Inkaslóðir & töfrar Galapagoseyja

18 dagar l 18. sept. - 5. okt. 2026


Ævintýraferð um Perú og Ekvador

1.177.000 kr.

Verð á mann, miðað við gistingu í tveggja manna herbergi

Ævintýraferð um Perú og Ekvador

Inkaslóðir og töfrar Galapagoseyja

Hápunktar ferðarinnar

Þessi ferð sameinar stórfenglega menningu og einstaka náttúru á tveimur mögnuðum áfangastöðum. Í Perú upplifum við sögu Inkaríkisins, litríka matarmenningu og hina stórbrotnu Machu Picchu í hjarta Andesfjallanna. Við kynnumst hefðum, handverki og sögulegum stöðum sem hafa mótað arfleifð landsins í árhundruð.

Á Galapagos-eyjum höldum við inn í töfrandi heim dýralífs, þar sem risaskjaldbökur, sæljón, igúanar, sjófuglar og eldfjallalandslag mynda ógleymanlega heild. Þetta er ferð sem sameinar ævintýri, menningu, náttúruundur og hugljúfa upplifun sem fylgir því að kynnast tveimur af merkustu svæðum jarðar í einni glæsilegri ferð. 

Sögulegur miðbær Lima

Barranco matarmenning

Inkahöfuðborgin Cusco

Sacred Valley

Heimsundrið Machu Picchu

Inkarústir Cusco

Heimsminjar í Quito

Einstakt dýralíf Galapagoseyja 

Snorkl í Tintoreras 

Eldgígur Sierra Negra 

Valfrjálsar upplifanir

Íslenskur fararstjóri
fylgir hópnum

Íslenskur fararstjóri fylgir hópnum og sér um skipulag og utanumhald ferðarinnar.
Reyndir staðarleiðsögumenn miðla sögu og menningu á hverjum stað.

Takmarkaður fjöldi þátttakenda

Ferðin er skipulögð fyrir minni hóp þar sem þægindi og persónuleg þjónusta eru í fyrirrúmi.

Smærri hópar, stærri upplifanir!

Traustir
samstarfsaðilar

Við störfum með viðurkenndum og reyndum samstarfsaðilum og leggjum ríka áherslu á öryggi, gæði og áreiðanleika í allri framkvæmd ferðarinnar.

Íslenskur fararstjóri

Takmarkaður fjöldi þátttakenda

Traustir
samstarfsaðilar

Hvað segja viðskiptavinir?

Kynnstu fararstjóranum

Sigfús Kristjánsson er fararstjóri í þessari ferð

Sigfús hefur starfað sem prestur í 23 ár, lengst af í Kópavogi en frá 2020 hefur hann verið sendiráðsprestur í Kaupmannahöfn og þjónað íslenska söfnuðinum í Danmörku.

Sigfús hefur tekið þátt í skátastarfi frá barnsaldri og hefur m.a. verið félagsforingi, setið í stjórn Bandalags íslenskra skáta og verið í fararstjórn á alheims-mót skáta í tvígang.

Suður- Ameríku áhugi kviknaði hjá Sigfúsi eftir alheimsmót skáta sem haldið var um áramótin 1998-99 í Chile. “Það var stórkostleg upplifun að kynnast fólki alls staðar að úr heiminum. Þar hittum við skáta frá flestum löndum álfunnar. Ég man eftir að hafa spurt marga hvaða stað væri ógleymanlegt að sjá. Það komu ýmis svör en flestir nefndu  eitt af undrum veraldar Machu Picchu. Það má því segja í þessari ferð verði að veruleika draumur sem ég hef gengið með í maganum í nærri þrjá áratugi“ segir Sigfús og hann hlakkar til að leiða okkur í gegnum Perú og Galapagos.

Óbindandi skráning
– tryggðu þér sæti

Til að fá gott yfirlit yfir hópinn og tryggja að allt verði skipulagt sem best, biðjum við ykkur um að fylla út meðfylgjandi skráningarform. Þetta hjálpar okkur að laga ferðina sem best að ykkar þörfum og óskum og skapa sem besta upplifun. Með skráningu tryggir þið ykkur einnig sæti í ferðinni.  Þið fáið staðfestingu á skáningu með tölvupósti (athugið spam!).

Við bendum ykkur á að skoða þá valkosti sem í boði og merkja þar sem á við.

Skráningin er fyrst bindandi eftir greiðslu staðfestingargjalds.  

Ferðaskilmálar

Sjá ferðaskilmála

Við leggjum í hann eftir

  • 00daga
  • 00klukkutíma
  • 00mínútur
Scroll to Top