Spurt og svarað

VIA Travel

Hafið endilega samband ef þið hafið spurningar til okkar

Spurt og svarað

Tókst bókunin mín?
Já, ef þú hefur fengið staðfestingu í tölvupósti (getur tekið allt að 30 mínútur – skoðaðu líka spam).

Þarf ég bólusetningu?
Fer eftir áfangastað. Skoðaðu leiðbeiningar hjá landlækni áður en þú ferð.

Hvenær fæ ég ferðagögnin mín?
Þú færð staðfestingu strax eftir bókun. Þegar ferðin er fullgreidd gildir hún sem ferðagagn.

Er forfallatrygging innifalin?
Nei, þú þarft að athuga það hjá tryggingafélagi eða kreditkorti.

Hvað er innifalið í fæði?

  • Hálft fæði: morgun- og kvöldverður
  • Fullt fæði: morgun-, hádegis- og kvöldverður
  • Allt innifalið: matur + drykkir

Fer lokagreiðsla sjálfkrafa af kortinu?
Nei, þú þarft að ganga sjálf/ur frá henni.

Þarf ég vegabréf?
Já, alltaf þegar þú ferðast erlendis. Oft þarf það að gilda í minnst 6 mánuði.

Þarf ég vegabréfsáritun (visa)?
Fer eftir landi – athugaðu það tímanlega.

Geta börn ferðast ein?
Það fer eftir flugfélagi og aldri – reglur eru mismunandi.

Hvað ef flug seinkar?
Flugfélagið sér um upplýsingar, mat og gistingu ef þarf.

Hvað ef taskan skemmist eða týnist?
Tilkynntu það strax á flugvellinum – flugfélagið sér um málið.

Þarf að borga fyrir öryggishólf á hóteli?
Oft já, en það er mismunandi eftir gististöðum.

Hvaða greiðslumöguleikar eru í boði?
Kreditkort, millifærsla eða raðgreiðslur (fer eftir þjónustuaðila).

Ertu með fleiri spurningar?
Þú ert alltaf velkomin/n að hafa samband við okkur – við hjálpum þér með ánægju.

Scroll to Top