桜 Sakura - Seúl と Japan

Tvö lönd, ein ferð

Ferðatímabil:  17. mars - 2. apríl 2026

Ferð fyrir þá sem vilja kynnast menningu, náttúru og daglegu lífi í Seúl og Japan. 

Fararstjóri: Pétur Eggerz leikari, leikstjóri og leiðsögumaður.

Óbindandi skráning – tryggðu þér sæti

Skráningin er fyrst bindandi eftir greiðslu staðfestingargjalds.  

Óbindandi skráning
– tryggðu þér sæti

Til að fá gott yfirlit yfir hópinn og tryggja að allt verði skipulagt sem best, biðjum við ykkur um að fylla út meðfylgjandi skráningarform. Þetta hjálpar okkur að laga ferðina sem best að ykkar þörfum og óskum og skapa sem besta upplifun. Með skráningu tryggir þið ykkur einnig sæti í ferðinni.  Þið fáið staðfestingu á skáningu með tölvupósti (athugið spam!).

Við bendum ykkur á að skoða þá valkosti sem í boði og merkja þar sem á við.

Skráningin er fyrst bindandi eftir greiðslu staðfestingargjalds.  

Ferðaskilmálar

Vinsamlegast kynnið ykkur ferðaskilmála hér að neðan.
 
Athugið að via World ApS getur hætt við ferð allt að 28 dögum fyrir brottför ef ekki næst lágmarksfjöldi þátttakenda.
 
Ef ferð er aflýst af hálfu via World ApS / via Iceland ApS, er boðin full endurgreiðsla.

Ferðaskilmálar

1. Almennt

Þessir ferðaskilmálar gilda fyrir allar ferðir sem bókaðar eru í gegnum via World ApS / via Iceland ApS. Með því að skrá sig í ferð eða staðfesta bókun samþykkir þátttakandi þessa skilmála.


 

2. Bókun og greiðsluskilmálar

  • Staðfestingargjald þarf að greiðast við bókun og er það almennt óafturkræft, nema annað sé sérstaklega tekið fram.
  • Fullnaðargreiðsla vegna ferðar skal innt af hendi eigi síðar en 90 dögum fyrir brottför, nema annað sé tekið fram í samningi.
  • Þjónustugjald er innheimt fyrir þjónustu sem er ekki innifalin í verði ferðar, t.d. sérpöntun á bílaleigubíl, gistingu o.fl.
  • Ef greiðsla berst ekki innan tilskilins tíma áskilur via World ApS sér rétt til að ógilda bókunina án endurgreiðslu.

 

3. Innifalið í verði

  • Verð ferða er miðað við þær upplýsingar sem gilda á bókunardegi.
  • Ef breytingar verða á gjaldmiðlum, sköttum, eldsneytisgjöldum eða öðrum kostnaðarliðum, áskilur via World ApS sér rétt til að breyta verði í samræmi við það.
  • Innifalið í verði er einungis það sem sérstaklega er tekið fram í ferðalýsingu, t.d. flug, gisting, ferðir, aðgangseyrir og leiðsögn þar sem við á.

 

4. Afturköllun og endurgreiðslufyrirkomulag

Allar afbókanir þurfa að berast skriflega til via World ApS.

4.1 Staðfestingargjald
  • Staðfestingargjald er 10% af heildarverði ferðar og er óafturkræft nema ferð sé felld niður af via World ApS.
4.2 Endurgreiðsla eftir því hvenær afbókun berst
  • Meira en 90 dögum fyrir brottför – Endurgreiðsla að frádregnu staðfestingargjaldi.
  • 60-89 dögum fyrir brottför – Endurgreiðsla á 50% af ferðaverði.
  • 45-59 dögum fyrir brottför – Endurgreiðsla á 25% af ferðaverði.
  • Minna en 45 dögum fyrir brottför – Engin endurgreiðsla.
  • Ef ferðamaður mætir ekki til ferðar eða missir af flugi/ferð, er engin endurgreiðsla veitt.

Ef greitt hefur verið með kreditkorti fer endurgreiðslan inn á sama kort og notað var til greiðslu.

4.3 Aflýsing af hálfu via World ApS
  • via World getur hætt við ferð allt að 28 dögum fyrir brottför ef ekki næst lágmarksfjöldi þátttakenda, að uppfylltum eftirfarandi skilyrðum:

    a) Lágmarksfjöldi þátttakenda og tímasetning fyrir aflýsingu ferðar hafa verið tilgreind í bæði ferðalýsingu og staðfestingu ferðar. 

    b) Við staðfestingu ferðar skulu þessi ákvæði koma fram á skýran og læsilegan hátt.

    Afturköllun af hálfu via World ApS verður að vera tilkynnt í síðasta lagi á þeim degi sem tilgreindur er í ferðalýsingu. 

    Ef ferð er aflýst af hálfu via World ApS / via Iceland ApS, er boðin full endurgreiðsla.

  • via World ApS ber ekki ábyrgð á aukaútgjöldum sem kunna að hafa fallið til hjá viðskiptavini, svo sem vegna flugmiða eða annarra bókana sem ekki eru hluti af pakkaferðinni.

 
5. Breytingar á ferðum
  • via World ApS áskilur sér rétt til að breyta dagskrá ferða ef nauðsyn krefur, t.d. vegna veðurs, aðstæðna á áfangastað eða annarra ófyrirséðra aðstæðna.
  • Ef breytingar eiga sér stað mun fyrirtækið leitast við að veita sambærilega þjónustu.

 

6. Ábyrgð ferðamannsins

  • Ferðamaður ber ábyrgð á að hafa gild vegabréf og vegabréfsáritun, ef þörf krefur.
  • Ferðamaður ber ábyrgð á að vera tryggður með ferðatryggingu og sjúkratryggingu.
  • Ferðamaður ber ábyrgð á að fylgja settum reglum og leiðbeiningum fararstjóra eða samstarfsaðila via World ApS á hverjum áfangastað.

 

7. Ábyrgð via World ApS

  • via World ApS tryggir að allar ferðir séu skipulagðar með faglegum hætti.
  • Fyrirtækið ber ekki ábyrgð á töfum, náttúruhamförum, veðri, verkföllum eða öðrum utanaðkomandi aðstæðum sem það ræður ekki við.
  • Ef hnökrar verða í þjónustu samstarfsaðila mun via World ApS leitast við að finna lausn, en ber ekki fjárhagslega ábyrgð á slíku.

 

8. Kvartanir og ágreiningur

  • Ef ferðamaður hefur ábendingar eða kvartanir skulu þær berast eins fjótt og auðið er meðan á ferð stendur svo hægt verði að leysa málið á staðnum.
  • Ef ekki tekst að leysa úr kvörtun eða ágreiningi á staðnum má senda skriflega kvörtun innan 14 daga frá lokum ferðar.
  • Ágreiningsmál sem ekki er hægt að leysa með samkomulagi verða leyst samkvæmt lögum.

 

9. Skylda til að veita aðstoð

via World er skuldbundið til að veita viðskiptavinum aðstoð ef neyðartilvik koma upp.


 

10. Kröfur og fyrningarfrestur

Kröfur vegna galla á ferðaþjónustu fyrnast eftir tvö ár.


 

11. Vegabréfs- og vegabréfsáritunarkröfur

via World veitir viðskiptavinum upplýsingar um reglur varðandi vegabréf, vegabréfsáritanir og heilsufarskröfur. Viðskiptavinurinn ber hins vegar sjálfur ábyrgð á að uppfylla þessar kröfur.


 

12. Lögsaga og varnarþing

Lögsaga og varnarþing er í samræmi við lögsögu via World í Danmörku.


 

13. Persónuvernd

Persónuupplýsingar eru meðhöndlaðar í samræmi við gildandi persónuverndarlög og reglur.


 

14. Ferðaskipuleggjandi

via World Aps
Robert Jacobsens Vej 35, 5mf.
2300 Kaupmannahöfn
Danmörk

Símar: 830 0300 og +45 44 111 777
Netföng: team@viaiceland.com og bjarni.meyer@viaworld.travel
Vefsíða: www.viaiceland.com/viaworld
Framkvæmdastjóri: Bjarni Meyer Einarsson


Það er eindregið mælt með að ferðamenn kaupi ferðatryggingu sem nær yfir hugsanlega afbókun eða röskun á ferðalagi.

Vinsamlegast hafið samband ef óskað er frekari upplýsinga.

Vegabréfsáritun

Íslenskir ríkisborgarar þurfa ekki vegabréfsáritun (visa) til Japans ef dvölin er innan við 90 daga.

 

Bólusetningar

Það er ekki gerð krafa um bólusetningar þegar ferðast er til Japan.

Við leggjum í hann eftir

  • 00daga
  • 00klukkutíma
  • 00mínútur

Við leggjum í hann eftir

  • 00daga

Istanbúl og Egyptaland - 14 dagar

Þessi einstaka ferð leiðir okkur í gegnum tvo stórbrotna menningarheima – frá iðandi mannlífi Istanbúl til fornar dýrðar Egyptalands. Við heimsækjum söguleg kennileiti, njótum stórbrotinnar náttúru og upplifum heillandi menningu þessara tveggja landa. Hápunktur ferðarinnar er fjögurra daga sigling á Níl.

Ferðatímabíl : 5. - 18. september 2025

Sakura 🌸 Seúl とJapan

Ferð frá Seúl til Tókýó þar sem við kynn­umst borgum, bæjum og daglegu lífi í Suður-Kóreu og Japan. Við heimsækjum stórborgir og róleg svæði, sjáum Fuji-fjallið, göngum um garða og markaði og kynnum okkur japanska matargerð. Í Seúl skoðum við sögustaði og nútímaleg hverfi. Ferð sem sameinar borgarlíf, hefðir og nýjar upplifanir.








Ferðatímabíl : 17. mars - 2. apríl 2026

Kanada - 14 daga ferð

Ferðin hefst í Toronto með heimsókn að stórkostlegum Niagarafossum. Þaðan liggur leiðin til Jasper í Klettafjöllunum, þar sem þið njótið óviðjafnanlegrar náttúru. Ferðinni lýkur í gróðursælli strandborginni Vancouver, þar sem menning og afslöppun mætast við sjóinn.

Ferðatímabíl : 5. - 19. sept. 2026

Aserbaídsjan, Georgía og Armenía

Upplifðu ævintýri frá Istanbúl til Aserbaídsjan og áfram um Suður-Kákasussvæðið. Við byrjum með þriggja daga dvöl í heillandi Istanbúl – þar sem austrænir litir og saga mætast. Í Baku tökum við inn nútímalegan glæsileika og austurlenskan anda. Í Georgíu kynnumst við langri hefð í víngerð og menningu í fallegum landslagshlíðum. Í Armeníu bíða forn helgidómar, fjallasýn og djúp menningararfleifð.

Ferðatímabíl : 24. sept. - 8. okt. 2026

Korkoro ⛩️ Seúl とJapan

Ferð frá Seúl til Tókýó þar sem við kynn­umst borgum, bæjum og daglegu lífi í Suður-Kóreu og Japan. Við heimsækjum stórborgir og róleg svæði, sjáum Fuji-fjallið, göngum um garða og markaði og kynnum okkur japanska matargerð. Í Seúl skoðum við sögustaði og nútímaleg hverfi. Ferð sem sameinar borgarlíf, hefðir og nýjar upplifanir.








Ferðatímabíl : 15. - 30. október 2026

Istanbúl og Egyptaland - 14 dagar

Þessi einstaka ferð leiðir okkur í gegnum tvo stórbrotna menningarheima – frá iðandi mannlífi Istanbúl til fornar dýrðar Egyptalands. Við heimsækjum söguleg kennileiti, njótum stórbrotinnar náttúru og upplifum heillandi menningu þessara tveggja landa. Hápunktur ferðarinnar er fjögurra daga sigling á Níl.

Ferðatímabíl : 5. - 18. nóvember 2026

Nach oben scrollen