Ferðaskilmálar

VIA Travel

Gildistími frá 20. apríl 2026

Ferðaskilmálar VIA Travel 

Við hvetjum viðskiptavini til að kynna sér skilmála þessa áður en bókun fer fram.

Bókun og greiðslur

Bókun telst bindandi þegar hún hefur verið staðfest af VIA Travel og staðfestingargjald greitt.
Staðfestingargjald er almennt 20% af heildarverði ferðar og greiðist við bókun.

Staðfestingargjald er óafturkræft, nema ferð sé aflýst af VIA Travel.

Í einstaka sérferðum getur staðfestingargjald verið hærra ef samstarfsaðilar erlendis gera slíka kröfu.
Fullnaðargreiðsla skal berast eigi síðar en 90 dögum fyrir brottför, nema annað sé tekið fram.

Verð 

Verð miðast við bókunardag og getur breyst vegna gengissveiflna, skatta eða breytinga á flutningskostnaði.
Innifalið í verði er eingöngu það sem tilgreint er í ferðalýsingu.

Afbókanir

Afbókanir skulu berast skriflega. Endurgreiðsla fer eftir tímasetningu:

Meira en 90 dagar fyrir brottför: endurgreitt að frádregnu staðfestingargjaldi

  • 60–89 dagar: 50% endurgreiðsla
  • 45–59 dagar: 25% endurgreiðsla
  • Minna en 45 dagar: engin endurgreiðsla

Ef viðskiptavinur mætir ekki til ferðar fellur réttur til endurgreiðslu niður.

Aflýsing af hálfu VIA Travel

VIA Travel getur aflýst ferð ef lágmarksþátttaka næst ekki eða vegna annarra ófyrirséðra aðstæðna.

Lágmarksfyrirvari við aflýsingu er:

  • 21 dagur fyrir ferðir lengri en 6 daga
  • 7 dagar fyrir ferðir 2–6 daga
  • 48 klst. fyrir styttri ferðir

Við slíka aflýsingu er boðin full endurgreiðsla eða sambærileg ferð.

Breytingar á ferðum

VIA Travel áskilur sér rétt til að gera breytingar á ferðaáætlun ef nauðsyn krefur.

Að annar fararstjóri en auglýstur leiði ferð telst almennt ekki veruleg breyting á ferð, nema viðkomandi hafi með menntun, reynslu eða sérhæfðri þekkingu aflað sér sérþekkingar sem telst lykilatriði í innihaldi og upplifun ferðarinnar.

Ábyrgð og tryggingar

Viðskiptavinur ber ábyrgð á gildum ferðaskilríkjum og tryggingum (ferðatrygging, sjúkra- og farangurstrygging).

VIA Travel ber ekki ábyrgð á töfum eða breytingum sem rekja má til aðila sem fyrirtækið ræður ekki við, svo sem flugfélaga eða veðurs.

Við óviðráðanlegar aðstæður (force majeure) getur endurgreiðsla takmarkast við það sem fæst frá samstarfsaðilum.

Kvartanir

Kvartanir skulu berast á meðan á ferð stendur svo unnt sé að bregðast við.
Senda skal skriflega kvörtun innan 14 daga frá lokum ferðar ef þörf krefur.

Annað

Um ferðir gilda jafnframt lög um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun.

VIA Travel 
Robert Jacobsens Vej 35, 5mf.
2300 Kaupmannahöfn, Danmörk
Símar: 830 0300 og +45 44 111 777
Netfang: travel@viaworld.travel
Vefsíða: www.viatravel.is
Framkvæmdastjóri: Bjarni Meyer Einarsson

Vinsamlegast hafið samband ef óskað er nánari upplýsinga.

Ferðaskilmálar að ofan gilda frá 20. apríl 2026. 

Skilmálarnir eru þeir sömu og fyrir via World Travel og via Iceland sem eru rekin undir sömu kennitölu.

Eldri skilmálar

1. Almennt

Þessir ferðaskilmálar gilda fyrir allar ferðir sem bókaðar eru í gegnum via World ApS / via Iceland ApS. Með því að skrá sig í ferð eða staðfesta bókun samþykkir þátttakandi þessa skilmála.


 
2. Bókun og greiðsluskilmálar
  • Staðfestingargjald þarf að greiðast við bókun og er það almennt óendurgreiðanlegt, nema annað sé sérstaklega tekið fram.
  • Fullnaðargreiðsla vegna ferðar skal innt af hendi eigi síðar en 90 dögum fyrir brottför, nema annað sé tekið fram í samningi.
  • Þjónustugjald er innheimt fyrir þjónustu sem er ekki innifalin í verði ferðar, t.d. sérpöntun á bílaleigubíl, gistingu o.fl.
  • Ef greiðsla berst ekki innan tilskilins tíma áskilur via World ApS sér rétt til að ógilda bókunina án endurgreiðslu.

 
3. Innifalið í verði
  • Verð ferða er miðað við þær upplýsingar sem gilda á bókunardegi.
  • Ef breytingar verða á gjaldmiðlum, sköttum, eldsneytisgjöldum eða öðrum kostnaðarliðum, áskilur via World ApS sér rétt til að breyta verði í samræmi við það.
  • Innifalið í verði er einungis það sem sérstaklega er tekið fram í ferðalýsingu, t.d. flug, gisting, ferðir, aðgangseyrir og leiðsögn þar sem við á.

 
4. Afturköllun og endurgreiðslufyrirkomulag

Allar afbókanir þurfa að berast skriflega til via World ApS.

4.1 Staðfestingargjald

  • Staðfestingargjald er 20% af heildarverði ferðar og er óafturkræft nema ferð sé felld niður af via World ApS.

4.2 Endurgreiðsla eftir því hvenær afbókun berst

  • Meira en 90 dögum fyrir brottför – Endurgreiðsla að frádregnu staðfestingargjaldi.
  • 60-89 dögum fyrir brottför – Endurgreiðsla á 50% af ferðaverði.
  • 45-59 dögum fyrir brottför – Endurgreiðsla á 25% af ferðaverði.
  • Minna en 45 dögum fyrir brottför – Engin endurgreiðsla.
  • Ef ferðamaður mætir ekki til ferðar eða missir af flugi/ferð, er engin endurgreiðsla veitt.

Ef greitt hefur verið með kreditkorti fer endurgreiðslan inn á sama kort og notað var til greiðslu.

4.3 Aflýsing af hálfu via World ApS

  • via World getur hætt við ferð allt að 28 dögum fyrir brottför ef ekki næst lágmarksfjöldi þátttakenda, að uppfylltum eftirfarandi skilyrðum:

    a) Lágmarksfjöldi þátttakenda og tímasetning fyrir aflýsingu ferðar hafa verið tilgreind í bæði ferðalýsingu og staðfestingu ferðar. 

    b) Við staðfestingu ferðar skulu þessi ákvæði koma fram á skýran og læsilegan hátt.

    Afturköllun verður að vera tilkynnt í síðasta lagi á þeim degi sem tilgreindur er í ferðalýsingu og við staðfestingu ferðar. 

    Ef ferð er aflýst af hálfu via World ApS / via Iceland ApS, er boðin full endurgreiðsla.

  • via World ApS ber ekki ábyrgð á aukaútgjöldum sem kunna að hafa fallið til hjá viðskiptavini, svo sem vegna flugmiða eða annarra bókana sem ekki eru hluti af pakkaferðinni.

5. Breytingar á ferðum

  • via World ApS áskilur sér rétt til að breyta dagskrá ferða ef nauðsyn krefur, t.d. vegna veðurs, aðstæðna á áfangastað eða annarra ófyrirséðra aðstæðna.
  • Ef breytingar eiga sér stað mun fyrirtækið leitast við að veita sambærilega þjónustu.

 
6. Ábyrgð ferðamannsins
  • Ferðamaður ber ábyrgð á að hafa gild vegabréf og vegabréfsáritun, ef þörf krefur.
  • Ferðamaður ber ábyrgð á að vera tryggður með ferðatryggingu og sjúkratryggingu.
  • Ferðamaður ber ábyrgð á að fylgja settum reglum og leiðbeiningum fararstjóra eða samstarfsaðila via World ApS á hverjum áfangastað.

 
7. Ábyrgð via World ApS
  • via World ApS tryggir að allar ferðir séu skipulagðar með faglegum hætti.
  • Fyrirtækið ber ekki ábyrgð á töfum, náttúruhamförum, veðri, verkföllum eða öðrum utanaðkomandi aðstæðum sem það ræður ekki við.
  • Ef bilun verður í þjónustu samstarfsaðila mun via World ApS leitast við að finna lausn, en ber ekki fjárhagslega ábyrgð á slíku.

 
8. Kvartanir og ágreiningur
  • Ef ferðamaður hefur ábendingar eða kvartanir skulu þær berast strax á meðan ferð stendur svo hægt sé að leysa málið á staðnum.
  • Ef ekki tekst að leysa úr kvörtun á staðnum má senda skriflega kvörtun innan 14 daga frá lokum ferðar.
  • Ágreiningsmál sem ekki er hægt að leysa með samkomulagi verða leyst samkvæmt lögum.

 
9. Skylda til að veita aðstoð

via World er skuldbundið til að veita viðskiptavinum aðstoð ef neyðartilvik koma upp.


 
10. Kröfur og fyrningarfrestur

Kröfur vegna galla á ferð þjónustu fyrnast eftir tvö ár.


 
11. Vegabréfs- og vegabréfsáritunarkröfur

via World veitir viðskiptavinum upplýsingar um reglur varðandi vegabréf, vegabréfsáritanir og heilsufarskröfur. Viðskiptavinurinn ber hins vegar sjálfur ábyrgð á að uppfylla þessar kröfur.


 
12. Lögsaga og varnarþing

Lögsaga og varnarþing er í samræmi við lögsögu via World í Danmörku.


 
13. Persónuvernd

Persónuupplýsingar eru meðhöndlaðar í samræmi við gildandi persónuverndarlög og reglur.


 
14. Ferðaskipuleggjandi

via World Aps
Robert Jacobsens Vej 35, 5mf.
2300 Kaupmannahöfn, Danmörk
Símar: 830 0300 og +45 44 111 777
Netföng: team@viaiceland.com og bjarni.meyer@viaworld.travel
Vefsíða: www.viaiceland.com/viaworld
Framkvæmdastjóri: Bjarni Meyer Einarsson


Það er eindregið mælt meða að ferðamenn kaupi ferðatryggingu sem nær yfir hugsanlega afbókun eða röskun á ferðalagi.

Vinsamlegast hafið samband ef óskað er frekari upplýsinga.

Gildir til 20 apríl 2026

Scroll to Top