桜 Sakura - Seúl と Japan

Tvö lönd, ein ferð

Ferðatímabil:  17. mars - 2. apríl 2026

Ferð fyrir þá sem vilja kynnast menningu, náttúru og daglegu lífi í Seúl og Japan. 

Fararstjóri: Pétur Eggerz leikari, leikstjóri og leiðsögumaður.

 Seúl, Suður-Kóreu 한 

Við hefjum ferðina í Seúl, Suður-Kóreu og dveljum þar í þrjár nætur. 

Seúl er lífleg og nútímaleg stórborg. Við heimsækjum Gyeongbokgung höllina, göngum um Insadong listagötuna og förum í leiðangur að landamærum Norður-Kóreu.

Táknið ‚han‘ 한 er djúpt kóreskt hugtak sem táknar blöndu af söknuði, styrk og von.

Japan 桜 

Við kynnum okkur menningu, náttúru og sögu Japans, þar sem árþúsundagamlar venjur lifa enn í fullkomnu jafnvægi við nútímann.

桜 Sakura vorferð: 

Táknið „sakura“ 桜 stendur fyrir fegurð, vor og hverfulleika lífsins – táknrænt blóm sem hefur djúpa merkingu í japanskri menningu.

心 Kokoro haustferð:

Táknið ‚kokoro‘ 心 sameinar hugtök eins og hjarta, hugur og sál.

Hittu fararstjórann!

Brottför og ævintýrið hefst

DAGUR 1
Þri. 17. mars 2026

Brottför frá Keflavíkurflugvelli með Finnair.
Við fljúgum til Helsinki og þaðan áfram til Seúl með næturflugi. Framundan eru dagar fullir af ævintýrum og spennandi upplifunum.

Flug: Finnair AY992 og AY041
Brottför frá Keflavík: kl. 10:00
Millilending í Helsinki: kl. 15:30–17:35
Lending í Seúl: kl. 12:20 næsta dag

Tímamismunur: +9 klst. (Suður-Kórea er 9 klst. á undan Íslandi)

Flug til Seúl í Suður-Kóreu

Máltíðir innifaldar 

✔️ Engar máltíðir innfaldar fyrr en komið er til Seúl

DAGUR 2
Mið. 18. mars 2026

Komið til Seúl – fyrstu kynni af borginni

Lending í Seúl kl. 12:20. (Kl. 03:20 á ísl. tíma)

Staðarleiðsögumaður tekur á móti okkur á flugvellinum. Við höldum í átt til hótelsins sem er vel staðsett í miðborg Seúl. Þar gefst okkur tími til að slaka á eftir flugið og koma okkur fyrir á áður lengra verður haldið.

Boðið  verður upp á stutta gönguferð í nágrenni hótelsins, þar sem við kynnum okkur  borgarlífð og nærliggjandi svæði, t.d. Deoksugung höllina, Namadaemun markaðinn og Cheonggye Plaza. 

Sameiginlegur kvöldverður á veitingastað í grennd við hótelið. 

Deoksugung höllin
Namdaemun markaðurinn
Cheonggye Plaza

Máltíðir innifaldar 

✔️ Kvöldverður 

Gisting (nótt 1 af 3)

L7 Myeongdong by Lotte eða sambærilegt

L7 Myeongdong by Lotte er nútímalegt hótel staðsett í hjarta Myeongdong, einu vinsælasta verslunahverfi í Seúl. Hótelið er í aðeins nokkurra mínútna göngufæri frá Myeongdong lestarstöðinni og býður upp á góða tegningu við helstu kennileiti borgarinnar, þar á meðal Namdaemun-markaðinn og N Seoul Tower.

‚Standard Double‘ herbergi, 25 m².

Lending i Seúl

Lending í Seúl kl. 12:20. (Kl. 03:20 á ísl. tíma)

Akstur til hótelsins

Staðarleiðsögumaður tekur á móti okkur á flugvellinum. Við höldum í átt til hótelsins sem er vel staðsett í miðborg Seúl. Þar gefst okkur tími til að slaka á eftir flugið og koma okkur fyrir á áður lengra verður haldið.

Stutt gönguferð

Boðið er upp á stutta gönguferð í nágrenni hótelsins, þar sem við kynnum okkur umhverfið, líf borgarinnar og nærliggjandi svæði, t.d. Deoksugung höllina, Namadaemun markaðinn og Cheonggye Plaza. 

Deoksugung höllin

Namdaemun markaðurinn

Cheonggye Plaza

Kvöldverður

Sameiginlegur kvöldverður á veitingastað í grennd við hótelið. 

Gisting

L7 Myeongdong by Lotte eða sambærilegt

Gisting (nótt 1 af 3)

L7 Myeongdong by Lotte er nútímalegt hótel staðsett í hjarta Myeongdong, einu vinsælasta verslunahverfi í Seúl. Hótelið er í aðeins nokkurra mínútna göngufæri frá Myeongdong lestarstöðinni og býður upp á góða tegningu við helstu kennileiti borgarinnar, þar á meðal Namdaemun-markaðinn og N Seoul Tower.

'Standard Double' herbergi, 25 m².

Máltíðir innifaldar 

✔️ Sameiginlegur kvöldverður

Saga og menning Seúl

DAGUR 3
Fim. 19. mars 2026

Við byrjum daginn á heimsókn í hina glæsilegu Gyeongbokgung-höll. Höllin var endurreist árið 1395 og endurspeglar hefðir kóreskra hallabygginga sem gegndu lykilhlutverki í stjórnsýslu og hirðlífi.

Eftir það heimsækmum við þjóðminjasafn Kóreu, sem gefur dýrmæta innsýn í sögu og menningu þjóðarinnar.

Gyeongbokgung-höllin
Jogyesa búddamusterið

Síðdegis göngum við um Bukchon Hanok Village, þar sem vel varðveitt hefðbundin kóresk hús (hanok) standa í andstæðu við nútímalega borgina.

Við heimsækjum síðan hefðbundið tehús, þar sem við fáum að kynnast kóreskum tehefðum. 

Frjálst kvöld.

Bukchon Hanok hverfið
Kóreanskur matur
Morgunverður

Morgunverður á hótelinu

Skoðunarferð

Við byrjum daginn á heimsókn í hina glæsilegu Gyeongbokgung-höll. Höllin var endurreist árið 1395 og endurspeglar hefðir kóreskra hallabygginga sem gegndu lykilhlutverki í stjórnsýslu og hirðlífi.

Eftir það heimsækmum við þjóðminjasafn Kóreu, sem gefur dýrmæta innsýn í sögu og menningu þjóðarinnar.

Gyeongbokgung-höllin

Jogyesa búddamusterið

Hádegishlé - frjáls tími

Morgunverður á hótelinu

Skoðunarferð

Síðdegis göngum við um Bukchon Hanok Village, þar sem vel varðveitt hefðbundin kóresk hús (hanok) standa í andstæðu við nútímalega borgina.

Frjálst kvöld
Gisting

L7 Myeongdong by Lotte eða sambærilegt

Gisting (nótt 2 af 3)

L7 Myeongdong by Lotte er nútímalegt hótel staðsett í hjarta Myeongdong, einu vinsælasta verslunahverfi í Seúl. Hótelið er í aðeins nokkurra mínútna göngufæri frá Myeongdong lestarstöðinni og býður upp á góða tegningu við helstu kennileiti borgarinnar, þar á meðal Namdaemun-markaðinn og N Seoul Tower.

'Standard Double' herbergi, 25 m².

Máltíðir innifaldar 

✔️ Morgunverður

Máltíðir innifaldar 

✔️ Morgunverður 

✔️ Hádegisverður 

Gisting (nótt 2 af 3)

L7 Myeongdong by Lotte eða sambærilegt

DMZ – áhrifamikil ferð að landamærum N-Kóreu

DAGUR 4
FöS. 20. mars 2026

Við förum í skemmtilega dagsferð til landamæra Suður-  og Norður-Kóreu. DMZ-svæðið (Demilitarized Zone), hefur löngum táknað átök og spennu – en í dag býður það upp á einstaka innsýn í sögu og stöðu mála á Kóreuskaganum. 

Við skoðum meðal annars Panmunjom, þar sem leiðtogar beggja ríkja hafa hist í friðarviðræðum, og fáum tækifæri til að staldra við og íhuga þann veruleika sem fólkið á þessu svæði býr við. Á meðal annarra áhugaverðra staða eru Þriðju innrásargöngin – neðanjarðargöng sem grafin voru frá Norður-Kóreu – og Dora-útsýnisstöðin, þar sem mögulegt er að skyggnast yfir til norðurs.

Sameiginlegur hádegisverður. 

Við förum einnig í Imjingak, stað helgaðan friði og minningu, og heimsækjum Dorasan-lestarstöðina – tákn um von um framtíðar tengingu ríkjanna. 

Í lok dags njótum við sameiginlegs kvöldverðar  og dans- og tónlistarsýningar. 

Landamæraverðir að störfum
Rauða hengibrúin
Dora skoðunarstöðin býður upp á útsýni yfir til Norður-Kóreu

Máltíðir innifaldar 

✔️ Morgunverður 

✔️ Hádegisverður 

✔️ Sameiginlegur kvöldverður ásamt dans- og tónlistarsýningu.

Gisting (nótt 3 af 3)

L7 Myeongdong by Lotte eða sambærilegt

Morgunverður

Morgunverður á hótelinu

Skoðunarferð

Við förum í skemmtilega dagsferð til landamæra Suður-  og Norður-Kóreu. DMZ-svæðið (Demilitarized Zone), hefur löngum táknað átök og spennu – en í dag býður það upp á einstaka innsýn í sögu og stöðu mála á Kóreuskaganum. 

Landamæraverðir að störfum

Skoðunarferð

Við skoðum meðal annars Panmunjom, þar sem leiðtogar beggja ríkja hafa hist í friðarviðræðum, og fáum tækifæri til að staldra við og íhuga þann veruleika sem fólkið á þessu svæði býr við. Á meðal annarra áhugaverðra staða eru Þriðju innrásargöngin – neðanjarðargöng sem grafin voru frá Norður-Kóreu – og Dora-útsýnisstöðin, þar sem mögulegt er að skyggnast yfir til norðurs.

Dora-útsýnisstöðin

Hádegisverður

Sameiginlegur hádegisverður. 

Skoðunarferð

Við förum einnig í Imjingak, stað helgaðan friði og minningu, virðum fyrir okkur rauðu hengibrúnna og heimsækjum Dorasan-lestarstöðina – tákn um von um framtíðar tengingu ríkjanna. 

Rauða hengibrúin

Kvöldverður

Í lok dags njótum við sameiginlegs kvöldverðar  og dans- og tónlistarsýningar i höfuðborginni, Seúl. 

Gisting

L7 Myeongdong by Lotte eða sambærilegt

Gisting (nótt 3 af 3)

L7 Myeongdong by Lotte er nútímalegt hótel staðsett í hjarta Myeongdong, einu vinsælasta verslunahverfi í Seúl. Hótelið er í aðeins nokkurra mínútna göngufæri frá Myeongdong lestarstöðinni og býður upp á góða tegningu við helstu kennileiti borgarinnar, þar á meðal Namdaemun-markaðinn og N Seoul Tower.

'Standard Double' herbergi, 25 m².

Máltíðir innifaldar 

✔️ Morgunverður

✔️ Hádegisverður

✔️ Kvöldverður og danssýning

Fyrsti dagur í Japan - Hiroshima

DAGUR 5
Lau. 21. mars 2026

Við yfirgefum Suður-Kóreu að morgni dags og höldum áleiðis til Japans.

Flug: Korean Air KE787
Brottför frá Seúl kl. 08:00
Lending í Fukuoka kl. 9:20 tæplega einum og hálfum tíma síðar. 

Við komuna til Japans tekur enskumælandi staðarleiðsögumaður á móti okkur.  Við höldum áfram ferð okkar með háhraðalest til Hiroshima. 

Við förum í skoðunarferð um Hiroshima, borg sem markaði tímamót í heimsögunni með kjarnorkusprengjunni árið 1945, en saga borgarinnar nær aftur til 13. aldar. Í dag er borgin tákn um frið og endurreisn. 

Við heimsækjum sögufræga staði eins og Friðargarðinn og Friðarsafnið, þar sem við fáum dýpri innsýn í atburðina sem breyttu heimsmyndinni fyrir rúmum 80 árum.

Við gögnum um Shukkei-en garðinn, þriggja alda gamlan samúræjagarð sem státar af miðlægum tjörnum, fallegum brúarmannvirkjum og friðsælu landslagi. Góð afslöppun frá ys og þys borgarinnar.

Hiroshima Dome
Hiroshima Peace Memorial Museum
Shukkei-en garðurinn

Máltíðir innifaldar 

✔️ Morgunverður

✔️ Hádegisverður

✔️ Kvöldverður

Gisting (nótt 1 af 2)

Grandvrio Hotel Miyajima Wakura eða sambærilegt

Grandvrio Hotel Miyajima Wakura er nútímalegt hótel staðsett í Hatsukaichi, Hiroshima, nálægt Miyajima-eyju og fræga Itsukushima-hofinu.

Superior Twin Room, Non Smoking, Sea View (Separated Bath and Toilet)

Morgunverður

Morgunverður á hótelinu

Flug til Japans

Við yfirgefum Suður-Kóreu  að morgni dags og höldum áleiðis til Japans.

Flug: Korean Air KE787
Brottför frá Seúl kl. 08:00
Lending í Fukuoka kl. 9:20 tæplega einum og hálfum tíma síðar. 

Við komuna til Japans tekur enskumælandi staðarleiðsögumaður á móti okkur.  

Með háhraðalest til Hiroshima

Við förum með háhraðalest til Hiroshima. Ferðin tekur um það bil 1 klukkustund.

Hádegisverður

Sameiginlegur hádegisverður.

Skoðunarferð um Hiroshima

Við förum í skoðunarferð um Hiroshima, borg sem markaði tímamót í heimsögunni með kjarnorkusprengjunni árið 1945, en saga borgarinnar nær aftur til 13. aldar. Í dag er borgin tákn um frið og endurreisn. 

Friðarsafnið

Við heimsækjum sögufræga staði eins og Friðargarðinn og Friðarsafnið, þar sem við fáum dýpri innsýn í atburðina sem breyttu heimsmyndinni fyrir rúmum 80 árum. Samhliða þessu sjáum við hvernig lífið hefur snúið aftur í nútímalegri og líflegri borg.

Shukkei-en garðurinn

Við gögnum um Shukkei-en garðinn, þriggja alda gamlan samúræjagarð sem státar af miðlægum tjörnum, fallegum brúarmannvirkjum og friðsælu landslagi. Góð afslöppun frá ys og þys borgarinnar.

Kvöldverður

Í lok dags njótum við sameiginlegs kvöldverðar á hótelinu.

Gisting

Grandvrio Hotel Miyajima Wakura eða sambærilegt

Gisting (nótt 1 af 2)

Grandvrio Hotel Miyajima Wakura er nútímalegt hótel staðsett í Hatsukaichi, Hiroshima, nálægt Miyajima-eyju og fræga Itsukushima-hofinu.

Superior Twin Room, Non Smoking, Sea View (Separated Bath and Toilet)

Máltíðir innifaldar 

✔️ Morgunverður

✔️ Hádegisverður

✔️ Kvöldverður 

Miyajima – helgur staður og náttúra

DAGUR 6
Sun. 22. mars 2026

Við tökum ferju til Miyajima-eyju

Dagurinn hefst með ferjuferð yfir til hinnar helgu Miyajima-eyju, sem er talin ein af þremur fegurstu náttúruperlum Japans. Við komu blasir við okkur eitt af þekktustu kennileitum landsins – hið fljótandi torii-hlið sem stendur úti í sjó og markar innganginn að Itsukushima-hofinu. Þetta rauða hlið virðist svífa á yfirborði vatnsins við flóð og skapar ógleymanlegt sjónarspil.

Við göngum um eyjuna og skoðum Itsukushima-hofið, sem stendur á súlum í sjónum og er tileinkað gyðju hafsins. Umhverfið er kyrrlátt og andrúmsloftið fullt af helgri ró, þar sem náttúran og trúarleg menning renna saman í fullkomnu jafnvægi.

Við skoðum m.a. fimmhæða timburstrýtu (padgoda) og göngum að Daisho-hofinu.

Eftir hádegi gefst kostur á að ganga upp fallega skógi vaxna stíga, eða taka kláf upp á Misen-fjall, hæsta tind eyjunnar. Á leiðinni opnast stórbrotin útsýni yfir Seto-innhafið og nærliggjandi eyjar. 

Fimm hæða timburstrýta (pagoda)
Útsýni frá Misen-fjlalli
Fjöldi stytta varða leiðina að Daisho-hofinu
Itsukushima hofið og Torii hliðið í fjarska

Máltíðir innifaldar 

✔️ Morgunverður 

Gisting (nótt 2 af 2)

Grandvrio Hotel Miyajima Wakura eða sambærilegt

Morgunverður

Morgunverður á hótelinu

Sigling til Miyajima

Dagurinn hefst með ferjuferð yfir til hinnar helgu Miyajima-eyju, sem er talin ein af þremur fegurstu náttúruperlum Japans. Við komu blasir við okkur eitt af þekktustu kennileitum landsins – hið fljótandi torii-hlið sem stendur úti í sjó og markar innganginn að Itsukushima-hofinu. Þetta rauða hlið virðist svífa á yfirborði vatnsins við flóð og skapar ógleymanlegt sjónarspil.

Itsukushima-hofið

Við göngum um eyjuna og skoðum Itsukushima-hofið, sem stendur á súlum í sjónum og er tileinkað gyðju hafsins. Umhverfið er kyrrlátt og andrúmsloftið fullt af helgri ró, þar sem náttúran og trúarleg menning renna saman í fullkomnu jafnvægi.

Pagoda og Daisho-hofið

Við skoðum m.a. fimmhæða timburstrýtu (padgoda) og göngum að Daisho-hofinu.  Fjölmargar styttur varða leiðina að hofinu, skemmtileg gönguleið.

Hádegishlé

Frjáls tími eyjunni.

Upp á fjall, upp á fjallsins brún

Eftir hádegi gefst kostur á að ganga upp fallega skógi vaxna stíga, eða taka kláf upp á Misen-fjall, hæsta tind eyjunnar. Á leiðinni opnast stórbrotin útsýni yfir Seto-innhafið og nærliggjandi eyjar.

Útsýni frá Misen-fjalli 

Kvöldverður

Í lok dags njótum við sameiginlegs kvöldverðar á eyjunni

Sigling tilbaka að hótelinu

Dagurinn hefst með ferjuferð yfir til hinnar helgu Miyajima-eyju, sem er talin ein af þremur fegurstu náttúruperlum Japans. Við komu blasir við okkur eitt af þekktustu kennileitum landsins – hið fljótandi torii-hlið sem stendur úti í sjó og markar innganginn að Itsukushima-hofinu. Þetta rauða hlið virðist svífa á yfirborði vatnsins við flóð og skapar ógleymanlegt sjónarspil.

Gisting

Grandvrio Hotel Miyajima Wakura eða sambærilegt

Gisting (nótt 2 af 2)

Grandvrio Hotel Miyajima Wakura er nútímalegt hótel staðsett í Hatsukaichi, Hiroshima, nálægt Miyajima-eyju og fræga Itsukushima-hofinu.

Superior Twin Room, Non Smoking, Sea View (Separated Bath and Toilet)

Máltíðir innifaldar 

✔️ Morgunverður

Kirsuberjatré

– fegurð, hefð og árstíðabreytingar 🌸

Kirsuberjatré, eða sakura, eru eitt mest áberandi tákn Japans og tengjast sterkum tilfinningum um fegurð, endurnýjun og vor. Blómin springa út í stuttan tíma á hverju ári – yfirleitt aðeins í einar til tvær vikur. Blómatíminn er tákn um nýtt upphaf. 

Að horfa á blómstrandi kirsuberjablómatré er rótgróin menningarhefð. Hefðin kallast hanami, sem þýðir einfaldlega „að horfa á blómin“. Hún á rætur að rekja til hirðlífs á Heian-tímabilinu (794–1185), þegar aðalsfólk safnaðist saman undir trjánum og orti ljóð.

Blómatíminn hefst snemma á Kyushu í suðri og færist norður eftir landinu. Fjölmiðlar fylgjast grannt með og birta daglega „sakura-spá“, og margir ferðast vítt og breitt til að upplifa blómin á besta tíma.

Kirsuberjatréin eru þannig ekki aðeins falleg – þau tengja saman náttúru, menningu og tímaskyn Japana á einstakan og skemmtilegan hátt.

Með háhraðalest til Kyoto

DAGUR 7
Mán. 23. mars 2026

Við yfirgefum Hiroshima  að morgni dags og höldum  áfram með háhraðalest til Okayama. Ferðin tekur um það bil 1,5 klukkustund.

Athugið: Ferðatöskurnar verða sendar áfram til næsta gististaðar, svo við berum aðeins með okkur handfarangur.

Aðallestarstöðin í Okayama er miðsvæðis og auðvelt að komast þaðan til helstu staða í borginni.  Við byrjum á því að heimsækja tvö af helstu kennileitum borgarinnar:

Við skoðum einn af þremur þekktustu görðum Japans, Korakuen garðinn. 

Við virðum fyrir okkur Okayama-kastala, sem er svipmikill svartur kastali . Hægt er að skoða sýningar um sögu svæðisins og láta mynda sig í kimono fyrir þau sem þess óska. 

Shinkansen háhraðalestin
Okayama kastali
Korakuen garðurinn

Við höldum þessu næst áfram með háhraðalest til Kyoto þar sem við gistum næstu fjórar nætur.

Kyoto, önnur höfuðborg Japans, upplifði blómatíma listar og menningar fram á 12. öld og er gjarnan kölluð vagga japanskrar menningar. Þó borgin hafi orðið fyrir áföllum í stríðum, slapp hún sem með kraftaverki við eyðileggingu í seinni heimsstyrjöldinni og varðveitir þannig dýrmætan menningararf.

Eftir komuna til Kyoto höldum við áfram með háhraðalestinni til Kyoto og förum beint í Gion-hverfið, hið forna samúræa- og geisha-hverfi. og virðum það fyrir okkur.

Við njótum sameignilegs kvöldverðar í góðum félagsskap. 

Geishur

Máltíðir innifaldar 

✔️ Morgunverður 

✔️ Hádegisverður 

✔️ Kvöldverður 

Gisting (nótt 1 af 4)

Richmond Hotel Premier Kyoto Ekimae eða sambærilegt

Richmond Hotel Premier Kyoto Ekimae er nútímalegt og þægilegt hótel staðsett skammt frá JR Kyoto lestarstöðinni. Hótelið opnaði í maí 2019.

Standard Double Room 

Athugið

Í dag verða ferðatöskurnar verða sendar áfram til næsta gististaðar! Við berum þvi aðeins með okkur léttan handfarangur í dagsferðinni. 

Morgunverður

Morgunverður á hótelinu

Háhraðalest til Okayama

Við yfirgefum Hiroshima  að morgni dags og höldum  áfram með háhraðalest til Okayama. Ferðin tekur um það bil 1,5 klukkustund.

Ath. einungis léttur handfarangur um borð!

Skoðunarferð um Okayama

Við ökum um borgina og virðum fyrir okkur það sem fyrir augu ber. 

Korakuen garðurinn

Aðallestarstöðin í Okayama er miðsvæðis og auðvelt að komast þaðan til helstu staða í borginni.  Við byrjum á því að heimsækja tvö af helstu kennileitum borgarinnar:

Við skoðum einn af þremur þekktustu görðum Japans, Korakuen garðinn. 

Hádegisverður i Korakuen garðinum

Sameiginlegur hádegisverður. 

Okayama-kastalinn

Við virðum fyrir okkur Okayama-kastala, sem er svipmikill svartur kastali . Hægt er að skoða sýningar um sögu svæðisins og láta mynda sig í kimono fyrir þau sem þess óska. 

Háhraðalest til Kyoto

Við höldum þessu næst áfram til Kyoto þar sem við gistum næstu fjórar nætur.

Kyoto

Kyoto, önnur höfuðborg Japans, upplifði blómatíma listar og menningar fram á 12. öld og er gjarnan kölluð vagga japanskrar menningar. Þó borgin hafi orðið fyrir áföllum í stríðum, slapp hún sem með kraftaverki við eyðileggingu í seinni heimsstyrjöldinni og varðveitir þannig dýrmætan menningararf.

Eftir komuna til Kyoto förum við í gönguferð um Gion-hverfið þar sem geishur búa enn og hefðir lifa. Kvöldið er frjálst til göngu eða menningarupplifana.

Gion-hverfið

Eftir komuna til Kyoto höldum við áfram með háhraðalestinni til Kyoto og förum beint í Gion-hverfið, hið forna samúræa- og geisha-hverfi. og virðum það fyrir okkur.

Kvöldverður

Í lok dags njótum við sameiginlegs kvöldverðar í góðum félagsskap.

Gisting

Richmond Hotel Premium Kyoto eða sambærilegt

Richmond Hotel Premier Kyoto Ekimae er nútímalegt og þægilegt hótel staðsett skammt frá JR Kyoto lestarstöðinni. Hótelið opnaði í maí 2019.

Standard Double Room 

Máltíðir innifaldar 

✔️ Morgunverður

✔️ Hádegisverður

✔️ Kvöldverður 

Hof og helgidómar Kyoto

DAGUR 8
Þri. 24. mars 2026

Að morgni dags heimsækjum við Sanjusangendo-hofið, þar sem má finna ótrúlegt safn af 1.000 gylltum Kannon-styttum í mannsstærð – allar frá 12. og 13. öld. Stytturnar eru mikið sjónarspil sem vekja djúpa lotningu og aðdáun.

Þessu næst höldum við til Higashi Honganji, glæsilegs búddistahofs sem er meðal helstu andlegra miðstöðva Kyoto. Hofið sem er eitt stærsta timburhús heims er á heimsminjaskrá UNESCO.

Eftir hádegishlé heimsækjum við Fushimi Inari Taisha, shinto-hofið sem er helgað refaguðinum Inari. Þar mynda þúsundir appelsínugulra torii-hliða langan og krókóttan göngustíg sem liðast upp fjallið – draumur ljósmyndara og skemmtileg ferðaupplifun.

Sanjusangendo-hofið
Fushimi Inari Taisha
Lítið brot af Kannon-styttum

Máltíðir innifaldar 

✔️ Morgunverður 

✔️ Kvöldverður 

Gisting (nótt 2 af 4)

Richmond Hotel Premier Kyoto Ekima eða sambærilegt

Morgunverður

Morgunverður á hótelinu

Háhraðalest til Okayama

Við leggjum af stað að morgni dags frá Hiroshima með Shinkansen háhraðalestinni til Okayama. Ferðin tekur um það bil 1,5 klukkustund.

Ath. einungis léttur handfarangur um borð!

Korakuen garðurinn

Aðallestarstöðin í Okayama er miðsvæðis og auðvelt að komast þaðan til helstu staða í borginni.  Við byrjum á því að heimsækja tvö af helstu kennileitum borgarinnar:

Við skoðum einn af þremur þekktustu görðum Japans, Korakuen garðinn. 

Hádegisverður i Korakuen garðinum

Sameiginlegur hádegisverður. 

Okayama-kastalinn

Við virðum fyrir okkur Okayama-kastala, sem er svipmikill svartur kastali . Hægt er að skoða sýningar um sögu svæðisins og láta mynda sig í kimono fyrir þau sem þess óska. 

Háhraðalest til Kyoto

Við höldum þessu næst áfram til Kyoto þar sem við gistum næstu fjórar nætur.

Kyoto

Kyoto, önnur höfuðborg Japans, upplifði blómatíma listar og menningar fram á 12. öld og er gjarnan kölluð vagga japanskrar menningar. Þó borgin hafi orðið fyrir áföllum í stríðum, slapp hún sem með kraftaverki við eyðileggingu í seinni heimsstyrjöldinni og varðveitir þannig dýrmætan menningararf.

Eftir komuna til Kyoto förum við í gönguferð um Gion-hverfið þar sem geishur búa enn og hefðir lifa. Kvöldið er frjálst til göngu eða menningarupplifana.

Gion-hverfið

Eftir komuna til Kyoto förum við í gönguferð um Gion-hverfið þar sem geishur búa enn og hefðir lifa. 

Kvöldverður

Í lok dags njótum við sameiginlegs kvöldverðar 

Gisting

Richmond Hotel Premium Kyoto eða sambærilegt

Gisting (nótt 1 af 4)

Richmond Hotel Premier Kyoto Ekimae er nútímalegt og þægilegt hótel staðsett skammt frá JR Kyoto lestarstöðinni. Hótelið opnaði í maí 2019.

Standard Double Room 

Máltíðir innifaldar 

✔️ Morgunverður

✔️ Hádegisverður

✔️ Kvöldverður 

Gull, kastalar og teathöfn

DAGUR 9
mið. 25. mars 2026

Við hefjum daginn á heimsókn í Kiyomizu-hofið, sem stendur hátt yfir borginni með víðáttumiklu útsýni. Hofið er frá 8. öld og þekkt fyrir að vera byggt án nagla. 

Því næst heimsækjum við Nijo-kastalann, fyrrum bústað shógúna. Við fáum skemmtilega innsýn í líf valdahafa Edo-tímabilsins.

Kiyomizu-hofið
Nijo-kastalinn

Eftir hádegi förum við að gullna hofinu, Kinkaku-ji, sem er eitt þekktasta kennileiti Japans. Hofið er þakið gullblöðum og stendur við tjörn í fallegum garði.

Síðdegis er boðið upp á japanska teathöfn. Þar lærum við um hefðina á bak við teathafnir og fáum að smakka matcha-te í rólegu umhverfi.

Gullna hofið, Kinkaku-ji
Japönsk teathöfn

Máltíðir innifaldar 

✔️ Morgunverður 

Gisting (nótt 3 af 4)

Richmond Hotel Premier Kyoto Ekimae eða sambærilegt

Morgunverður

Morgunverður á hótelinu

Kiyomizu-hofið

Við hefjum daginn á heimsókn í Kiyomizu-hofið, sem stendur hátt yfir borginni með víðáttumiklu útsýni. Hofið er frá 8. öld og þekkt fyrir að vera byggt án nagla. 

Nijo-kastalinn

Því næst heimsækjum við Nijo-kastalann, fyrrum bústað shógúna. Við fáum skemmtilega innsýn í líf valdahafa Edo-tímabilsins.

Hádegisverður

Sameiginlegur hádegisverður. 

Gullna hofið - Kinkaku-ji

Eftir hádegi förum við að gullna hofinu, Kinkaku-ji, sem er eitt þekktasta kennileiti Japans. Hofið er þakið gullblöðum og stendur við tjörn í fallegum garði.

Teathöfn

Síðdegis er boðið upp á japanska teathöfn. Þar lærum við um hefðina á bak við teathafnir og fáum að smakka matcha-te í rólegu umhverfi.

Kvöldverður

Kvöldverður á eigin vegum.

Gisting

Richmond Hotel Premium Kyoto eða sambærilegt

Gisting (nótt 2 af 4)

Richmond Hotel Premier Kyoto Ekimae er nútímalegt og þægilegt hótel staðsett skammt frá JR Kyoto lestarstöðinni. Hótelið opnaði í maí 2019.

Standard Double Room 

Máltíðir innifaldar 

✔️ Morgunverður

✔️ Hádegisverður

Frjáls dagur í Kyoto, ýmsir valkostir

DAGUR 10
Fim. 26. mars 2026

Dagurinn er án formlegrar dagskrár – þú getur notið þess að slaka á eða tekið þátt í skipulögðum viðburðum. Hér eru nokkrar tillögur:

  • Gönguferð um Arashiyama bambusskóginn: Upplifðu kyrrðina í hinum fræga Arashiyama bambusskógi. GetYourGuide

  • Zen hugleiðsla og garðheimsókn: Lærðu um Zen hugleiðslu og heimsæktu japanska garða. GetYourGuide

  • Matreiðslunámskeið: Taktu þátt í japönsku matreiðslunámskeiði og lærðu að búa til hefðbundna rétti. GetYourGuide

Einnig er hægt að fara í styttri dagsferðir, til dæmis til Nara, Uji eða Osaka.

Eins og sjá má býður Kyoto upp á fjölbreyttar upplifanir sem vert er að kanna nánar.

Gönguferð um Arashiyama bambusskóginn

via World Travel aðstoðar við skipulagningu valfrjálsra viðburða eða dagsferða sé þess óskað.

Zen hugleiðsla og garðheimsókn
Sushi matreiðslunámskeið

Máltíðir innifaldar 

✔️ Morgunverður 

Gisting (nótt 4 af 4)

Richmond Hotel Premier Kyoto Ekimae eða sambærilegt

Val um gistingu Roykan

Val um að gista á Ryokan þessa nótt.

eða

Ferðir til og frá Ryokan eru á eigin vegum.

Takmarkað framboð. „Fyrstur kemur, fyrstur fær.“ 

Morgunverður

Morgunverður á hótelinu

Frjáls dagur - ýmsir valmöguleikar

Dagurinn er án formlegrar dagskrár – þú getur notið þess að slaka á eða tekið þátt í skipulögðum viðburðum. Hér eru nokkrar tillögur:

Valkostur
Arashiyama bambusskógurinn

Gönguferð um Arashiyama bambusskóginn: Upplifðu kyrrðina í hinum fræga Arashiyama bambusskógi.

GetYourGuide

Valkostur
Zen hugleiðsla og garðheimsókn

Lærðu um Zen hugleiðslu og heimsæktu japanska garða.

GetYourGuide

Valkostur
Matreiðslunámskeið

Taktu þátt í japönsku matreiðslunámskeiði og lærðu að búa til hefðbundna rétti.

GetYourGuide

Valkostur
Dagsferðir

Einnig er hægt að fara í styttri dagsferðir, til dæmis til Nara, Uji eða Osaka.

via World Travel aðstoðar við skipulagningu valfrjálsra viðburða eða dagsferða sé þess óskað.

Gisting

Richmond Hotel Premium Kyoto eða sambærilegt

Gisting (nótt 4 af 4)

Richmond Hotel Premier Kyoto Ekimae er nútímalegt og þægilegt hótel staðsett skammt frá JR Kyoto lestarstöðinni. Hótelið opnaði í maí 2019.

Standard Double Room 

Valkostur
Gisting á Ryokan

Val um að gista á Ryokan þessa nótt.

eða

Ferðir til og frá Ryokan eru á eigin vegum.

Takmarkað framboð. "Fyrstur kemur, fyrstur fær." 

Máltíðir innifaldar 

✔️ Morgunverður

Hægt er að velja að gista eina nótt á Ryokan-hóteli í stað fjórðu næturinnar á Richmond Hotel gegn viðbótargreiðslu.

Í boði eru tvö Ryokan-hótel:

Athugið að framboð er takmarkað – fyrstur kemur, fyrstur fær.

Ryokan (旅館) er hefðbundin japönsk gisting, oft lítil gistihús eða hótel sem bjóða upp á upplifun í anda japanskrar gestrisni, arkitektúrs og lífsstíls.

Hvað einkennir ryokan?

Herbergi með tatami-gólfi og futon

  • Gólf eru þakin strámottum (tatami)

  • Svefnaðstaða er oft futon-dýna sem er lögð á gólfið á kvöldin

  • Lág borð, inniskór og yukata-sloppur fyrir gesti

Kvöldverður og morgunverður

  • Oft innifalinn í verði

  • Matarupplifun með mörgum litlum réttum – oft staðbundin, árstíðabundin og heimagerð

  • Borðað í matsal eða jafnvel í herberginu

Heit böð – onsen

  • Mörg ryokan eru með heitt steinbað (onsen) með náttúrulegu jarðhitavatni

  • Í sumum tilfellum er boðið upp á onsen i gistirýminu. 

Gestamótttaka og róleg stemning.

  • Rólegt og afslappandi umhverfi 

Ryokan eru víða um landið, sérstaklega á svæðum með heitum böðum (t.d. Hakone, Kinosaki, Beppu), í fjallaþorpum og í nálægð við helgistaði eða náttúru.

Fyrir hvern er ryokan?

  • Frábært fyrir þá sem vilja kynnast japanskri hefð

  • Ekki alltaf með nútímaþægindi eins og rúm eða sér baðherbergi, en það er hluti af upplifuninni

Frá Kyoto til Fuji

DAGUR 11
Fös. 27. mars 2026

Við kveðjum Kyoto – hina fornu höfuðborg keisaranna – og tökum Shinkansen háhraðalestina í átt til Mishima, svæðis þar sem náttúran tekur völdin og Fuji-fjall blasir við sjóndeildarhringinn.

Við heimsækjum Oshino Hakkai, Fujisan World Heritage Center, Oishi Park, Itchiku Kubota listasafnið.

Oshino Hakkai eru átta smá vötn sem liggja í litla þorpinu Oshino, staðsett á svæðinu við Fuji Five Lakes (Fimm vötn Fuji). 

Fujisan World Heritage Center er glæsileg upplýsingamiðstöð við Fuji-fjallið. Þar má sjá kvikmyndir og stórt líkan af fjallinu úr washi-pappír, auk sýninga um menningu og náttúru svæðisins. 

Oishi Park er fallegur garður þar sem við getum notið stórbrotins útsýnis yfir Fuji-fjall. Á kirsuberjablómatímanum breytist svæðið í lifandi blómahaf. 

Í Itchiku Kubota listasafninu má sjá stórkostlega kimónósýningu eftir listamanninn Itchiku Kubota, sem endurvakti hina fornu tsujigahana-litatækni frá Muromachi-tímanum. Hann helgaði líf sitt þessari list og skapaði einstaka flík sem sameina náttúrufegurð, árstíðir og andlega dýpt.

Safnið sjálft er listaverk – byggt úr ævafornum sýprusvið og umlukið kyrrlátum garði. Þetta er eitt áhrifamesta textílsafn veraldar.

Oshino Hakkai
Fujisan World Heritage Center
Itchiku Kubota safnið
Oishi Park

Síðdegis komum við að Hotel Mystays Fuji Onsen Resort. 

Við slökum á í heitu lauginni við hótelið og njótum kyrrðarinnar með útsýni fyrir Fuji-fjallið eftir erilsaman dag. 

Laugarnar í hótelinu bíða gestanna. Athugið að húðflúr eru almennt ekki leyfð í japönskum laugum. Það er þó í lagi ef þau eru hulin með einhverjum hætti.

Máltíðir innifaldar 

✔️ Morgunverður 

✔️ Kvöldverður 

Gisting – ein nótt 

Hotel Mystays Fuji Onsen Resort eða sambærilegt

Hotel Mystays Fuji Onsen Resort er nútímalegt hótel staðsett í Fujiyoshida, Yamanashi, með stórkostlegu útsýni yfir Mt. Fuji. Hótelið býður upp á náttúruleg heit böð (onsen) á efstu hæð með útsýni yfir fjallið. Herbergin eru vel búin með nútímalegum þægindum, þar á meðal ókeypis Wi-Fi, loftkælingu og sjónvörpum. Hótelið er í göngufæri frá Fuji-Q Highland skemmtigarðinum og stutt frá Lake Kawaguchi. 

Morgunverður

Morgunverður á hótelinu

Með háhraðalest til Shizuoka

Við kveðjum Kyoto – hina fornu höfuðborg keisaranna – og tökum Shinkansen háhraðalestina í átt til Mishima, svæðis þar sem náttúran tekur völdin og Fuji-fjall blasir við sjóndeildarhringinn.

Með rútu að Fuji-fjalli

Rútan bíður eftir okkur við lestarstöðina og fylgir okkur það sem eftir er dagsins.

Oshino Hakkai

Við heimsækjum Oshino Hakkai, Fujisan World Heritage Center, Oishi Park, Itchiku Kubota listasafnið.

Oshino Hakkai eru átta smá vötn sem liggja í litla þorpinu Oshino, staðsett á svæðinu við Fuji Five Lakes (Fimm vötn Fuji). 

Hádegisverður

Sameiginlegur hádegisverður

Fujisan World Heritage Center

Fujisan World Heritage Center er glæsileg upplýsingamiðstöð við Fuji-fjallið. Þar má sjá kvikmyndir og stórt líkan af fjallinu úr washi-pappír, auk sýninga um menningu og náttúru svæðisins. 

Oishi Park

Oishi Park er fallegur garður þar sem við getum notið stórbrotins útsýnis yfir Fuji-fjall. Á kirsuberjablómatímanum breytist svæðið í lifandi blómahaf.  sýninga um menningu og náttúru svæðisins. 

Itchiku Kubota listasafnið

Í Itchiku Kubota listasafninu má sjá stórkostlega kimónósýningu eftir listamanninn Itchiku Kubota, sem endurvakti hina fornu tsujigahana-litatækni frá Muromachi-tímanum. Hann helgaði líf sitt þessari list og skapaði einstaka flík sem sameina náttúrufegurð, árstíðir og andlega dýpt.

Kvöldverður

Kvöldverður á hótelinu

Gisting

Hotel Mystays Fuji Onsen Resort eða sambærilegt

Hotel Mystays Fuji Onsen Resort er nútímalegt hótel staðsett í Fujiyoshida, Yamanashi, með stórkostlegu útsýni yfir Mt. Fuji. Hótelið býður upp á náttúruleg heit böð (onsen) á efstu hæð með útsýni yfir fjallið. Herbergin eru vel búin með nútímalegum þægindum, þar á meðal ókeypis Wi-Fi, loftkælingu og sjónvörpum. Hótelið er í göngufæri frá Fuji-Q Highland skemmtigarðinum og stutt frá Lake Kawaguchi. 

Onsen laug

Við slökum á í heitu lauginni við hótelið og njótum kyrrðarinnar með útsýni fyrir Fuji-fjallið eftir erilsaman dag.

Athugið að hylja þarf öll húðflúr til að fá aðgang að lauginni.

Máltíðir innifaldar 

✔️ Morgunverður

✔️ Hádegisverður

✔️ Kvöldverður

Eldfjallið Fuji  

– hæsta fjall Japans 🗻 

Fuji, eða Fuji-san, er hæsta fjall Japans – 3.776 metrar á hæð – og staðsett á Honshu-eyju, suðvestan við Tókýó. Fjallið er keilulaga eldfjall, talið hafa myndast fyrir um 100.000 árum, með síðasta eldgos árið 1707. Það er formlega flokkað sem virkt eldfjall, þó með litla núverandi virkni. Fuji er sérstaklega þekkt fyrir reglulega og samhverfa lögun, sem hefur gert það að helgimynd japanskrar náttúru og menningar.

Fjallið hefur sterka trúarlega og menningarlega stöðu. Í gegnum aldirnar hafa pílagrímar klifið fjallið til andlegrar hreinsunar, og það hefur verið viðfangsefni í listum, ljóðum og trúarhugmyndum. Á sumrin klifra tugþúsundir ferðamanna og Japana fjallið, oft yfir nótt til að sjá sólarupprásina úr fjallatoppnum.

Fuji og íslensk eldfjöll eiga það sameiginlegt að vera mynduð við eldvirkni á flekaskilum og heitum reitum. En þau eru ólík í mörgu. Fuji er eldkeila – hátt og stakt eldfjall – á meðan mörg íslensk eldfjöll, t.d. Hekla eða Eyjafjallajökull, hafa óreglulegri lögun og myndast við sprungugos og jarðskjálfta sem spanna stærri svæði.

Ísland er með miklu virkari eldfjallagarð en Japan – með gos á 5–10 ára fresti, á meðan Fuji hefur verið þögult í rúm 300 ár. Hins vegar býr Japan yfir fleiri eldfjöllum í heild og meiri jarðskjálftavirkni.

Fuji stendur einnig fyrir menningarlega helgun og andlega reisn, líkt og Snæfellsjökull eða Hekla í íslenskri þjóðvitund. Í báðum löndum tengja fjöll náttúru, sögu og sjálfsmynd – en með mjög ólíkri nálgun og samhengi.

Eldfjöll, gufustrókar og listasafn

DAGUR 12
lau. 28. mars 2026

Við leggjum af stað frá Hotel Mystays Fuji Onsen Resort og höldum í átt til Hakone, sem er þekkt fyrir jarðhitasvæði og náttúrulandslag. Á leiðinni keyrum við um fallegt svæði með útsýni yfir skóga, hæðir og vötn.

Í Hakone stoppum við til að skoða Owakudani, þar sem heit gufa stígur upp úr jörðinni og brennisteinslykt liggur í loftinu. Þar er líka hægt að smakka svokölluð „svört egg“ sem soðin eru í jarðhita – vinsæl upplifun meðal ferðamanna. Einnig er hægt að fara með kláfferju yfir Ashi-vatnið ef tími og veður leyfir.

Kláfur yfir jarðhitasvæði í Owakudani

Eftir ferðina yfir Owakudani heimsækjum við Hakone útilistasafnið, sem var fyrsta útilistasafn Japans þegar það opnaði árið 1969. Safnið sameinar náttúrulegt landslag við list – stór skúlptúrverk eftir bæði japanska og alþjóðlega listamenn eru staðsett í fallegum garði þar sem gróður og fjallasýn mynda umgjörð.

Í safninu er einnig sérstakur salur tileinkaður Pablo Picasso, þar sem sýnd eru keramikverk, skissur og myndir eftir listamanninn, auk tímabundinna sýninga. Þetta er óvenjuleg upplifun þar sem list og náttúra mætast á lifandi hátt, og gestir fá næði til að skoða verkin í eigin hraða.

Eitt verka Picassos á Hakone útilistasafninu

Við förum í stutta siglingu á Ashi-vatni, sem myndaðist eftir eldgos í Hakone fyrir þúsundum ára. Siglingin býður upp á gott útsýni yfir skógi vaxin fjöll – og Fuji-fjall í fjarska á heiðskírum dögum. 

Á leiðinni má sjá helgistaði eins og Hakone-bogann sem stendur við vatnið. Tími til að njóta kyrrðar í  náttúrunni. 

Sigling á Ashi vatninu

Eftir hádegi höldum við áfram ferðinni til Tókýó. Ferðin tekur tæpa tvo tíma og við komum til borgarinnar síðdegis. Þar innritum við okkur á hótelið.

Máltíðir innifaldar 

✔️ Morgunverður 

✔️ Kvöldverður 

Gisting – nótt 1 af 4

Richmond Hotel Premier Asakusa International  eða sambærilegt

Richmond Hotel Premier Asakusa International er nútímalegt og þægilegt hótel staðsett í hjarta Asakusa-hverfisins í Tókýó. Hótelið er í aðeins 1 mínútu göngufjarlægð frá Tsukuba Express Asakusa Station og í göngufæri við helstu kennileiti svæðisins, þar á meðal Senso-ji hofið og Kaminarimon-hliðið.

Morgunverður

Morgunverður á hótelinu

Með rútu til Hakkone

Við leggjum af stað frá Hotel Mystays Fuji Onsen Resort og höldum í átt til Hakone, sem er þekkt fyrir jarðhitasvæði og náttúrulandslag. Á leiðinni keyrum við um fallegt svæði með útsýni yfir skóga, hæðir og vötn.

Hakkone - jarðhitasvæði

Í Hakone stoppum við til að skoða Owakudani, þar sem heit gufa stígur upp úr jörðinni og brennisteinslykt liggur í loftinu. Þar er líka hægt að smakka svokölluð „svört egg“ sem soðin eru í jarðhita – vinsæl upplifun meðal ferðamanna. Einnig er hægt að fara með kláfferju yfir Ashi-vatnið ef tími og veður leyfir.

Hakone útilistasafnið

Eftir ferðina yfir Owakudani heimsækjum við Hakone útilistasafnið, sem var fyrsta útilistasafn Japans þegar það opnaði árið 1969. Safnið sameinar náttúrulegt landslag við list – stór skúlptúrverk eftir bæði japanska og alþjóðlega listamenn eru staðsett í fallegum garði þar sem gróður og fjallasýn mynda umgjörð.

Í safninu er einnig sérstakur salur tileinkaður Pablo Picasso, þar sem sýnd eru keramikverk, skissur og myndir eftir listamanninn, auk tímabundinna sýninga. Þetta er óvenjuleg upplifun þar sem list og náttúra mætast á lifandi hátt, og gestir fá næði til að skoða verkin í eigin hraða.

Hádegisverður

Sameiginlegur hádegisverður

Sigling á Ashi-vatni

Við förum í stutta siglingu á Ashi-vatni, sem myndaðist eftir eldgos í Hakone fyrir þúsundum ára. Siglingin býður upp á gott útsýni yfir skógi vaxin fjöll – og Fuji-fjall í fjarska á heiðskírum dögum. 

Á leiðinni má sjá helgistaði eins og Hakone-bogann sem stendur við vatnið. Tími til að njóta kyrrðar í  náttúrunni. 

Með háhraðalest til Tókýó

Eftir hádegi höldum við áfram ferðinni til Tókýó. Ferðin tekur tæpa tvo tíma og við komum til borgarinnar síðdegis. Þar innritum við okkur á hótelið.

Kvöldverður

Kvöldverður á hótelinu

Gisting

Richmond Hotel Premier Asakusa International  eða sambærilegt

Gisting (nótt 1 af 4)

Richmond Hotel Premier Asakusa International er nútímalegt og þægilegt hótel staðsett í hjarta Asakusa-hverfisins í Tókýó. Hótelið er í aðeins 1 mínútu göngufjarlægð frá Tsukuba Express Asakusa Station og í göngufæri við helstu kennileiti svæðisins, þar á meðal Senso-ji hofið og Kaminarimon-hliðið.

Máltíðir innifaldar 

✔️ Morgunverður

✔️ Hádegisverður

Menning Tókýó – frá keisara til Shibuya

DAGUR 13
Sun. 29. mars 2026

Við heimsækjum Keisarahöllina og göngum um  garðsvæðið þar í kring. Næst er það Meiji Jingu hofið – trúarlegur skógur í hjarta borgarinnar. Um miðjan dag skoðum við Asakusa-hverfið með Sensoji-hofinu og verslunargötunni Nakamise. Við endum daginn í Shibuya – og göngum yfir heimsfrægu gangbrautina þar sem þúsundir stíga út í einu.

Við byrjum daginn á rólegum nótum, þar sem við göngum um garðsvæðið í kringum Keisarahöllina í Tókýó. 

Keisarahöllin í Tókýó er staðsett á svæði sem áður tilheyrði Edo-kastalanum frá tímum Tokugawa-shógúnanna. Höllin sjálf er lokuð almenningi, en garðarnir í kring eru opinberir og vel hirtir. Þar má ganga um steinlagðar götur, sjá gamlar varnarmúra, vatnsskurði og brýr sem voru hluti af varnarvirkjum gamla kastalans.

Þetta svæði hefur gegnt mikilvægu hlutverki í stjórnsýslu Japans frá því Meiji-keisarinn færði höfuðborgina til Tókýó árið 1868. Garðarnir eru vinsælir meðal ferðamanna og heimamanna, og veita góðan inngang að sögu borgarinnar sem pólitísks og stjórnsýslulegs miðpunktar landsins.

Garður við Keisarahöllina

Skammt frá iðandi tískugötum Harajuku og skærum auglýsingaskjám finnum við Meiji Jingu hofið, sem hefur frá upphafi verið meira en bara trúarstaður. Hofið var reist árið 1920 í minningu Meiji-keisara, sem gegndi lykilhlutverki í umbreytingu Japans úr lokuðu samfélagi í nútímalega þjóð.

Hofið er umlukt skógi sem var plantað sérstaklega í kringum bygginguna. Þar eru yfir 100.000 tré frá öllum landshlutum, sem voru gefin þegar hofið var reist.

Hofið sjálft er dæmigert fyrir Shinto-byggingarstíl og samanstendur af viðarbyggingum úr japönskum sedrusviði. Á svæðinu má sjá gesti leggja fram bænaspjöld og fara með ákveðnar athafnir samkvæmt siðum Shinto-trúarinnar. Þetta er vinsæll áfangastaður í borginni og mikið sóttur bæði af ferðafólki og heimamönnum.

Meiji Jingu hofið

Í Asakusa-hverfinu heimsækjum við Sensoji-hofið, sem er elsta búddahof Tókýó og á sér rætur aftur til 7. aldar. Hofið er helgað Kannon, vinsælli guðamynd í japanskri búddatrú, og er enn mikið notað af heimamönnum. Leiðin að hofinu liggur um Nakamise-verslunargötuna, þar sem sölubásar bjóða upp á hefðbundna japanska snarlrétti, handverk, minjagripi og kimono.

Á hofsvæðinu má sjá gesti tendra reykelsi og skrifa óskir á trélappir. Byggingarnar eru endurreistar eftir seinni heimsstyrjöld, en eru í samræmi við hefðbundinn stíl. Þetta svæði er jafnt trúarlegt athvarf og ferðamannastaður og gefur innsýn í hvernig japönsk hefð og nútíma verslun fara saman á sama stað.

Sensoji-hofið

Við endum daginn í Shibuya, einu mannmesta og þekktasta hverfi Tókýó. Þar upplifum við Shibuya Crossing – gangbrautina þar sem hundruð manna fara yfir götuna samtímis þegar ljósin breytast. Þeir sem vilja geta farið upp á útsýnispallinn Shibuya Sky eða skoðað verslanir og líf á götum hverfisins.

Shibuya gangbrautirnar

Að lokinni dagskrá gefst tími til kvöldverðar. Leiðsögumaður mælir með veitingastöðum í nágrenninu – hvort sem um er að ræða hefðbundna ramen, sushi eða nútímalega staði. Þeir sem vilja geta farið saman í hópi, en einnig er valfrjálst að njóta kvöldsins á eigin forsendum áður en haldið er aftur á hótelið.  

Fjöldi verlsana og veitingastaða í Shibuya

Máltíðir innifaldar 

✔️ Morgunverður 

Gisting – nótt 2 af 4

Richmond Hotel Premier Asakusa International eða sambærilegt.

Morgunverður

Morgunverður á hótelinu

Keisarahöllin í Tókýó

Við byrjum daginn á rólegum nótum, þar sem við göngum um garðsvæðið í kringum Keisarahöllina í Tókýó. 

Keisarahöllin í Tókýó er staðsett á svæði sem áður tilheyrði Edo-kastalanum frá tímum Tokugawa-shógúnanna. Höllin sjálf er lokuð almenningi, en garðarnir í kring eru opinberir og vel hirtir. Þar má ganga um steinlagðar götur, sjá gamlar varnarmúra, vatnsskurði og brýr sem voru hluti af varnarvirkjum gamla kastalans.

Meiji Jingu hofið

Skammt frá iðandi tískugötum Harajuku og skærum auglýsingaskjám finnum við Meiji Jingu hofið, sem hefur frá upphafi verið meira en bara trúarstaður. Hofið var reist árið 1920 í minningu Meiji-keisara, sem gegndi lykilhlutverki í umbreytingu Japans úr lokuðu samfélagi í nútímalega þjóð.

Hofið er umlukt skógi sem var plantað sérstaklega í kringum bygginguna. Þar eru yfir 100.000 tré frá öllum landshlutum, sem voru gefin þegar hofið var reist.

Hofið sjálft er dæmigert fyrir Shinto-byggingarstíl og samanstendur af viðarbyggingum úr japönskum sedrusviði. Á svæðinu má sjá gesti leggja fram bænaspjöld og fara með ákveðnar athafnir samkvæmt siðum Shinto-trúarinnar. Þetta er vinsæll áfangastaður í borginni og mikið sóttur bæði af ferðafólki og heimamönnum.

Sensoji-hofið

Í Asakusa-hverfinu heimsækjum við Sensoji-hofið, sem er elsta búddahof Tókýó og á sér rætur aftur til 7. aldar. Hofið er helgað Kannon, vinsælli guðamynd í japanskri búddatrú, og er enn mikið notað af heimamönnum. Leiðin að hofinu liggur um Nakamise-verslunargötuna, þar sem sölubásar bjóða upp á hefðbundna japanska snarlrétti, handverk, minjagripi og kimono.

Á hofsvæðinu má sjá gesti tendra reykelsi og skrifa óskir á trélappir. Byggingarnar eru endurreistar eftir seinni heimsstyrjöld, en eru í samræmi við hefðbundinn stíl. Þetta svæði er jafnt trúarlegt athvarf og ferðamannastaður og gefur innsýn í hvernig japönsk hefð og nútíma verslun fara saman á sama stað.

Hádegisverður

Sameiginlegur hádegisverður

Shibuya gangbrautirnar

Við endum daginn í Shibuya, einu mannmesta og þekktasta hverfi Tókýó. Þar upplifum við Shibuya Crossing – gangbrautina þar sem hundruð manna fara yfir götuna samtímis þegar ljósin breytast. Þeir sem vilja geta farið upp á útsýnispallinn Shibuya Sky eða skoðað verslanir og líf á götum hverfisins.

Frjálst kvöld

Að lokinni dagskrá gefst tími til kvöldverðar. Leiðsögumaður mælir með veitingastöðum í nágrenninu – hvort sem um er að ræða hefðbundna ramen, sushi eða nútímalega staði. Þeir sem vilja geta farið saman í hópi, en einnig er valfrjálst að njóta kvöldsins á eigin forsendum áður en haldið er aftur á hótelið.  

Gisting

Richmond Hotel Premier Asakusa International  eða sambærilegt

Gisting (nótt 2 af 4)

Máltíðir innifaldar 

✔️ Morgunverður

DAGUR 14
Mán. 30. mars 2026

Kamakura – saga samúræja og búddatrú

Við ökum til Kamakura, fyrrum höfuðborgar samúræja. Þar sjáum við Hase-dera hofið, stóru styttuna af Búdda og verslunargötuna Komachi-dori. 

Við ökum frá Tókýó til Kamakura, sem var höfuðborg Japans á Kamakura-tímabilinu (1185–1333), þegar samúræjastéttin fór með völd. Borgin er þekkt fyrir trúarlega minnisvarða og rólegra stemningu, í mikilli andstöðu við hraða stórborgarinnar. Kamakura gegndi lykilhlutverki í þróun Zen-búddisma í Japan og hefur varðveitt fjölmargar byggingar frá miðöldum.

Við heimsækjum Hase-dera hofið, sem stendur á hæð með útsýni yfir sjóinn. Þar má sjá styttu af Kannon með ellefu höfuðum, og í hofgarðinum eru göngustígar, litlar hallir og hellar með smástýttum. Hofið er einnig þekkt fyrir árstíðabundin blóm, sérstaklega hortensíur og kirsuberjablóm.

Hase-dera hofið
Kannon med 11 höfuðin

Næst höldum við að stóru Búddastyttunni í Kamakura (Daibutsu), sem er næststærsta bronstytta Búdda í Japan. Hún var steypt á 13. öld og stendur nú undir berum himni eftir að hofið sem umvafði hana eyðilagðist í flóði. Þrátt fyrir aldur og náttúruhamfarir stendur hún enn upprétt sem tákn um þolinmæði og einfaldleika hinnar Zen-innblásnu trúar.

Búdda og Kirsuberjatré á þessum árstíma

Við göngum einnig um Komachi-dori, líflega verslunargötu með fjölbreyttum litlum sölubúðum og matarbásum. Þar má meðal annars smakka staðbundið snarl og skoða handverk sem endurspeglar menningu svæðisins. 

Við höldum þaðan á ný til hótels okkar í Tokýó.

Komachi-dori

Máltíðir innifaldar 

✔️ Morgunverður 

✔️ Kvöldverður 

Gisting – nótt 3 af 4

Richmond Hotel Premier Asakusa International eða sambærilegt

Morgunverður

Morgunverður á hótelinu

Kamakura - Saga samúræja

Við ökum frá Tókýó til Kamakura, sem var höfuðborg Japans á Kamakura-tímabilinu (1185–1333), þegar samúræjastéttin fór með völd. Borgin er þekkt fyrir trúarlega minnisvarða og rólegra stemningu, í mikilli andstöðu við hraða stórborgarinnar. Kamakura gegndi lykilhlutverki í þróun Zen-búddisma í Japan og hefur varðveitt fjölmargar byggingar frá miðöldum.

Hase-dera hofið

Við heimsækjum Hase-dera hofið, sem stendur á hæð með útsýni yfir sjóinn. Þar má sjá styttu af Kannon með ellefu höfuðum, og í hofgarðinum eru göngustígar, litlar hallir og hellar með smástýttum. Hofið er einnig þekkt fyrir árstíðabundin blóm, sérstaklega hortensíur og kirsuberjablóm.

Hádegisverður

Sameiginlegur hádegisverður

Búddastyttan í Kamakura

Næst höldum við að stóru Búddastyttunni í Kamakura (Daibutsu), sem er næststærsta bronstytta Búdda í Japan. Hún var steypt á 13. öld og stendur nú undir berum himni eftir að hofið sem umvafði hana eyðilagðist í flóði. Þrátt fyrir aldur og náttúruhamfarir stendur hún enn upprétt sem tákn um þolinmæði og einfaldleika hinnar Zen-innblásnu trúar.

Komachi-dori

Við göngum einnig um Komachi-dori, líflega verslunargötu með fjölbreyttum litlum sölubúðum og matarbásum. Þar má meðal annars smakka staðbundið snarl og skoða handverk sem endurspeglar menningu svæðisins. 

Við höldum þaðan á ný til hótels okkar í Tokýó.

Frjálst kvöld

Að lokinni dagskrá gefst tími til kvöldverðar. Leiðsögumaður mælir með veitingastöðum í nágrenninu – hvort sem um er að ræða hefðbundna ramen, sushi eða nútímalega staði. Þeir sem vilja geta farið saman í hópi, en einnig er valfrjálst að njóta kvöldsins á eigin forsendum áður en haldið er aftur á hótelið.  

Gisting

Richmond Hotel Premier Asakusa International  eða sambærilegt

Gisting (nótt 3 af 4)

Máltíðir innifaldar 

✔️ Morgunverður

Nikko – helgidómar, fossar og fjallavatn

DAGUR 15
Þri. 31. mars 2026

Við leggjum af stað snemma morguns frá Tókýó og höldum norður í átt að Nikko, sem er bæði sögulegur og náttúrulegur gimsteinn Japans. Svæðið er þekkt fyrir dýrðleg hof, gróskumikla skóga og einstaka fjallasýn – aðeins um tveggja og hálfs tíma ferð frá borginni.

Fyrsti viðkomustaður dagsins er Toshogu, stórfenglegt hof sem er tileinkað Tokugawa Ieyasu – einum áhrifamesta leiðtoga Japans. Hofið sameinar búddisma og shintotrú, og er ríkulega skreytt með litríku útskornu tréverki og gullskreytingum. Hér sjáum við m.a. hina frægu þrá apa og lærum um sögu shógúnaveldisins.

Eftir hádegi ökum við upp Irohazaka fjallveginn, þar sem landslagið breytist og við komum upp á hæðir Nikko-fjallgarðsins. 

Við tökum létta gönguferð meðfram Chuzenji-vatni. Við njótum útsýnisins, borðum hádegisverð og gefum okkur tíma til að slaka á við vatnsbakkann.

Að lokum heimsækjum við Kegon-fossinn, sem fellur tæpa 100 metra niður í þröngan dal. Fossinn er eitt áhrifamesta náttúruundur Japans. Fossinn er sérstaklega tignarlegur á vorin og haustin.

Síðdegis ökum við aftur til Tókýó og komum til borgarinnar um kvöldmatarleytið. Ferðin gefur einstaka innsýn í söguleg og náttúruleg undur Japans – dagur þar sem líf og kyrrð, saga og náttúra mætast.

Toshogu-hofið
Nikko-fjallvegurinn
Chuzenji-vatnið
Kegon fossinn
Morgunverður

Morgunverður á hótelinu

Dagsferð til Nikko

Við leggjum af stað snemma morguns frá Tókýó og höldum norður í átt að Nikko, sem er bæði sögulegur og náttúrulegur gimsteinn Japans. Svæðið er þekkt fyrir dýrðleg hof, gróskumikla skóga og einstaka fjallasýn – aðeins um tveggja og hálfs tíma ferð frá borginni.

Fyrsti viðkomustaður dagsins er Toshogu, stórfenglegt hof sem er tileinkað Tokugawa Ieyasu – einum áhrifamesta leiðtoga Japans. Hofið sameinar búddisma og shintotrú, og er ríkulega skreytt með litríku útskornu tréverki og gullskreytingum. Hér sjáum við m.a. hina frægu þrá apa og lærum um sögu shógúnaveldisins.

Nikko fjallgarðurinn

Eftir hádegi ökum við upp Irohazaka fjallveginn, þar sem landslagið breytist og við komum upp á hæðir Nikko-fjallgarðsins. 

Hádegisverður

Sameiginlegur hádegisverður

Gönguferð meðfram Chuzenji-vatni

Við tökum létta gönguferð meðfram Chuzenji-vatni. Við njótum útsýnisins, borðum hádegisverð og gefum okkur tíma til að slaka á við vatnsbakkann.

Kegon fossinn

Að lokum heimsækjum við Kegon-fossinn, sem fellur tæpa 100 metra niður í þröngan dal. Fossinn er eitt áhrifamesta náttúruundur Japans. Fossinn er sérstaklega tignarlegur á vorin og haustin.

Frjálst kvöld

Að lokinni dagskrá gefst tími til kvöldverðar. Leiðsögumaður mælir með veitingastöðum í nágrenninu – hvort sem um er að ræða hefðbundna ramen, sushi eða nútímalega staði. Þeir sem vilja geta farið saman í hópi, en einnig er valfrjálst að njóta kvöldsins á eigin forsendum áður en haldið er aftur á hótelið.  

Gisting

Richmond Hotel Premier Asakusa International  eða sambærilegt

Gisting (nótt 4 af 4)

Máltíðir innifaldar 

✔️ Morgunverður

Máltíðir innifaldar 

✔️ Morgunverður 

✔️ Kvöldverður 

Gisting – nótt 4 af 4

Richmond Hotel Premier Asakusa International eða sambærilegt

Þín eigin Tókýó – frelsi til að velja

DAGAR 16-17
MIÐ. 1-2. APRÍL 2026

Síðasta daginn stengur til boða að njóta Tókýó á eigin vegum. Það eru ótal möguleikar á að skrá sig í valfrjálsa viðburði eða stuttar dagsferðir. Borgin býður upp á fjölbreytta menningu, mat, listir og afþreyingu – frá rólegum göngum í görðum til einstaka reynslu með heimamönnum.

Hér eru örfáar tillögur að upplifunum:

  • Súmóglímuæfing með súmóglímuköppum
    Fáðu einstaka innsýn í heim súmósins með heimsókn á æfingu og samtal við fyrrverandi glímukappa.
    GetYourGuide

  • Sushi- og japönsk matreiðslunámskeið
    Lærðu að útbúa sushi, miso-súpu og fleiri hefðbundna rétti með leiðsögn japanskra matreiðslumanna.
    GetYourGuide

  • Kimono-prófun og myndataka
    Fáðu að máta hefðbundinn kimono og ganga um söguleg hverfi Tókýó með ljósmyndara.
    GetYourGuide

Þú getur einnig valið að slaka á og njóta borgarinnar á eigin hraða – hvort sem það er að versla í Shibuya, heimsækja söfn eða setjast í garð með kaffibolla. Tókýó býður upp á endalausa möguleika fyrir mismunandi áhugamál og orku.

Sameiginlegur kvöldverður á huggulegum veitingastað áður en haldið er út á flugvöll. Næturflug heim um Helsinki.

Súmóglímuæfing með súmóglímuköppum
Sushi matreiðslunámskeið
Morgunverður

Morgunverður á hótelinu

Tókýó á eigin vegum

Síðasta daginn stengur til boða að njóta Tókýó á eigin vegum. Það eru ótal möguleikar á að skrá sig í valfrjálsa viðburði eða stuttar dagsferðir. Borgin býður upp á fjölbreytta menningu, mat, listir og afþreyingu – frá rólegum göngum í görðum til einstaka reynslu með heimamönnum.

Þú getur einnig valið að slaka á og njóta borgarinnar á eigin hraða – hvort sem það er að versla í Shibuya, heimsækja söfn eða setjast í garð með kaffibolla. Tókýó býður upp á endalausa möguleika fyrir mismunandi áhugamál og orku.

Hér á eftir fylgja nokkrar tillögur að upplifunum.

Súmóglímuæfing

Súmóglímuæfing með súmóglímuköppum
Fáðu einstaka innsýn í heim súmósins með heimsókn á æfingu og samtal við fyrrverandi glímukappa.
GetYourGuide

Matreiðslunámskeið

Sushi- og japönsk matreiðslunámskeið
Lærðu að útbúa sushi, miso-súpu og fleiri hefðbundna rétti með leiðsögn japanskra matreiðslumanna.
GetYourGuide

Kimono-prófun

Kimono-prófun og myndataka
Fáðu að máta hefðbundinn kimono og ganga um söguleg hverfi Tókýó með ljósmyndara.
GetYourGuide

Kegon fossinn

Að lokum heimsækjum við Kegon-fossinn, sem fellur tæpa 100 metra niður í þröngan dal. Fossinn er eitt áhrifamesta náttúruundur Japans. Fossinn er sérstaklega tignarlegur á vorin og haustin.

Kvöldverður

Sameiginlegur kvöldverður á huggulegum veitingastað áður en haldið er út á flugvöll. Næturflug heim um Helsinki.

Brottför frá Tókýó

Brottför frá Tókýó með Finnair.
Við fljúgum með næturflugi til Helsinki og þaðan áfram til Íslands.

Flug: Finnair AY074 og AY991
Brottför frá Tókýó: kl. 21:50
Millilending í Helsinki: kl. 04:40–07:10
Lending  á Keflavíkurflugvelli: kl. 07:50 þann 2. apríl.

Tímamismunur: -9 klst. (Japan er 9 klst. á undan Íslandi)

Máltíðir innifaldar 

✔️ Morgunverður

✔️ Kvöldverður

Brottför frá Tókýó með Finnair.
Við fljúgum með næturflugi til Helsinki og þaðan áfram til Íslands.

Flug: Finnair AY074 og AY991
Brottför frá Tókýó: kl. 21:50
Millilending í Helsinki: kl. 04:40–07:10
Lending  á Keflavíkurflugvelli: kl. 07:50 þann 2. apríl.

Tímamismunur: -9 klst. (Japan er 9 klst. á undan Íslandi)

Verð og greiðsluskilmálar

Verð og greiðsluskilmálar

Verð á mann er 1.177.000 kr., miðað við gistingu í tveggja manna herbergi.

Einstaklingsherbergi er í boði gegn aukagjaldi að upphæð 268.400 kr.

Við skráningu þarf að greiða staðfestingargjald að upphæð 117.700 kr. (10% af grunnverði). Skráningargjaldið skal greiðast innan þriggja vikna frá skráningu.

Lokagreiðsla, að upphæð 1.059.300 kr., greiðist í síðasta lagi 3 mánuðum fyrir brottför, þann 17. desember 2025.

Lágmarks-/ hámarksfjöldi: 18 / 22 manns.

Innifalið í verði

✅ Flug til  Suður-Kóreu og heim frá Japan
✅ Flug frá Seúl til Osaka eða Fukuoka.
✅ Allar 14 hótelgistinætur á vel völdum 3–4 stjörnu hótelum

✅ Morgunverður alla daga (nema í flugi)
✅ Hádegis- og kvöldverður þar sem það er tekið fram. Áfengi er ekki innifalið

✅ Allar samgöngur innan ferðar (lestir, rútuferðir og ferjur)
✅ Hraðlestir (shinkansen) og hópferðarúta skv. dagskrá
✅ Ferðir með fararstjóra frá Íslandi og enskumælandi leiðsögumönnum í Suður-Kóreu og í Japan.
✅ Aðgangur að söfnum, hofum, listigörðum og öðrum stöðum skv. dagskrá
✅ Dagsferðir skv. skipulagi  
✅ Skattar og þjónustugjöld

Athugið að staðarleiðsögn fer fram á ensku. Íslenskur fararstjóri er til staðar fyrir aðstoð og útskýringar eftir þörfum, en ekki er um beina eða samfellda túlkun að ræða.

Ekki innifalið í verði

☑️ Valfrjálsar upplifanir í Kyoto og Tókýó.  Þar má  t.d. nefna:
       – Ganga um Arashiyama bambusskóginn
       – Zen hugleiðsla og garðheimsókn
       – Súmóglímuæfing
       – Matreiðslunámskeið
  
☑️ Einkakostnaður, s.s. drykkir, farangursflutningar, minjagripir
☑️ Forfallatryggingar (mælt með)
 
☑️ Máltíðir sem ekki eru taldar upp í innifalið
☑️ Drykkjarföng og persónuleg útgjöld

☑️ Farangurskostnaður yfir leyfileg mörk
☑️ Þjórfé fyrir fararstjóra, leiðsögumenn og rútubílstjóra
☑️ Farangursþjónusta á hótelum

via World ApS

via World ApS er með danskt ferðaskrifstofuleyfi og er skráð meðlimur nr. 3639 í Rejsegarantifonden.  Kennitala (DK) CVR 44903695.
 
via World ApS hefur öll þar til gerð leyfi til að setja saman, skipuleggja, bjóða og/eða selja pakkaferðir eða hafa milligöngu um sölu samtengdrar ferðatilhögunar í atvinnuskyni, hvort sem er að eigin frumkvæði eða eftir beiðni viðskiptavinar, innanlands eða erlendis.
 
📞 Hafðu samband

Sími: 830 0800
Tölvupóstur: bjarni.meyer@viaworld.travel

Við veitum fúslega nánari upplýsingar um ferðatilhögun og aðra valkosti.

Fararstjóri

Pétur Eggerz er fæddur og uppalinn í Reykjavík, lengst af í Breiðholtinu. Eftir nám í bókmenntafræði við Háskóla Íslands nam hann leiklist í Lundúnum og útskrifaðist þaðan 1984. Hann hefur tekið þátt í leiksýningum hjá Leikfélagi Akureyrar, Þjóðleikhúsinu, Alþýðuleikhúsinu, Leikfélagi Reykjavíkur og víðar. Honum hefur einnig brugðið reglulega fyrir í kvikmyndum og sjónvarpi. Þá vann hann um hríð við dagskrárgerð á Rás 1.

Pétur var einn stofnenda Möguleikhússins árið 1990 og starfaði þar í nær þrjá áratugi sem leikari, leikstjóri og höfundur. Meðal verka sem hann vann fyrir Möguleikhúsið má t.d. nefna Eldklerkinn, einleik sem fjallar um séra Jón Steingrímsson. Þá hefur hann einnig séð um heimsóknir íslensku jólasveinana í Þjóðminjasafnið allt frá árinu 1995.

Pétur er einnig menntaður leiðsögumaður og útskrifaðist sem slíkur frá Leiðsöguskóla Íslands 2006. Frá þeim tíma hefur hann þvælst vítt og breitt um landið með ferðamenn um landið.

Staðarleiðsögumenn

Reyndir staðarleiðsögumenn frá ferðaþjónustuaðilum okkar í Suður-Kóreu og Japan mun veita okkur góða leiðsögn og fylgja okkur frá a-ö.
 
Verður tilkynnt nánar þegar það liggur fyrir.

Óbindandi skráning – tryggðu þér sæti

Skráningin er fyrst bindandi eftir greiðslu staðfestingargjalds.  

Óbindandi skráning
– tryggðu þér sæti

Til að fá gott yfirlit yfir hópinn og tryggja að allt verði skipulagt sem best, biðjum við ykkur um að fylla út meðfylgjandi skráningarform. Þetta hjálpar okkur að laga ferðina sem best að ykkar þörfum og óskum og skapa sem besta upplifun. Með skráningu tryggir þið ykkur einnig sæti í ferðinni.  Þið fáið staðfestingu á skáningu með tölvupósti (athugið spam!).

Við bendum ykkur á að skoða þá valkosti sem í boði og merkja þar sem á við.

Skráningin er fyrst bindandi eftir greiðslu staðfestingargjalds.  

Ferðaskilmálar

Vinsamlegast kynnið ykkur ferðaskilmála hér að neðan.
 
Athugið að via World ApS getur hætt við ferð allt að 28 dögum fyrir brottför ef ekki næst lágmarksfjöldi þátttakenda, sem er 20 manns í þessari ferð. Hámarksfjöldi er 26 manns.
 
Ef ferð er aflýst af hálfu via World ApS / via Iceland ApS, er boðin full endurgreiðsla.

Ferðaskilmálar

1. Almennt

Þessir ferðaskilmálar gilda fyrir allar ferðir sem bókaðar eru í gegnum via World ApS / via Iceland ApS. Með því að skrá sig í ferð eða staðfesta bókun samþykkir þátttakandi þessa skilmála.

2. Bókun og greiðsluskilmálar

  • Staðfestingargjald þarf að greiðast við bókun og er það almennt óafturkræft, nema annað sé sérstaklega tekið fram.
  • Fullnaðargreiðsla vegna ferðar skal innt af hendi eigi síðar en 90 dögum fyrir brottför, nema annað sé tekið fram í samningi.
  • Þjónustugjald er innheimt fyrir þjónustu sem er ekki innifalin í verði ferðar, t.d. sérpöntun á bílaleigubíl, gistingu o.fl.
  • Ef greiðsla berst ekki innan tilskilins tíma áskilur via World ApS sér rétt til að ógilda bókunina án endurgreiðslu.

3. Innifalið í verði

  • Verð ferða er miðað við þær upplýsingar sem gilda á bókunardegi.
  • Ef breytingar verða á gjaldmiðlum, sköttum, eldsneytisgjöldum eða öðrum kostnaðarliðum, áskilur via World ApS sér rétt til að breyta verði í samræmi við það.
  • Innifalið í verði er einungis það sem sérstaklega er tekið fram í ferðalýsingu, t.d. flug, gisting, ferðir, aðgangseyrir og leiðsögn þar sem við á.

4. Afturköllun og endurgreiðslufyrirkomulag

Allar afbókanir þurfa að berast skriflega til via World ApS.

4.1 Staðfestingargjald
  • Staðfestingargjald er 10% af heildarverði ferðar og er óafturkræft nema ferð sé felld niður af via World ApS.
4.2 Endurgreiðsla eftir því hvenær afbókun berst
  • Meira en 90 dögum fyrir brottför – Endurgreiðsla að frádregnu staðfestingargjaldi.
  • 60-89 dögum fyrir brottför – Endurgreiðsla á 50% af ferðaverði.
  • 45-59 dögum fyrir brottför – Endurgreiðsla á 25% af ferðaverði.
  • Minna en 45 dögum fyrir brottför – Engin endurgreiðsla.
  • Ef ferðamaður mætir ekki til ferðar eða missir af flugi/ferð, er engin endurgreiðsla veitt.

Ef greitt hefur verið með kreditkorti fer endurgreiðslan inn á sama kort og notað var til greiðslu.

4.3 Aflýsing af hálfu via World ApS
  • via World getur hætt við ferð allt að 28 dögum fyrir brottför ef ekki næst lágmarksfjöldi þátttakenda, að uppfylltum eftirfarandi skilyrðum:

    a) Lágmarksfjöldi þátttakenda og tímasetning fyrir aflýsingu ferðar hafa verið tilgreind í bæði ferðalýsingu og staðfestingu ferðar. 

    b) Við staðfestingu ferðar skulu þessi ákvæði koma fram á skýran og læsilegan hátt.

    Afturköllun af hálfu via World ApS verður að vera tilkynnt í síðasta lagi á þeim degi sem tilgreindur er í ferðalýsingu. 

    Ef ferð er aflýst af hálfu via World ApS / via Iceland ApS, er boðin full endurgreiðsla.

  • via World ApS ber ekki ábyrgð á aukaútgjöldum sem kunna að hafa fallið til hjá viðskiptavini, svo sem vegna flugmiða eða annarra bókana sem ekki eru hluti af pakkaferðinni.

5. Breytingar á ferðum
  • via World ApS áskilur sér rétt til að breyta dagskrá ferða ef nauðsyn krefur, t.d. vegna veðurs, aðstæðna á áfangastað eða annarra ófyrirséðra aðstæðna.
  • Ef breytingar eiga sér stað mun fyrirtækið leitast við að veita sambærilega þjónustu.

6. Ábyrgð ferðamannsins

  • Ferðamaður ber ábyrgð á að hafa gild vegabréf og vegabréfsáritun, ef þörf krefur.
  • Ferðamaður ber ábyrgð á að vera tryggður með ferðatryggingu og sjúkratryggingu.
  • Ferðamaður ber ábyrgð á að fylgja settum reglum og leiðbeiningum fararstjóra eða samstarfsaðila via World ApS á hverjum áfangastað.

7. Ábyrgð via World ApS

  • via World ApS tryggir að allar ferðir séu skipulagðar með faglegum hætti.
  • Fyrirtækið ber ekki ábyrgð á töfum, náttúruhamförum, veðri, verkföllum eða öðrum utanaðkomandi aðstæðum sem það ræður ekki við.
  • Ef hnökrar verða í þjónustu samstarfsaðila mun via World ApS leitast við að finna lausn, en ber ekki fjárhagslega ábyrgð á slíku.

8. Kvartanir og ágreiningur

  • Ef ferðamaður hefur ábendingar eða kvartanir skulu þær berast eins fjótt og auðið er meðan á ferð stendur svo hægt verði að leysa málið á staðnum.
  • Ef ekki tekst að leysa úr kvörtun eða ágreiningi á staðnum má senda skriflega kvörtun innan 14 daga frá lokum ferðar.
  • Ágreiningsmál sem ekki er hægt að leysa með samkomulagi verða leyst samkvæmt lögum.

9. Skylda til að veita aðstoð

via World er skuldbundið til að veita viðskiptavinum aðstoð ef neyðartilvik koma upp.

10. Kröfur og fyrningarfrestur

Kröfur vegna galla á ferðaþjónustu fyrnast eftir tvö ár.

11. Vegabréfs- og vegabréfsáritunarkröfur

via World veitir viðskiptavinum upplýsingar um reglur varðandi vegabréf, vegabréfsáritanir og heilsufarskröfur. Viðskiptavinurinn ber hins vegar sjálfur ábyrgð á að uppfylla þessar kröfur.

12. Lögsaga og varnarþing

Lögsaga og varnarþing er í samræmi við lögsögu via World í Danmörku.

13. Persónuvernd

Persónuupplýsingar eru meðhöndlaðar í samræmi við gildandi persónuverndarlög og reglur.

14. Ferðaskipuleggjandi

via World Aps
Robert Jacobsens Vej 35, 5mf.
2300 Kaupmannahöfn
Danmörk

Símar: 830 0300 og +45 44 111 777
Netföng: team@viaiceland.com og bjarni.meyer@viaworld.travel
Vefsíða: www.viaiceland.com/viaworld
Framkvæmdastjóri: Bjarni Meyer Einarsson

Það er eindregið mælt með að ferðamenn kaupi ferðatryggingu sem nær yfir hugsanlega afbókun eða röskun á ferðalagi.

Vinsamlegast hafið samband ef óskað er frekari upplýsinga.

Vegabréfsáritun

Íslenskir ríkisborgarar þurfa ekki vegabréfsáritun (visa) til Japans ef dvölin er innan við 90 daga.

Bólusetningar

Það er ekki gerð krafa um bólusetningar þegar ferðast er til Japan.

Við leggjum í hann eftir

  • 00daga
  • 00klukkutíma
  • 00mínútur

Við leggjum í hann eftir

  • 00daga
  • 00klukkutíma
  • 00mínútur

Istanbúl og Egyptaland - 14 dagar

Þessi einstaka ferð leiðir okkur í gegnum tvo stórbrotna menningarheima – frá iðandi mannlífi Istanbúl til fornar dýrðar Egyptalands. Við heimsækjum söguleg kennileiti, njótum stórbrotinnar náttúru og upplifum heillandi menningu þessara tveggja landa. Hápunktur ferðarinnar er fjögurra daga sigling á Níl.

Ferðatímabíl : 5. - 18. september 2025

Sakura 🌸 Seúl とJapan

Ferð frá Seúl til Tókýó þar sem við kynn­umst borgum, bæjum og daglegu lífi í Suður-Kóreu og Japan. Við heimsækjum stórborgir og róleg svæði, sjáum Fuji-fjallið, göngum um garða og markaði og kynnum okkur japanska matargerð. Í Seúl skoðum við sögustaði og nútímaleg hverfi. Ferð sem sameinar borgarlíf, hefðir og nýjar upplifanir.

Ferðatímabíl : 17. mars - 2. apríl 2026

Kanada - 14 daga ferð

Ferðin hefst í Toronto með heimsókn að stórkostlegum Niagarafossum. Þaðan liggur leiðin til Jasper í Klettafjöllunum, þar sem þið njótið óviðjafnanlegrar náttúru. Ferðinni lýkur í gróðursælli strandborginni Vancouver, þar sem menning og afslöppun mætast við sjóinn.

Ferðatímabíl : 5. - 19. sept. 2026

Aserbaídsjan, Georgía og Armenía

Upplifðu ævintýri frá Istanbúl til Aserbaídsjan og áfram um Suður-Kákasussvæðið. Við byrjum með þriggja daga dvöl í heillandi Istanbúl – þar sem austrænir litir og saga mætast. Í Baku tökum við inn nútímalegan glæsileika og austurlenskan anda. Í Georgíu kynnumst við langri hefð í víngerð og menningu í fallegum landslagshlíðum. Í Armeníu bíða forn helgidómar, fjallasýn og djúp menningararfleifð.

Ferðatímabíl : 24. sept. - 8. okt. 2026

Korkoro ⛩️ Seúl とJapan

Ferð frá Seúl til Tókýó þar sem við kynn­umst borgum, bæjum og daglegu lífi í Suður-Kóreu og Japan. Við heimsækjum stórborgir og róleg svæði, sjáum Fuji-fjallið, göngum um garða og markaði og kynnum okkur japanska matargerð. Í Seúl skoðum við sögustaði og nútímaleg hverfi. Ferð sem sameinar borgarlíf, hefðir og nýjar upplifanir.

Ferðatímabíl : 15. - 30. október 2026

Istanbúl og Egyptaland - 14 dagar

Þessi einstaka ferð leiðir okkur í gegnum tvo stórbrotna menningarheima – frá iðandi mannlífi Istanbúl til fornar dýrðar Egyptalands. Við heimsækjum söguleg kennileiti, njótum stórbrotinnar náttúru og upplifum heillandi menningu þessara tveggja landa. Hápunktur ferðarinnar er fjögurra daga sigling á Níl.

Ferðatímabíl : 5. - 18. nóvember 2026

Nach oben scrollen