisha, shinto-hofið sem er helgað refaguðinum Inari, verndara hrísgrjónaræktar og kaupmanna.
Þúsundir appelsínugulra torii-hliða mynda langan og krókóttan göngustíg sem liðast upp fjallið – draumur ljósmyndara og skemmtileg ferðaupplifun. Gönguleiðin er aðgengileg í styttri útgáfu fyrir þás sem vilja fara rólega yfir.
Að loknu hádegishléi förum við vestur yfir Kyoto til Arashiyama, þar sem við skoðum Tenryū-ji, Zen-búddistahof sem var stofnað á 14. öld og er skráð á heimsminjaskrá UNESCO. Þar er fallegur einnig garður með vatni og útsýni til fjalla.
Sanjusangendo-hofið, þar sem má finna ótrúlegt safn af 1.001 gylltum Kannon-styttum í mannsstærð – allar frá 12. og 13. öld. Stytturnar eru mikið sjónarspil sem vekja djúpa lotningu og aðdáun.
Eftir heimsókn í Sanjusangendo-hofið förum við til Kiyomizu-dera, búddistahofs frá 8. öld sem stendur á háum viðarsúlum með útsýni yfir borgina. Þar er hægt að ganga inn í hofið og njóta glæsilegs útsýnis frá útsýnispalli sem er einn frægasti útsýnispallur Kyoto.
Að göngum um Higashiyama-hverfið, þar sem finna má gömul verslunarhús, smáverslanir með minjagripi, te-hús og lítil veitingahús.
Dagur 9
mið. 7. apríl 2027
Dagur 9
fös. 30. okt. 2026
Gull, kastalar og teathöfn
Við hefjum daginn með göngutúr um Arashiyama bambusskóginn, þar sem háttvaxnir stilkar allt að 20 metrar á hæð hreyfast mjúklega í vindi og mynda einstaka birtu- og hljóðupplifun.
Við höldum þessu næst til Kinkaku-ji, Gyllta hofsins, sem er eitt þekktasta kennileiti Kyoto. Hofið var upphaflega reist sem dvalarstaður fyrir samúræjahöfðingja á 14. öld en var síðar gert að zen-búddistahofi. Það er klætt blaðagulli og speglast í lítilli tjörn með garði sem endurspeglar japanska hönnunarhefð.
Eftir hádegisverð skoðum við miðborg Kyoto.
Vi göngum um Nishiki-markaðinn, sem hefur verið starfandi í yfir 400 ár og býður fjölbreytt úrval japanskra matvæla, hráefna og sérvöru.
Síðdegis er boðið upp á japanska teathöfn. Þar lærum við um hefðina á bak við teathafnir og fáum að smakka matcha-te í rólegu umhverfi.
Kvöldið er frjálst.
Dagur 10
fim. 8. apríl 2027
Dagur 10
fös 31. okt. 2026
Frjáls dagur
Dagurinn er án formlegrar dagskrár – þú getur notið þess að
slaka á eða tekið þátt í skipulögðum viðburðum. Hér eru
nokkrar tillögur:
- Zen hugleiðsla og garðheimsókn:
Lærðu um Zen hugleiðslu og heimsæktu japanska garða. - Matreiðslunámskeið: Taktu þátt í japönsku matreiðslu
námskeiði og lærðu að búa til hefðbundna rétti. - Einnig er hægt að fara í styttri dagsferðir, til dæmis til Nara,
Uji eða Osaka.
Eins og sjá má býður Kyoto upp á fjölbreyttar upplifanir semvert er að kanna nánar.
VIA Travel mun bæði aðstoða við og skipuleggja valfrjálsra viðburði / dagsferðir sé þess óskað.
Dagur 11
fös. 9. apríl. 2027
Dagur 11
sun. 1. nóv. 2026
Frá Kyoto til Hakone
Við kveðjum Kyoto – hina fornu höfuðborg keisaranna – og tökum Shinkansen háhraðalestina í átt til Mishima, svæðis þar sem náttúran tekur völdin og Fuji-fjall blasir við sjóndeildarhringinn ef skyggni leyfir. Fuji-fjall er sjáanlegt um 80 daga á ári.
Við heimsækjum Pola listasafnið i Hakone. Safnið var opnað árið 2002 og er hluti af Fuji-Hakone-Izu þjóðgarðinum.
Það hýsir safn yfir 9.500 listaverka, sem fyrrverandi forstjóri Pola snyrtivörufyrirtækisins safnaði, þar á meðal mörg verk frá franska impressjónismanum og listamönnum tengdum École de Paris.
Bygging safnsins hefur vakið mikla athygli fyrir einstaka hönnun. Árið 2013 var bætt við „Pola listasafns náttúrustígnum“, 670 metra gönguleið innan safnsvæðisins, sem gefur gestum kost á að njóta náttúrunnar í Fuji-Hakone-Izu þjóðgarðinum á sérstakan hátt.
Eftir heimsókn á safnið förum við til Ashi vatns og njótum útsýnis úr kláfum sem ferðast yfir svæðið.
Við höldum þessu mnást til hótelsins, verðum komin tímanlega og náum vonandi að baða okkur í onsen, sem eru í raun heitu pottar þeirra Japana.
Máltíðir innifaldar:
Gisting – 1 nótt
Gisting á spennandi 3
Onsenhóteli, Yu Yu Hakone eða sambærilegt.
- Hefðbundið herbergi tveimur rúmum, reyklaust, með garðútsýni
- Morgunverðu
- Þráðlaust net (WiFi)
- Loftkæling
- Garður
Dagur 12
lau. 10. apríl 2027
Dagur 12
mán. 2. nóv. 2026
Útilistasafn, samúrajar og búdda
Við höldum í átt til Hakone, sem er þekkt fyrir jarðhitasvæði og náttúrufegurð.
Við hefjum daginn á að heimsækja Hakone útilistasafnið, sem var fyrsta útilistasafn Japans þegar það opnaði árið 1969. Safnið sameinar náttúrulegt landslag við list – stór skúlptúrverk eftir bæði japanska og alþjóðlega listamenn eru staðsett í fallegum garði þar sem gróður og fjallasýn mynda umgjörð.
Í safninu er einnig sérstakur salur tileinkaður Pablo Picasso, þar sem sýnd eru keramikverk, skissur og myndir eftir listamanninn, auk tímabundinna sýninga. Þetta er óvenjuleg upplifun þar sem list og náttúra mætast á lifandi hátt, og gestir fá næði til að skoða verkin í eigin hraða.
Við ökum til Kamakura, fyrrum höfuðborgar samúræja. Þar sjáum við Hase-dera hofið, stóru styttuna af Búdda og verslunargötuna Komachi-dori.
Við ökum frá Tókýó til Kamakura, sem var höfuðborg Japans á Kamakura-tímabilinu (1185–1333), þegar samúræjastéttin fór með völd. Borgin er þekkt fyrir trúarlega minnisvarða og rólegra stemningu, í mikilli andstöðu við hraða stórborgarinnar. Kamakura gegndi lykilhlutverki í þróun Zen-búddisma í Japan og hefur varðveitt fjölmargar byggingar frá miðöldum.
Við heimsækjum Hase-dera hofið, sem stendur á hæð með útsýni yfir sjóinn. Þar má sjá styttu af Kannon með ellefu höfuðum, og í hofgarðinum eru göngustígar, litlar hallir og hellar með smástýttum. Hofið er einnig þekkt fyrir árstíðabundin blóm, sérstaklega hortensíur og kirsuberjablóm.
Næst höldum við að stóru Búddastyttunni í Kamakura (Daibutsu), sem er næststærsta bronstytta Búdda í Japan. Hún var steypt á 13. öld og stendur nú undir berum himni eftir að hofið sem umvafði hana eyðilagðist í flóði. Þrátt fyrir aldur og náttúruhamfarir stendur hún enn upprétt sem tákn um þolinmæði og einfaldleika hinnar Zen-innblásnu trúar.
Við áfram ferðinni til Tókýó. Ferðin tekur tæpa tvo tíma og við komum til borgarinnar síðdegis. Þar innritum við okkur á hótelið.
Hótelið okkar er staðsett í Asakusa-hverfinu. Eftir innritun hótelið skoðum við nærumhvefið og heimsækjum Sensoji-hofið, sem er elsta búddahof Tókýó og á sér rætur aftur til 7. aldar. Hofið er helgað Kannon, vinsælli guðamynd í japanskri búddatrú, og er enn mikið notað af heimamönnum. Leiðin að hofinu liggur um Nakamise-verslunargötuna, þar sem sölubásar bjóða upp á hefðbundna japanska snarlrétti, handverk, minjagripi og kimono.
Á hofsvæðinu má sjá gesti tendra reykelsi og skrifa óskir á trélappir. Byggingarnar eru endurreistar eftir seinni heimsstyrjöld, en eru í samræmi við hefðbundinn stíl. Þetta svæði er jafnt trúarlegt athvarf og ferðamannastaður og gefur innsýn í hvernig japönsk hefð og nútíma verslun fara saman á sama stað.
Máltíðir innifaldar:
Gisting – 4 nætur
Gisting á 4
hóteli, Hotel Gracery Asakusa eða sambærilegt.
- Tveggja manna herbergi, reyklaust
- Morgunverðarhlaðborð
- Þráðlaust net (WiFi)
- Hitastýring í herbergi (loftkæling)
- Dagleg þrif
- Þvotta- og fatahreinsunarþjónusta
- Móttaka opin allan sólarhringinn
Dagur 13
sun. 11. apríl 2027
Dagur 13
þri. 3. nóv. 2026
Dagur 14
mán. 12. apríl 2027
Dagur 14
mið. 4. nóv. 2026
Dagsferð um Tókýó
Við hefjum daginn á að skoða Shinjuku Gyoen garðinn sem er einn fallegasti og fjölbreyttasti garðurinn í Tokyo, staðsettur rétt við iðandi Shinjuku-hverfið. Garðurinn sameinar þrjá ólíka stíla: japanskan hefðargarð, franskan formgarð og enskan landslagsgarð.
Skammt frá iðandi tískugötum Harajuku og skærum auglýsingaskjám finnum við Meiji Jingu hofið, sem hefur frá upphafi verið meira en bara trúarstaður. Hofið var reist árið 1920 í minningu Meiji-keisara, sem gegndi lykilhlutverki í umbreytingu Japans úr lokuðu samfélagi í nútímalega þjóð.
Hofið er umlukt skógi sem var plantað sérstaklega í kringum bygginguna. Þar eru yfir 100.000 tré frá öllum landshlutum, sem voru gefin þegar hofið var reist.
Hofið sjálft er dæmigert fyrir Shinto-byggingarstíl og samanstendur af viðarbyggingum úr japönskum sedrusviði. Á svæðinu má sjá gesti leggja fram bænaspjöld og fara með ákveðnar athafnir samkvæmt siðum Shinto-trúarinnar. Þetta er vinsæll áfangastaður í borginni og mikið sóttur bæði af ferðafólki og heimamönnum.
Við fáum frjálsan tíma í hádeginu.
Við endum daginn í Shibuya, einu mannmesta og þekktasta hverfi Tókýó. Þar upplifum við Shibuya Crossing – gangbrautina þar sem hundruð manna fara yfir götuna samtímis þegar ljósin breytast. Þeir sem vilja geta farið upp á útsýnispallinn Shibuya Sky eða skoðað verslanir og líf á götum hverfisins.
Þessu næstu akstur á hótel eða frjáls tími við Shibuya og ferð á eigin vegum tilbaka til hótelsins.
Dagur 15
þri. 13. apríl 2027
Dagur 15
mið. 5. nóv. 2026
Frjáls dagur
Daginn fyrir brottförnstendur til boða að njóta Tókýó á eigin vegum. Það eru ótal möguleikar á að skrá sig í valfrjálsa viðburði eða stuttar dagsferðir. Borgin býður upp á fjölbreytta menningu, mat, listir og afþreyingu – frá rólegum göngum í görðum til einstaka reynslu með heimamönnum.
Hér eru örfáar tillögur að upplifunum:
- Sushi- og japönsk matreiðslunámskeið
Lærðu að útbúa sushi, miso-súpu og fleiri hefðbundna rétti með leiðsögn japanskra matreiðslumanna.
GetYourGuide Kimono-prófun og myndataka
Fáðu að máta hefðbundinn kimono og ganga um söguleg hverfi Tókýó með ljósmyndara.
GetYourGuide
Hægt að slaka á og njóta borgarinnar á eigin hraða – hvort sem það er að njóta Asakusa, versla í Shibuya, heimsækja söfn eða setjast í garð með kaffibolla. Tókýó býður upp á endalausa möguleika.
Máltíðir innifaldar:
Dagur 16 og 17
mið. 14. - fim. 15. apríl 2027
Dagur 16 og 17
fim. 6. – fös. 7. nóv. 2026
Akstur um Tókýó, ljósmyndastopp
Þetta er síðasti dagur ferðarinnar. Við skráum okkur út af hótelinu kl. 11 og leggum í hann í hálfsdags skoðunarferð um Tókýó kl. 12.00.
Hér gefst tækifæri ti að stoppa víða og ná ljósmyndum af kennileytum borgarinnnar, ma. Tókýó Skytree, Keisarahöllinni og við munum einnig aka um Ginza hverfið.
Stutt stopp í Hamarikyu garðinum áður en haldið verður til sameinginlegs kvöldverðar.
Okkur verður ekið á flugvöllinn að loknum kvöldverði og skoðunarferð.
Brottför frá Tókýó með Finnair.
Við fljúgum með næturflugi til Helsinki og þaðan áfram til Íslands.
Flug: Finnair AY074 og AY991
Brottför frá Tókýó: kl. 21:50
Millilending í Helsinki: kl. 04:40–07:10
Lending á Keflavíkurflugvelli: kl. 07:50 þann 15. apríl.
Tímamismunur: -9 klst. (Japan er 9 klst. á undan Íslandi)
Verð og greiðsluskilmálar
erð á mann er 1.230.000 kr., miðað við gistingu í tveggja manna herbergi.
Einstaklingsherbergi er í boði gegn 185.000 kr. aukagjaldi.
Staðfestingargjald að upphæð 246.000 kr. (20% af grunnverði) skal greiðast innan þriggja vikna frá skráningu.
Lokagreiðsla, að upphæð 984.000 kr., skal greiðast í síðasta lagi 24. júlí 2026.
Verð ferðarinnar er birt í íslenskum krónum (ISK). Greiðsla fer fram í evrum (EUR) samkvæmt opinberu gengi á greiðsludegi.
Lágmarksfjöldi: 16 manns.
Hámarksfjöldi: 20 manns.
Smærri hópar, stærri upplifanir!
Innifalið
✅ Flug með Finnair til Seúl, Suður-Kóreu og heim frá Tókýó, Japan. Millilending í Helsinki
✅ Flug með Korean Air frá Seúl til Fukuoka í Japan
✅ Gisting á vel völdum 3–4 stjörnu hótelum
✅ Samgöngur innan ferðar (lestir, rútur og ferjur)
✅ Hraðlestir (Shinkansen) – fyrsta farrými
✅ Fararstjóri með í för frá Íslandi og enskumælandi leiðsögumenn í Suður-Kóreu og í Japan
✅ Aðgangur að söfnum, hofum, listigörðum og öðrum stöðum skv. dagskrá
✅ Aðgangur að súmóglímukappasýningu
✅ Dagsferðir skv. skipulagi
✅ Skattar og þjónustugjöld
Athugið að staðarleiðsögn fer fram á ensku. Íslenskur fararstjóri er til staðar fyrir aðstoð og útskýringar eftir þörfum, en ekki er um beina eða samfellda túlkun að ræða.
Valfrjálsar upplifanir
Ekki innifalið
Valfrjálsar upplifanir í Kyoto og Tókýó
Einkakostnaður, s.s. drykkir, minjagripir mm.
Forfallatryggingar (mælt með)
Máltíðir sem ekki eru taldar upp í innifalið
Drykkjarföng og persónuleg útgjöld
Farangurskostnaður yfir leyfileg mörk
Þjórfé fyrir fararstjóra, leiðsögumenn og bílstjóra
Farangursþjónusta á hótelum
Verð og greiðsluskilmálar
Verð á mann er 1.230.000 kr., miðað við gistingu í tveggja manna herbergi.
Einstaklingsherbergi er í boði gegn 185.000 kr. aukagjaldi.
Staðfestingargjald að upphæð 246.000 kr. (20% af grunnverði) skal greiðast innan þriggja vikna frá skráningu.
Lokagreiðsla, að upphæð 984.000 kr., skal greiðast í síðasta lagi 24. júlí 2026.
Verð ferðarinnar er birt í íslenskum krónum (ISK). Greiðsla fer fram í evrum (EUR) samkvæmt opinberu gengi á greiðsludegi.
Lágmarksfjöldi: 16 manns.
Hámarksfjöldi: 20 manns.
Smærri hópar, stærri upplifanir!
Innifalið
✅ Flug með Finnair til Seúl, Suður-Kóreu og heim frá Tókýó, Japan. Millilending í Helsinki
✅ Flug með Korean Air frá Seúl til Fukuoka í Japan
✅ Gisting á vel völdum 3–4 stjörnu hótelum
✅ Samgöngur innan ferðar (lestir, rútur og ferjur)
✅ Hraðlestir (Shinkansen) – fyrsta farrými
✅ Fararstjóri með í för frá Íslandi og enskumælandi leiðsögumenn í Suður-Kóreu og í Japan.
✅ Aðgangur að söfnum, hofum, listigörðum og öðrum stöðum skv. dagskrá
✅ Aðgangur að súmóglímukappasýningu
✅ Dagsferðir skv. skipulagi
✅ Skattar og þjónustugjöld
Athugið að staðarleiðsögn fer fram á ensku. Íslenskur fararstjóri er til staðar fyrir aðstoð og útskýringar eftir þörfum, en ekki er um beina eða samfellda túlkun að ræða.
Valfrjálsar upplifanir
Ekki innifalið
Valfrjálsar upplifanir í Kyoto og Tókýó
Einkakostnaður, s.s. drykkir, minjagripir mm.
Forfallatryggingar (mælt með)
Máltíðir sem ekki eru taldar upp í innifalið
Drykkjarföng og persónuleg útgjöld
Farangurskostnaður yfir leyfileg mörk
Þjórfé fyrir fararstjóra, leiðsögumenn og bílstjóra
Farangursþjónusta á hótelum
Upplifun farþega okkar
Japan og S-Kórea.
Gamall draumur minn að fara til Japans rættist loksins. Ég var svo heppin að velja réttu ferðaskrifstofuna sem varð til þess að japansferðin mín fór langt fram úr væntingum. Það stóðst allt fullkomlega og meira en það. Í kaupbæti fékk ég 4 nætur í s-Koreu sem ég hefði alls ekki vilja missa af. Get mælt heilshugar með VIA travel. Mun fylgjast vel með hvaða spennandi ferðir verða í boði í náinni framtíð.
María Elíasdóttir
Ferð til S-Kóreu og Japans vorið 2026
Ferðin til S-Kóreu og Japans vorið 2026 var í alla staði mjög svo vel heppnuð. Stóð fullkomlega undir væntingum. Bæði íslensku fararstjórarnir, þeir Pétur og Bjarni og innlendu leiðsögumennirnir (sá kóreanski og þeir japönsku) góðir og fróðir.
Ferðamátar allir þægilegir (flug, hraðlestir og rútur)
Gisting til fyrirmyndar og matur sem fylgdi ferðapakkanum góður og fjölbreyttur.
Frábær ferð í alla staði sem hægt er að mæla með
Haukur Vald. og Hrefna Sig..
Hrefna Sigurðardóttir
Ferð okkar með Via Travel til S-Kóreu og Japan var afar vel skipulögð og tókst að sama skapi vel í framkvæmd. Hittum t.d. á blómatíma Kirsuberjatrjánna. Tíminn var vel nýttur án þess að vera of hratt keyrt. Leiðsögn var í góðu lagi og hópurinn hæfilega stór. Höfum víða farið en þetta er með betri ferðum sem við höfum farið. Áslaug og Sveinn.
Sveinn Hannesson
Við hjónin fórum með VIA Travel til Suður Kóreu og Japans. 17 daga ferð sem var mjög vel skipulögð öll dagskrá stóðst upp á 10. Íslenskur fararstjóri, Pétur Eggerz, var frábær og eins innlendir fararstjórar góðir. Við mælum hiklaust með VIA travel.
Böðvar Örn og Gestný
Böðvar Örn Sigurjónsson
Stórkostleg ferð til Seúl og Japan
Fórum í stórkostlega ferð með viaworld.travel til Seúl og Japan. Meiri háttar upplifun í vel skipulagðri ferð með góðri fararstjórn. Ferðin og fyrirtækið til fyrirmyndar.
Birgir Finnbogason
Við fórum til Suður Kóreu og Japan…
Við fórum til Suður Kóreu og Japan 17mars -2.apríl. 2026
Mjög ánægð með skipulaginguna og kom sérstaklega kom vel út að byrja í Suður -Kóreu.
Mikil upplifun að koma til Japan.
Alveg ógleymanleg ferð, takk fyrir okkur.
Magga og Andri.
Margrét Guðmundsóttir
Egyptaland - Tyrkland.
Fórum í ferð með via world til Egyptalands og Tyrklands, í stuttu máli þá stóðst ferðin allar okkar væntingar, skoðað allt það merkilegasta, meðal annars Píramídana, markaði, hof, dal konunganna, sigldum niður Nil, syntum í Nil og fl, fararstjórin var frábær, ekki síður innlendir leiðsögumenn, frábær hótel og fl.
Mæli eindregið með þessari ferðaskrifstofu og takk fyrir yndislega og fræðandi ferð, með góðu og skemmtilegu fólki. Einar Þór Einarsson
Einar Þór Einarsson
Þetta var toppferð
Þetta var toppferð. Stóðst allt sem um var talað skoðunarferðir, hótel og leiðsögumenn. Skilur eftir góðar minningar
Högni Gunnarsson
Istanbúl og Egyptaland í september. Var að koma úr stórkostlegu ferðalagi…
Var að koma úr stórkostlegu ferðalagi með góðum hópi á vegum Via World Travel til Istanbul og Egyptalands, þar sem fornir og ævafornir menningarheimar voru teknir beint í æð. Heimsókn í menningarminjarnar í Egyptalandi eru einstök upplifun og Istanbul er töfrandi borg. Allt utanumhald mjög skilvirkt og gott og öll leiðsögn um hin fornu mannvirki mjög vönduð og fræðandi. Öll ferðin var ævintýri líkast.
Guðrún Guðmundsdóttir
En super oplevelse
En super oplevelse, som blev gjort mulig ved vores guide Bjarni's store viden og indsigt i Islands historie, geografi og sprog, som blev givet og præsenteret med at varmt og humoristisk glimt i øjet. Kan varmt anbefales!
Jesper
Trip to Island
Our trip to Iceland with 'Via Wold' was a fantastic experience.
Iceland offers very rugged and beautiful nature and at the same time a very friendly people.
Thanks for an experience of a lifetime.
Niels Toftensberg
Perfect stay at Iceland⭐️⭐️⭐️⭐️⭐️
We had as a group the best and most flexible and competent guide in Bjarni.
We went to see the most beautyfull sights and things, and places on Iceland.
Our stay on Reykavik Natura Berjay hotel was a wonderfull place to stay 10-15 min. From Reykavik centrum. But perfectly placed becauce we went on bustrips every day.
Pia Løvholt
Alles sehr gut organisiert
Alles sehr gut organisiert und ich fühlte mich durch Brjani immer gut informiert und unterhalten.
Elisabeth Gerdes
Rundreise durch Island im Oktober 2025
Unsere Rundreise durch Island war einfach traumhaft - ein Erlebnis, das wir nie vergessen werden. Die Natur hat uns mit ihrer wilden Schönheit tief beeindruckt: tosende Wasserfälle, endlose Lavafelder, Gletscher und heiße Quellen - jedes Ziel war ein neues Staunen.
Was die Reise aber wirklich besonders gemacht hat, war unser wunderbarer Guide. Mit viel Wissen über und Begeisterung für das Land, einem tollen Gespür für die Gruppe und einem ansteckenden Humor hat er uns nicht nur sicher durchs Land geführt, sondern auch viele besondere Momente geschenkt.
Diese Reise war ein echtes Herzensabenteuer - beeindruckend und voller schöner Erinnerungen..
Dorit Eckhoff
Wunderschöne Reise in Island
Mit unserer Reisegruppe erlebten wir eine wundervolle Zeit auf Island. Unser Guide Bjarni brachte uns seine Heimat mit seinem Wissen über Land und Leute, in seiner einzigartigen Art und Weise näher. Wir durften Wale beobachten, Nordlichter sehen und die wunderschönen Wasserfälle sehen. Vielen Dank dafür.
Anja Marischen
Islandrundreise
Wir konnten mit unserem Reiseleiter Bjarni Meyer Einarsson eine wunderschöne 10-tägige Rundreise auf Island erleben. Die Reise führte uns zu den vielen atemberaubenden Naturschönheiten des Landes. Dazu gehörten die faszinierenden Wasserfälle, die riesigen Gletscher, die Lagunen, Vulkane und Geysire sowie als besonderes Highlight die Beobachtung der Wale. Der Reiseplan war optimal vorbereitet und doch blieb Platz für individuelle Wünsche unserer Reisegruppe.
Bjarni hat uns sein Land mit so viel Humor, Wissen und Herz nähergebracht - das werden wir nicht vergessen.
Klaus und Andrea Muhle aus Visbek
Andrea und Klaus Muhle
Island Oktober 2025
In 10 Tagen eine wunderbare Reise rund um Island gemacht. Mit allem was dieses Land ausmacht: Wasserfälle, Gletscher, Geysire und Nordlichter. Sogar Wale durften wir sehen. Danke an Bjarne, dass er so viel möglich gemacht hat und dazu so viele Informationen und Geschichten geliefert hat.
Maria Trumme
Island-Rundreise…
Unsere Islandreise mit einer Reisegruppe aus Deutschland war ganz fantastisch. Unser Guide Bjarni hat alles perfekt vorbereitet und uns an die schönsten Stellen Islands gebracht. Seine Erläuterungen zu Land und Leuten, geschichtlichen Hintergründen und lustigen Geschichten hat uns gezeigt, dass hier ein echter "Kenner" Islands am Werk ist. Ein durch und durch sympathischer Reiseführer. Alles hat wunderbar geklappt und auch die Unterkünfte waren guter Standard. Vielen lieben Dank !
Ludger Tönjes
Skøn natur oplevelse på Island
Turen var vel tilrettelagt og godt arrangeret. Vi fik set de vigtigste naturoplevelser på kort tid. Guiden har en stor viden om øen.
Margot Madsen-Ovesen
Travel to Island med via World
Recently I was 3,5 day in Island with via World travel agency joining a small group of 7 persons.
Everything was so well organized by the owner Bjarni Meyer Einarsson. Thingvellir National Park with the first parliament dating back to the vikings Geysir, Gullfoss waterfall, lagoons, vulcano and earthquake impact, whale observing... the list is even longer! Combined with a profound knowledge of the nature as well as a lot of historical data I can highly recommend via World travel for a very proff organizing and spiced with the personal touch and involvement of the owner. The other members of the tour having same great experience.
Hans Siegfredsen
Sjá allar umsagnir um VIA Travel
Fararstjóri
Pétur Eggerz verður fararstjóri í þessari ferð. Pétur er fæddur og uppalinn í Reykjavík, lengst af í Breiðholtinu. Eftir nám í bókmenntafræði við Háskóla Íslands nam hann leiklist í Lundúnum og útskrifaðis t þaðan 1984. Hann hefur tekið þátt í leiksýningum hjá Leikfélagi Akureyrar, Þjóðleikhúsinu, Alþýðuleikhúsinu, Leikfélagi Reykjavíkur og víðar. Honum hefur einnig brugðið reglulega fyrir í kvikmyndum og sjónvarpi. Þá vann hann um hríð við dagskrárgerð á Rás 1.
Pétur var einn stofnenda Möguleikhússins og starfaði þar í nær þrjá áratugi sem leikari, leikstjóri og höfundur. Meðal verka sem hann vann fyrir Möguleikhúsið má t.d. nefna Eldklerkinn, einleik sem fjallar um séra Jón Steingrímsson. Þá hefur hann einnig séð um heimsóknir íslensku jólasveinana í Þjóðminjasafnið allt frá árinu 1995.
Pétur er einnig menntaður leiðsögumaður og útskrifaðist sem slíkur frá Leiðsöguskóla Íslands 2006. Frá þeim tíma hefur hann þvælst vítt og breitt með ferðamenn um landið.
Á ferð okkar til Seúl og Japans mun Pétur halda utan um hópinn, samhæfa daglegt skipulag og styðja við þátttakendur af sinni röggsemi og nærgætni.
Staðarleiðsögumenn
Reyndir staðarleiðsögumenn frá traustum samstarfsaðilum okkar í báðum löndum munu taka á móti hópnum, veita faglega og fróðlega leiðsögn á áfangastöðunum og tryggja að við upplifum bæði menningu og sögu á dýpri hátt. Þeir fylgja hópnum frá upphafi til enda og vinna í nánu samstarfi við fararstjóra til að tryggja hnökralausa ferð.
Vegabréfsáritun
Það er hvorki gerð krafa um bólusetningar þegar ferðast er til Suður-Kóreu né Japans.
Bólusetningar
Smitsjúkdómar eru mismunandi eftir löndum og heimsálfum. Bólusetningar fara eftir hvað þú ert að fara að gera og hvert þú ert að fara. Einnig eru smitsjúkdómar mismunandi eftir árum og tímabilum og í raun síbreytanlegir.
Það er ekki gerð krafa um bólusetningar þegar ferðast er til Japan.
Við leggjum í hann eftir
- 00daga
- 00klukkutíma
- 00mínútur
Ferðir um allan heim
Við skipuleggjum sérsniðnar ferðir fyrir einstaklinga, hópa, félög og fyrirtæki
– láttu drauminn verða að veruleika.
Áttu þér draumaferð?
Segið okkur hvert ykkur langar að fara!
Við gerum tilboð í ferðir til fjarlægra landa.
Lágmark 10 manns, en minnst 4 manns í safaríferð.
Við svörum innan 24 tíma!
